Skólamálanefndir og skólamálaráð
Á vegum aðildarfélaga Kennarasambandsins starfa 3-7 manna skólamálanefndir sem sinna faglegum málefnum fyrir félagsmenn þeirra.
Hlutverk skólamálanefnda er:
- Að fjalla um fagleg málefni og skólamál í samráði við stjórn og skólamálaráð,
- að vinna að eflingu kennaramenntunar og endurmenntunar félagsmanna,
- að annast tengsl við fagfélög og sambærilegar nefndir annarra uppeldisstétta.
Skólamálanefndir félaga mynda Skólamálaráð ásamt formanni ráðsins sem skipaður er af stjórn Kennarasambands Íslands. Skólamálaráð heldur a.m.k. einn fund á ári. Formenn skólamálanefnda félaga og formaður skólamálaráðs mynda framkvæmdastjórn.
Hlutverk Skólamálaráðs er:
- Að fjalla um uppeldis- og skólamál á hverjum tíma og álykta um þau til stjórnar KÍ,
- að vera stjórn til ráðuneytis um stefnumörkun á hverjum tíma,
- að fara með mál sem tengjast faglegri menntun félagsmanna,
- að standa fyrir fundi með fulltrúum fagfélaga,
- að halda ráðstefnu eða þing á hverju kjörtímabili,
- að fjalla um skólastefnu Kennarasambands.
Skólamálafréttir

1. sep. 2010
Í frétt frá Hagstofu Íslands kemur fram að 82,2% starfsmanna við kennslu í framhaldsskólum í nóvember 2009 höfðu kennsluréttindi og hafði fjölgað úr 78,0% árið áður. Í fréttinni segir að hlutfall réttindakennara hafi ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir áratug. Af þeim sem starfa við kennslu hafa hlutfallslega fleiri konur en karlar kennsluréttindi. Skólaárið 2009-2010 höfðu 86,9% kvenna kennsluréttindi en 77,1% karla. Rúmur fjórðungur framhaldsskólakennara (25,4%) er með meistaragráðu, doktorsgráðu eða sambærilega menntun og hefur fjölgað um 2,3 prósentustig frá fyrra skólaári.
Lesa frétt
30. ágú. 2010
DV birti í gær frétt á vef sínum um nýlega ákvörðun Harvard háskóla að hætta að nota lokapróf sem námsmat í námskeiðum við skólann. Í fréttinni er haft eftir Jonathan Zimmerman prófessor í menntunarfræði og sagnfræði að lokapróf séu „forn og að öllu jöfnu umdeild leið til lærdóms, sem leggur að jöfnu þekkingu og upptalningu staðreynda. Hinn raunverulegi lærdómur er hins vegar að læra að setja fram skoðun sem studd er með staðreyndum. Þetta styðja fjölmargar nýlegar rannsóknir í sálfræði og menntunarfræði. Skólinn er ekki að sýna kæruleysi með ákvörðuninni, þvert á móti greiðir hún leiðina fyrir sannlega ögrandi og krefjandi námsreynslu,“ segir Zimmerman.
Lesa frétt
30. ágú. 2010
Alþjóðadagur kennara er 5. október og í ár ber hann upp á þriðjudag. Víða um lönd gera kennarar sér glaðan dag af þessu tilefni og vekja athygli á mikilvægi menntunar og skólagöngu með ýmsu móti og nemendur og foreldrar hylla kennara og þakka þeim fyrir framlag þeirra í þágu almennrar velferðar og menntunar. Alþjóðasamband kennara heldur úti vef um 5. október og á hverju ári er sjónum beint að einu sérstöku málefni þennan dag. Í ár er yfirskriftin „Batinn hefst með kennurum“ sem vísar til þess að kennarinn er miðlægur í félagslegri, hugmyndafræðilegri og efnahagslegri endurreisn samfélagsins eftir kreppu - og einnig eftir náttúruhamfarir og styrjaldir.
Lesa frétt
17. ágú. 2010
Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýjum almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla á vef sínum. Kennarar, foreldrar, skólastjórnendur, nemendur og aðrir sem málið varðar geta sent inn athugasemdir eða umsögn um drögin til 1. október nk. Við hvetjum kennarasamfélagið til að taka þessu boði og hafa áhrif.
Lesa frétt