Félag þýzkukennara hefur frá því 1990 staðið fyrir Þýskuþraut á hverju vormisseri í samvinnu við Goethe Institut í Kaupmannahöfn. Goethe Institut setur reglur vegna þátttöku nemenda í framhaldsskólum. Viðurkenningar eru veittar fyrir 20 bestu úrlausnirnar í þrautinni. Þar af fá tveir þátttakendur 4ra vikna dvöl í Þýskalandi í boði PAD (Pädagogischer Ausstauschdienst Deutschlands). Einn þátttakandi fær 3ja vikna dvöl í "Eurocamp" (í Sachsen-Anhalt) sem eru nokkurs konar sjálfboðaliðabúðir fyrir ungt fólk alls staðar að í Evrópu. Þýska sendiráðið er tengiliður félagsins vegna Eurocamp viðurkenningarinnar.
Hér má skoða síðuna um Eurocamp.
Hér má skoða síðuna um PAD sem er n.k. alþjóðlegt verkefni hjá PAD fyrir nemendur sem þykja skara framúr í þýskunámi.
Afhending viðurkenninga vegna Þýskuþrautarinnar er venjulega í boði sendiherra Þýskalands á Íslandi og er í tíma nálægt fyrsta sumardegi.