Hlutverk KÍ er að gæta hagsmuna og réttinda félagsmanna og fara með samningsrétt um kaup og kjör þeirra.
Aðildarfélög KÍ fara með kjaraleg málefni viðkomandi félagsmanna, gera kjarasamninga fyrir félagsmenn sína og halda fundi og námskeið fyrir trúnaðarmenn. Hvert aðildarfélag kýs samninganefnd. Samninganefnd hvers aðildarfélags fer með gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn sína, sbr. lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Hlutverk samninganefnda er:
Formaður aðildarfélags (sjá um hlutverk formanna aðildarfélaga í 21. gr. laga KÍ) í umboði KÍ ber ábyrgð á undirritun kjarasamninga fyrir sína félagsmenn og gerð og undirritun viðræðuáætlana vegna endurnýjunar þeirra.
Kjararáð er sameiginlegur vettvangur aðildarfélaga KÍ til að fjalla um stefnumörkun í kjarasamningum þeirra og til þess að styrkja tengsl milli félaga á kjarasviðinu. Kjararáð er skipað fulltrúum úr samninganefndum aðildarfélaga Kennarasambandsins og stjórn sambandsins og tveimur fulltrúum frá Félagi kennara á eftirlaunum. Hvert félag leggur til tvo fulltrúa í ráðið.
Spurningar og athugasemdir er hægt að senda á spurt hjá ki.is.