Mennta- og menningarmálaráðuneytið vill vekja athygli á HringÞingi um menntamál innflytjenda, sem haldið verður föstudaginn 14. september 2012 í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna hér: http://www.tungumalatorg.is/hringthing. Á þinginu gefst kostur á að kynna fyrirmyndarverkefni er tengjast menntamálum innflytjenda á öllum skólastigum. Ráðuneytið hvetur þá sem unnið hafa áhugaverð verkefni til þátttöku. Skráning er á: http://tungumalatorg.is/hringthing/kynningarplass/.
Markmiðið með þinginu er að:
Þátttakendur á þinginu verða fulltrúar innflytjenda, kennarar, stjórnendur og aðrir sem tengjast á einhvern hátt leik-, grunn-, framhalds- og háskólastigi og fullorðinsfræðslu. Einnig stjórnendur og stefnumótandi aðilar hjá ríki og sveitarfélögum sem vinna að mótun og framkvæmd stefnu á ýmsum sviðum menntunar innflytjenda.
HringÞingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og öllum opið. Skólafólk, foreldrar, nemendur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst því fjöldi er takmarkaður.
Nánari upplýsingar um þingið, skráningu o.fl. er að finna hér.
Að HringÞinginu standa Innflytjendaráð, velferðarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hliða, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Fjölmenningarsetur, Tungumálatorg, Háskóli Íslands, Þjónustumiðstöð Breiðholts og Samband íslenskra sveitarfélaga.