Eftir mánuðum

30. jún. 2008

Gróska í skólastjóraráðningum

Nýir skólastjórar hafa verið ráðnir við leikskólana Klambra, Ösp, Heiðarborg og Holtaborg.
Lesa meira

30. jún. 2008

Nýtt orlofshús við Flúðir

Þann 26. júní sl. var opnað nýtt orlofshús í Heiðarbyggð við Flúðir. Húsið er 99m² og er teiknað af Albínu Thordarson arkitekt. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, tvö með hjónarúmi auk barnarúms og tvö herbergi með fjórum kojum. Stofa er vel búin húsmunum með heimabíói og flatskjá með RÚV, Stöð 2 og SÝN. Húsin í Heiðarbyggð eru með þráðlausu netsambandi.
Lesa meira

26. jún. 2008

Formaður á mótorfák

Guðmundur Guðlaugsson er formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum og áfangastjóri í Borgarholtsskóla. Hann kom við í Kennarahúsinu í morgun til að sinna ýmsum erindum og við fengum að smella af honum mynd á mótorfáknum sínum, Kawasaki Vulcan, sem hann keypti í gegnum eBay.
Lesa meira

26. jún. 2008

Framhaldsskólakennari fær Gaddakylfuna

Kennarar sitja ekki auðum höndum yfir sumartímann og Lilja Magnúsdóttir íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi gerði sér lítið fyrir og hreppti Gaddakylfuna í gær fyrir glæpasögu sína „Svikarinn“. Gaddakylfuna hlýtur sigurvegarinn í árlegri glæpasögusamkeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags. Í öðru sæti voru Valur Grettisson og Hanna Ruth Ólafsdóttir með söguna „Dýragarðurinn“ og í því þriðja Hilmar Örn Óskarsson og saga hans „Eldur“. Í nýjasta tölublaði Mannlífs er viðtal við Lilju og gefin hefur verið út bók með verðlaunasögunum og ellefu öðrum sögum sem þóttu bera af í keppninni. Í dómnefnd sátu Eiríkur Brynjólfsson kennari og foringi Hins íslenska glæpafélags, Helga Vala Helgadóttir og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
Lesa meira

25. jún. 2008

Meirihluti ungmenna hefur ekki markað sér stefnu í lífinu

Á vefnum edweek.org er spjallað reglulega um kennslu og skólamál. Í dag verður rætt um það hvort börn og ungt fólk þurfi meiri stuðning en áður fyrr til þess að marka sér stefnu í lífinu. Vafra ungmenni á milli skóla og vinnustaða svipað og þau væru á Netinu, stefnulaust og með hálfum hug? Fer vonleysi og tilfinning fyrir tilgangsleysi vaxandi? Hvað geta kennarar gert?
Lesa meira

24. jún. 2008

Vinnuvistfræði er lífsstíll

Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík 11.-13. ágúst 2008.
Lesa meira

24. jún. 2008

Ákall á Jónsmessu um menntun og heilsugæslu fyrir alheimsbyggðina

Alþjóðasamtök kennara (EI), Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu (PSI) og hjálparsamtökin Oxfam ákölluðu í gær leiðtoga heimsins um að fjármagna menntun og heilsugæslu fyrir alla. Fjármununum á að verja til að mennta, þjálfa og ráða til starfa tugi milljóna kennara og starfsfólks í heilsugæslu. Þennan fjölda vantar til að íbúar heimsins njóti þeirra grundvallarmannréttinda að hafa aðgang að menntun og heilsugæslu.
Lesa meira

24. jún. 2008

Á fimmta þúsund í framhaldsskóla

Á sama tíma og framhaldsskólakennarar funda um nýundirritaða kjarasamninga sækja nemendur um skólavist í framhaldskólum landsins. Innritun er nú lokið og að þessu sinni sóttu um 4.426 nemendur úr 10. bekk grunnskóla um skólavist á haustönn 2008.
Lesa meira

23. jún. 2008

Kynningarfundir

Kynningarfundir um nýtt samkomulag KÍ/framhaldsskóla og SNR f.h. fjármálaráðherra um breytingar og framlengingu á kjarasamningi KÍ fyrir framhaldsskóla verða haldnir 24.,25. og 26. júní.
Lesa meira

18. jún. 2008

Fréttatilkynning frá samninganefnd KÍ/framhaldsskóla

Að kvöldi 16. júní 2008 var undirritað samkomulag milli Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins f.h. fjármálaráðherra um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila með fyrirvara um samþykki félagsmanna KÍ í ríkisreknum framhaldsskólum.
Lesa meira

14. jún. 2008

Síðasta brautskráning frá Kennaraháskóla Íslands

Skólinn sameinast HÍ 1. júlí næst komandi og til verður nýtt fjögurra deilda menntavísindasvið. Áfram kennt í húsnæði KHÍ við Stakkahlíð fyrstu árin.
Lesa meira

11. jún. 2008

Menntaþing í september

Bréf frá menntamálaráðherra.
Lesa meira

10. jún. 2008

Greinargerð Kennarasambands Íslands vegna frétta um launamál Orlofssjóðs KÍ í kvöldfréttatímum RÚV mánudaginn 9. júní

Í kvöldfréttum RÚV þann 9. júní 2008 var fjallað um launagreiðslur til fyrrverandi formanns og varaformanns Orlofssjóðs KÍ. Nauðsynlegt er að leiðrétta rangfærslur sem fram komu í fréttaflutningnum og hafa formaður og varaformaður KÍ tekið saman greinargerð af því tilefni.
Lesa meira

9. jún. 2008

Þungt hljóð í framhaldsskólakennurum

Félag framhaldsskólakennara hélt fund með formönnum félagsdeilda og trúnaðarmönnum í öllum framhaldsskólum landsins 2. júní s.l. Fundarefnið var alvarleg staða í samningamálum.
Lesa meira

5. jún. 2008

Íslenskt málþing um náttúrufræðimenntun og norræn ráðstefna um rannsóknir á náttúrufræðimenntun

Kennaraháskólinn heldur á þessu ári upp á 100 ára afmæli sitt. Málþingið og ráðstefnan sem hér kynnt eru þættir í röð viðburða í tilefni af afmælisárinu.
Lesa meira

4. jún. 2008

Kennurum boðið á afmælishátíð Kennaraháskóla Íslands

Haldið verður upp á aldarafmæli Kennaraháskólans í Borgarleikhúsinu nk. laugardag. Hátíðin hefst klukkan tvö síðdegis. Allir félagsmenn KÍ eru boðnir velkomnir á hátíðina meðan húsrúm leyfir.
Lesa meira

3. jún. 2008

Stjórn Minningarsjóðs Heiðar Baldursdóttur auglýsir hér með eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum

Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði sérkennslu, blöndunar fatlaðra og ófatlaðra barna og boðskipta. Umsóknir þurfa að berast stjórn sjóðsins fyrir 1. júlí.
Lesa meira

3. jún. 2008

Framhaldsskólakennarar gagnrýna stjórnvöld fyrir andvaraleysi

Formenn félagsdeilda FF og trúnaðarmenn í framhaldsskólum ályktuðu um stöðuna í samningaviðræðum á fundi sínum í gær. Formennirnir og trúnaðarmennirnir átöldu stjórnvöld harðlega og í ályktuninni sem samþykkt var á fundinum er lagt fast að ráðherrum menntamála og fjármála að taka höndum saman um að finna ásættanlega niðurstöðu um nýjan kjarasamning framhaldsskóla hið allra fyrsta.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli