Eftir mánuðum

30. des. 2008

Fræðslufundir skólaþróunarsviðs HA

Skólaþróunarsvið hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri stendur fyrir fræðslufundum á yfirstandandi skólaári. Fundirnir eru klukkutíma langir, hefjast kl. 16:30 í Þingvallastræti 23 á Akureyri og eru öllum opnir. Næsti fundur er 15. janúar nk. en þá segir Dagbjört Ásgeirsdóttir frá meistaraprófsverkefni sínu „Þegar tungumálið kemur, þá kemur allt.“
Lesa meira

30. des. 2008

Félagsgjald KÍ lækkar og framlag til Fjölskyldu- og styrktarsjóðs greitt beint til KÍ

Launagreiðendur og félagsmenn, athugið! Þann 1. janúar 2009 lækkar félagsgjald til KÍ úr 1,6% í 1,55% af föstum launum fyrir dagvinnu. Frá og með 1. janúar eiga vinnuveitendur að greiða framlag til Fjölskyldu- og styrktarsjóðs beint til KÍ samanber bréf sem sent var fyrr í þessum mánuði. Vegna nýgerðra kjarasamninga koma leiðréttingar á persónuuppbót leikskólakennara og annaruppbót tónlistarskólakennara.
Lesa meira

29. des. 2008

Lokanir vegna framkvæmda í Kennarahúsi

Félagsmenn athugið! Endurmenntunarsjóðir og sjúkrasjóður verða lokaðir mánudaginn 5. janúar og þriðjudaginn 6. janúar nk. vegna flutninga í tengslum við framkvæmdir í Kennarahúsinu. Einnig má gera ráð fyrir truflunum á símasambandi og annarri þjónustu í húsinu í nokkra daga vegna þessa.
Lesa meira

29. des. 2008

Níu bæklingar komu út á vegum KÍ á árinu sem er að líða

Níu bæklingar útgefnir af KÍ litu dagsins ljós á árinu sem er að líða. Með þessari útgáfu verður ýmislegt efni sem varðar félagsmenn Kennarasambandsins aðgengilegra en verið hefur.
Lesa meira

29. des. 2008

Fimm nýjar greinar í Netlu

Fimm nýjar greinar eru komnar á vef Netlu - veftímarits menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Áskrift að tímaritinu er ókeypis.
Lesa meira

23. des. 2008

GLEÐILEG JÓL!

Kennarasamband Íslands óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Lesa meira

23. des. 2008

Opnunartímar í Kennarahúsinu um jól og áramót og BREYTTUR OPNUNARTÍMI FRÁ 5. JANÚAR

JÓLA OPNUN OG BREYTTUR OPNUNARTÍMI °°°°° JÓLA OPNUN OG BREYTTUR OPNUNARTÍMI
Lesa meira

23. des. 2008

250 þúsund króna framlag í þágu barna og barnafjölskyldna

Fyrir nokkrum árum ákvað stjórn Kennarasambands Íslands að hætta að senda út jólakort en láta þess í stað nokkurt fé af hendi rakna til góðgerðarstarfs í þágu barna sem eiga um sárt að binda vegna veikinda, fátæktar eða af öðrum ástæðum.
Lesa meira

23. des. 2008

Endurskoðuð harmonikunámskrá

Menntamálaráðuneytið hefur endurskoðað kafla um harmoniku í aðalnámskrá tónlistarskóla vegna ábendinga og athugasemda sem ráðuneytinu hefur borist.
Lesa meira

22. des. 2008

Kjarasamningar FL og FT við Launanefnd sveitarfélaga samþykktir

Tónlistarskólakennarar og leikskólakennarar gengu til atkvæðagreiðslu um kjarasamninga nýverið og lauk henni 21. desember. Niðurstöður liggja nú fyrir.
Lesa meira

19. des. 2008

Laun á skrifstofu Kennarasambands Íslands

Vegna umræðu um ofurlaun verkalýðsforystunnar vill undirritaður upplýsa að öll laun á skrifstofu Kennarasambandsins taka mið af kjarasamningum sem Kennarasamband Íslands gerir við viðsemjendur sína.
Lesa meira

17. des. 2008

Framhaldsskólakennarar álykta um fjárveitingar til framhaldsskóla

Nauðsynlegt er að verja menntun og skólastarf fyrir áföllum og við þær erfiðu aðstæður sem eru framundan er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að skólar standi opnir öllum sem þangað vilja leita. Þetta kemur meðal annars fram í ályktun sem Félag framhaldsskólakennara sendi frá sér í dag.
Lesa meira

15. des. 2008

Fyrirlestrar á glærum og upptökum

Hádegisfyrirlestraröð Rannsóknastofu í vinnuvernd (RIV) þessa önnina er lokið en hægt er að nálgast glærur úr fyrirlestrum á heimasíðu RIV (www.riv.hi.is) sem og hlusta á upptökur þeirra.
Lesa meira

12. des. 2008

Atkvæðagreiðslur um framlengingu og breytingar á kjarasamningum FL og FT

Atkvæðagreiðsla um framlengingu og breytingar á kjarasamningum ofangreindra félaga fer fram með rafrænum hætti á netinu.
Lesa meira

11. des. 2008

Kjarasamningar Félags leikskólakennara og Félags tónlistarskólakennara framlengdir

9. desember sl. undirrituðu Félag leikskólakennara og Félag tónlistarskólakennara samkomulag við Launanefnd sveitarfélaga (LN) um framlengingu og breytingar á kjarasamningi leikskólans og tónlistarskólans. Samningunum fylgir yfirlýsing um vilja aðila til þess að leggja sitt af mörkum til að víðtækri sátt um launa- og kjarastefnu til ársins 2010 verði náð.
Lesa meira

4. des. 2008

Ráðstefnan Að marka spor

Um 300 leikskólakennarar sóttu ráðstefnuna Að marka spor sem haldin var 1. desember sl. í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Lesa meira

4. des. 2008

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs - Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna

Útbúnar hafa verið reglur með tilmælum um viðbrögð foreldra og forráðamanna vegna röskunar á skólastarfi vegna óveðurs.
Lesa meira

2. des. 2008

Minnum félagsmenn KÍ á fundinn á morgun: Skólinn og samfélagið

Samstarfshópur á vegum Menntavísindasviðs HÍ, Kennarasambands Íslands og Landlæknisembættisins boðar til fræðslu- og umræðufundar 3. desember nk., milli 16:00 og 18:00. Á fundinum verður fjallað um samfélagsaðstæður, ástæður þeirra og hlutverk skólanna.
Lesa meira

1. des. 2008

Þjónustuaðilar í vinnuvernd

Hægt er að leita aðstoðar vegna áhættumats, forvarna og heilsueflingar á vinnustað hjá viðurkenndum þjónustuaðilum í vinnuvernd.
Lesa meira

1. des. 2008

Niðurstöður úr könnun meðal leikskóla

Könnunin var send út til 262 leikskóla á netinu þann 16. september 2008 og bárust 222 svör fram til 9. október (svarhlutfall 84,7%).
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli