Orlofssjóður


Leiga og úthlutun

Yfir vetrartímann er hægt að leigja orlofshúsnæði allt að 4 mánuði fram í tímann. Fyrsta hvers mánaðar kl. 12:00 að hádegi er hægt að bóka fjórða mánuðinn. Bókanir eru á Orlofsvefnum og þar gildir, eins og svo oft, að fyrstur kemur - fyrstur fær.

Áríðandi er að félagsmenn prenti út kvittun fyrir leigu áður en farið er í orlofshús/íbúð, þar sem á kvittuninni eru mikilvægar upplýsingar fyrir leigutaka.

Þann 1. september er hægt að bóka út desember mánuð, en í apríl 2011 byrjar punktastýrð úthlutun á orlofshúsum næsta sumar. Fyrir þá sem ekki vita ávinna félagsmenn sér 24 orlofspunkta á ári.

Á orlofsvefnum eru í boði afsláttarmiðar á hótel sem hægt er að kaupa óháð punktaeign. Veiðikort og útilegukort eru í boði yfir sumartímann en einng er hægt að fá veiðikortin keypt á veturna.

Fréttir og tilkynningar

30. ágú. 2010

Nánar um styrki Orlofssjóðs

Nokkuð hefur borið á misskilningi vegna niðurgreiðslu Orlofssjóðs annars vegar og styrkja sjóðsins hins vegar. Á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri eru nokkrar íbúðir sem Orlofssjóður styrkir á sama hátt og hótelávísanir.
Lesa frétt


30. ágú. 2010

Fjöldi gesta í leiguhúsnæði og uppsetning fellihýsa og tjaldvagna

Eftir sumarið er nokkuð um kvartanir varðandi fjölda gesta í húsnæði Orlofssjóðs. Húsnæðið er gefið upp fyrir ákveðinn fjölda gesta og eru félagsmenn beðnir um að virða það. Eins hafa borist athugasemdir varðandi uppsetningu fellihýsa og tjaldvagna á svæðum þar sem ekki er heimilt að tjalda við leiguhúsnæði.
Lesa frétt



 




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli