Frá og með 1. janúar 2009 greiðir Sjúkrasjóður KÍ út fæðingarstyrki til félagsmanna í stað Fjölskyldu- og styrktarsjóðs áður. Upphæðin er kr. 200.000 (kr. 119.760 eftir skatt) miðað við fullt starf 12 mánuði fyrir fæðingu barns eða samkvæmt meðalstarfshlutfalli þann tíma. Skilyrði er að sjóðfélagi/félagsmaður fari með forsjá barnsins og taki að lágmarki 3ja mánaða fæðingarorlof. Vegna fjölburafæðinga er greidd sama upphæð (kr. 200.000) fyrir hvert barn umfram eitt. Um ættleiðingar gilda sömu reglur. Séu báðir foreldrar félagsmenn geta báðir sótt um fæðingarstyrk.
Útfylla þarf sérstakt eyðublað, sjá eyðublað fyrir neðan. Umsókn skal fylgja:
Fæðingarvottorð eru gefin út af Þjóðskrá. Allar umsóknir sem berast fyrir 20. hvers mánaðar eru afgreiddar í næsta mánuði á eftir. Umsóknir án umbeðinna fylgigagna verða endursendar án afgreiðslu.
Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu eða andvana fæðingu eftir 22 vikna meðgöngu er greiddur út hálfur fæðingarstyrkur.