1. sep. 2010

Félagsfundur

Félagsfundur verður haldin í leikskólanum Álfaheiði, Álfaheiði 46. 200 Kópavogi mánudaginn 20. september kl.17.30 -19.30. Boðið verður upp á léttar veitingar
Lesa frétt


1. sep. 2010

Nýtt Fréttabréf

Út er komið nýtt Fréttabréf Faghópsins. Í Fréttabréfinu að þessu sinni er m.a. auglýsing um félagsfund, umfjöllun um nýtt fyrirkomulag faghópa og fjallað um ný útkomnar bækur.
Lesa frétt


29. ágú. 2010

Eru fjöllin blá?

Bókin eru fjöllin blá? er komin út og er mjög áhugaverð bók fyrir kennara og nemendur sem vilja ræða um heimspekileg málefni. Útgefandi er að bjóða eintakið á kr. 1.990 og ef keypt eru 10 eintök, er í boði 20% afsl.!
Lesa frétt


29. ágú. 2010

Fjölmenning og skólastarf

Út er komin hjá Háskólaútgáfunni bókin Fjölmenning og skólastarf sem fjallar um ýmsa þætti skólastarfs þar sem fjölmenning er snertiflötur eða meginviðfangsefni. Samfélagsbreytingar í átt til aukins menningar- og trúarlegs fjölbreytileika kalla á breytingar á skólastarfi. Með bókinni er brugðist við þörf fyrir fræðilegt íslenskt efni um fjölmenningu og skólastarf. Hún er einkum ætluð kennaranemum, öðrum háskólanemum, fræðimönnum og starfandi kennurum á öllum skólastigum ásamt stefnumótandi aðilum.
Lesa frétt


29. ágú. 2010

Grundvallarrit um börn og tónlist

Bókin Tónlist í leikskóla er ætluð þeim sem kenna í leikskólum, á yngri stigum grunnskóla og öðrum sem starfa með ungum börnum. Hér er á ferðinni grundvallarrit um flest það er snýr að tónmenntanámi yngstu kynslóðarinnar. Fjallað er um tónlist sem þroskaþátt í leik barna og skipulögðu starfi í söngstundum, tónlistartímum og þemavinnu. Einnig eru margskonar hugmyndir að efni sem nota má jafnt í formlegu starfi sem óformlegu og er því skipt niður í hljóðleiki, sönglög og hlustunarefni. Þrír geisladiskar fylgja bókinni, tveir með sönglögum þar sem flytjendur eru Marta Guðrún Halldórsdóttir, Örn Magnússon, Margrét Kristjánsdóttir, Karl Roth og fleiri. Þriðji diskurinn er með tónefni í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Lesa frétt


27. maí 2010

List- og verkgreinar í öndvegi

Ingvar Sigurgeirsson, Ágúst Ólason, Björn Gunnlaugsson, Hildur Jóhannesdóttir og Sif Vígþórsdóttir segja frá þróunarverkefninu Smiðjur í Norðlingaskóla í Netlu.
Lesa frétt


27. maí 2010: Fjörulallarnir á Bakka
27. maí 2010: Special Needs in London
28. mar. 2010: Efnisveita SARE
28. mar. 2010: Vefurinn Fjölvaki
13. mar. 2010: Barnamenningarhátíðin 2010
30. nóv. 2009: Starf sérgreinastjóra
28. nóv. 2009: Sköpunarkraftur ungs fólks




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli