
30. apr. 2008
Stjórnendur í grunnskólum skrifuðu undir sinn fyrsta sjálfstæða samning klukkan þrjú síðdegis í dag. Samningurinn verður kynntur í deildum Skólastjórafélags Íslands (SÍ) í næstu viku og gengið verður til kosninga um hann fyrrihluta maímánaðar.
Lesa meira
29. apr. 2008
Kjarasamningur KÍ (vegna FG) og LN gildir frá 1. júní 2008 til 31. maí 2009. Gengið verður til kosninga um samninginn í fyrri hluta maímánaðar.
Lesa meira29. apr. 2008
Lesa meira28. apr. 2008
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning grunnskólakennara fer fram í fyrri hluta maímánaðar og munu trúnaðarmenn KÍ annast framkvæmdina.
Lesa meira28. apr. 2008
Samninganefndir Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga undirrituðu kjarasamning klukkan hálf tvö í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag. Núverandi samningur rennur út 31. maí nk. og laun grunnskólakennara hækka um 25 þúsund krónur 1. júní.
Lesa meira28. apr. 2008
Félagsmenn í Kennarasambandinu eru hvattir til að fjölmenna í gönguna og í 1. maí kaffi KÍ á Kaffi Reykjavík kl. 15:00. Safnast saman á Hlemmi kl. 13:00. KÍ félagar hittast fyrir framan Kaupþing banka við Hlemm (gamli Búnaðarbankinn) og ganga saman undir fána KÍ. Útifundur á Ingólfstorgi stendur yfir frá kl. 14:10 -15:00.
Lesa meira22. apr. 2008
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands hefur gert samning við Iceland Express um að selja afsláttarávísanir (gjafabréf) með verulegum afslætti í flug á þeirra vegum.
Lesa meira
21. apr. 2008
Ráðstefnan er haldin í þriðja sinn og er ætluð öllum sem vilja fræðast um málaflokkinn og leggja sitt af mörkum til að tryggja öryggi og velferð barna.
Lesa meira
18. apr. 2008
Vinnueftirlitið hefur gefið út í samvinnu við Umhverfisstofnun, Reykjavíkurborg og Kennarasamband Íslands bækling um raddheilsu kennara. Bæklingurinn er unninn af Valdísi J. Jónsdóttur heyrnar- og talmeinafræðingi.
Lesa meira18. apr. 2008
Danssmiðja Íslenska dansflokksins er að þessu sinni í samvinnu við Peter Anderson og ABC barnahjálp og sýna tvö ný dansverk undir heitinu „Í eina sæng“.
Lesa meira18. apr. 2008
Fimmtudaginn 24. apríl er boðið upp á stutt námskeið í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, þar sem sýnt verður hvernig nota má gagnvirkar töflur til stærðfræðikennslu. Einnig verða kynnt forrit til stærðfræðikennslu, einkum Autograph og Geometer's Sketchpad. Rauði þráðurinn á námskeiðinu verður gullna talan phi. Fyrirlesturinn er fyrir alla áhugamenn um stærðfræðikennslu. Sama dag er boðið upp á fyrirlestur og stutt námskeið í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undir heitinu: Nýjungar í kennslufræðum. Hvernig nýta má kennsluaðferð samvinnunáms (Cooperative Learning in Multicultural Groups) eða samvirkt nám í fjölbreyttum nemendahópi við íslenskukennslu. Flutt verður stutt kynning á kennsluaðferðinni og síðan fá þátttakendur að spreyta sig á henni.
Lesa meira
18. apr. 2008
Haldið verður upp á 15 ára afmæli skólahljómsveitar Grafarvogs með veglegum tónleikum í Rimaskóla sunnudaginn 20. apríl kl. 15:00. Einnig verður gefinn út geisladiskur í tilefni afmælisins.
Lesa meira18. apr. 2008
Þorvaldur Gylfason prófessor sagði í erindi sem hann hélt á þingi Kennarasambandsins að áhrif menntunar á hagsæld í þjóðfélaginu væru óvéfengjanleg. Þorvaldur ræddi og sýndi með glærum samanburð á launum og kaupmætti um víðan heim og varð eðlilega mjög tíðrætt um gildi menntunar en ekki síður um kosti og galla hinna mismunandi rekstrarforma skóla.
Lesa meira17. apr. 2008
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ávarpaði þing Kennarasambands Íslands og sagði í upphafi að kennarar beindu nú eðlilega sjónum sínum í auknu mæli að kennaralaunum og skólastarfi. Ráðherra sagði undanfarin ár hafa verið annasöm í ráðuneyti mennta, menningar og vísinda. Á öllum þessum sviðum hafi verið lögð áhersla á stefnumörkun og skipulagslegar endurbætur. Þessi vinna tengdist eðlilega breytingum sem orðið hafa á samfélaginu og munu verða á komandi árum. Á sviði menntamála hafi markvisst verið unnið að nýrri menntastefnu og endurskoðun skólakerfisins í takt við örar samfélagsbreytingar. Stefnt er að fjölþættari tækifærum til menntunar, samfellu í skólastarfi og auknum sveigjanleika í menntakerfinu.
Lesa meira17. apr. 2008
Skólaárið 2007-2008 var í fyrsta sinn í boði námskeið sem metið er til eininga á MA stigi. Námið er hugsað sem hvatning til kennara að auka menntun sína og afla sér hærri prófgráðu. Skólaárið 2008-2009 verður námskeiðið „Að vanda til námsmats“ í boði.
Lesa meira17. apr. 2008
Dagana 22. - 23. maí verður haldin ráðstefna í Kaupmannahöfn fyrir kennara/leiðbeinendur í sí- og endurmenntun, fræðslustjóra fyrirtækja, stjórnendur og verkefnastjóra fræðslumála og aðra áhugasama um menntun og fræðslumál. Viðfangsefni ráðstefnunnar er skipulag náms.
Lesa meira
17. apr. 2008
Þriðjudaginn 22. apríl 2008 verður haldinn fundur í BRÚ, umræðuvettvangi um skólamál, í salnum að Fríkirkjuvegi 1, á milli 16:00 og 18:00.
Lesa meira17. apr. 2008
Fyrirlestur Fannýjar Jónsdóttur verður miðvikudaginn 23. apríl kl. 16:00, en ekki á þriðjudaginn 15. apríl eins og auglýst hefur verið.
Lesa meira
16. apr. 2008
Umsóknarfrestur er til 25. apríl.
Lesa meira
16. apr. 2008
Umsóknarfrestur rennur út 2. maí.
Lesa meira15. apr. 2008
Japönsk stjórnvöld bjóða þrjá styrki til námsheimsókna til Japans til þess að kynnast menntakerfi, menningu og þjóðfélagsmálum. Styrkirnir eru ætlaðir framhaldsskólakennurum og kennurum í 8. - 10. bekk grunnskólans. Heimsóknin stendur í 14 daga og er gert ráð fyrir 214 þátttakendum frá 58 löndum. Lögð er áhersla á að allir, sem koma að heimsókninni, bæði gestir og heimamenn, séu vel mælandi á ensku. Námskeiðið, sem um ræðir, stendur frá 19. júní - 2. júlí næstkomandi. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2008.
Lesa meira15. apr. 2008
Lesa meira15. apr. 2008
Helgina 18-20. apríl n.k. mun Busli, félag ungbarnasundkennara, standa fyrir leiðbeinandanámskeiði í ungbarnasundi. Þetta er 20 stunda helgarnámskeið þar sem starfandi ungbarnasundkennarar, læknar og aðrir fróðir sjá um kennslu.
Lesa meira11. apr. 2008
Lesa meira
10. apr. 2008
Hér er hægt að nálgast setningarávarp Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á 4. þingi KÍ sem sett var 9. apríl sl.
Lesa meira10. apr. 2008
Thulas Waltermade Nxesi, forseti Alþjóðasambands kennara, Education International (EI), er heiðursgestur á 4. þingi KÍ sem nú fer fram á Grand hóteli. Aðild að Alþjóðasambandi kennara eiga 394 kennarasamtök í 171 landi og eru félagsmenn þeirra alls um 30 milljónir og starfa þeir á öllum skólastigum frá leikskóla til háskóla. Ekki eru kennara í öllum löndum aðilar að Education International, m.a. ekki í stærsta ríki heims, Kína, þar sem talið er að séu um 10 milljón kennarar.
Lesa meira10. apr. 2008
Meðalgrunnlaun framhaldsskólakennara í október 2007 voru 295 þúsund krónur en 405 þúsund með yfirvinnu. Meðalgrunnlaun leikskólakennara voru 261 þúsund krónur á sama tíma en meðalheildarlaun þeirra 297 þúsund krónur. Meðaltal grunnlauna tónlistarskólakennara voru 291 þúsund krónur en meðalheildarlaun þeirra 331 þúsund krónur. Meðalgrunn- og heildarlaun grunnskólakennara voru lægst meðal aðildarfélaga KÍ, grunnlaunin voru 242 þúsund krónur en heildarlaunin 285 þúsund krónur. Þetta kemur m.a. fram í kjarakönnun, sem Capacent Gallup gerði fyrir Kennarasamband Íslands og kynnt var á kennaraþinginu.
Lesa meira10. apr. 2008
Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga flutti ávarp fyrir hönd Halldórs Halldórssonar formanns SÍS á 4. þingi Kennarasambands Íslands.
Lesa meira10. apr. 2008
Svanhildur Kaaber, fyrrverandi formaður og nú starfsmaður Kennaháskólans, sagði það nú vera sameiginlegt verkefni Kennaraháskóla Íslands og Kennarasambands Íslands að minnast þess að öld væri senn liðin síðan kennaramenntun hófst í landinu.
Lesa meira9. apr. 2008
4. þing Kennarasambands Íslands sett í dag.
Lesa meira
9. apr. 2008
Thulas Waltermade NXESI, forseti Alþjóðasambands kennara (Education International ) og framkvæmdastjóri Kennarasambands Suður- Afríku (SADTU), verður heiðursgestur á fjórða þingi Kennarasambands Íslands sem haldið verður á Grand hóteli Reykjavík dagana 9. - 11. apríl 2008. Hann mun ávarpa þingið við setningu þess. Aðild að Alþjóðasambandi kennara eiga 394 kennarasamtök í 171 landi og eru félagsmenn þeirra alls um 30 milljónir og starfa þeir á öllum skólastigum frá leikskóla til háskóla.
Lesa meira9. apr. 2008
Á 4. þingi KÍ verða starfandi sex málstofur fimmtudaginn 10. apríl kl. 10:45 – 12:15 þar sem ýmis mikilvæg málefni sem tengjast skólastarfi og málefnum kennara, skólastjórnenda og námsráðgjafa verða á dagskrá.
Lesa meira9. apr. 2008
Ath. að dagskrá þings er lítillega breytt.
Lesa meira
9. apr. 2008
Kennarahúsið lokar kl. 13:00 í dag, miðvikudaginn 9. apríl 2008 vegna þings Kennarasambandsins. Opnum aftur á morgun, fimmtudaginn 10. apríl kl. 13:00.
Lesa meira8. apr. 2008
Laugardaginn 12. apríl verður námskeið á vegum tónmenntakennarafélagsins. Það verður haldið í Seljaskóla frá klukkan 10-12 og 13-16 og er námskeiðsgjald 10.000,- krónur. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru þær stöllur Þórdís Heiða og Hildur Guðný.
Lesa meira8. apr. 2008
Kennarar – ekki missa af síðasta þætti í útvarpsþáttaröðinni „Að rækta fólk“ sem fjallar um kennara og kennarastarfið fyrr og nú frá ýmsum hliðum. Þættirnir eru í umsjón Önnu Margrétar Sigurðardóttur og Leifs Haukssonar og sá sjötti og síðasti er á Rás 1 kl. 14:40 á laugardaginn kemur, 12. apríl.
Lesa meira
8. apr. 2008
Þann 9. maí nk. stendur Lýðheilsustöð fyrir ráðstefnunni SKÓLI OG LÝÐHEILSA. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Nordica frá kl. 8:30-16:30.
Lesa meira7. apr. 2008
Þorsteinn Helgason dósent við Kennaraháskóla Íslands heldur fyrirlestur um kennslubækur miðvikudaginn 9. apríl, kl. 16-17 í Bratta í KHÍ. Hugmyndir um „kennslubókastýrða kennslu“ verða kannaðar og ýmsum spurningum velt upp.
Lesa meira3. apr. 2008
Ráðstefna um starfendarannsóknir verður haldin þann 4. apríl 2008 kl. 13:00-17:00 í Borgarholtsskóla - ENN ER HÆGT AÐ SKRÁ SIG!
Lesa meira
2. apr. 2008
Af því tilefni verður opið hús að Háaleitisbraut 13, á skrifstofu samtakanna 3. hæð og í fræðslusal á 4. hæð, milli kl. 15 og 18. Fyrirlestur Dr. Urðar Njarðvík sálfræðings um kvíða og líðan barna með ADHD er kl. 16:00.
Lesa meira
2. apr. 2008
Föstudaginn 4. apríl nk. munu Bókasafn Háskólans á Akureyri, kennaradeild HA og 3f, standa fyrir fræðslufundi um upplýsingatækni í skólastarfi.
Lesa meira