Eftir mánuðum

14. júl. 2008

Kennarahúsið verður lokað frá 14. júlí til og með 1. ágúst

Við opnum aftur eftir verslunarmannahelgi, þriðjudaginn 5. ágúst. Þeir sem þurfa að ná sambandi við Orlofssjóð meðan á sumarlokun stendur geta hringt í síma 899 5931 eftir hádegi eða sent tölvupóst á orlof hjá ki.is.
Lesa meira

10. júl. 2008

Kjarasamningur framhaldsskólans samþykktur

Samningurinn var samþykktur með rösklega 74 % atkvæða. 22,4 % greiddu atkvæði á móti samningnum.
Lesa meira

1. júl. 2008

Atkvæðagreiðsla félagsmanna KÍ í framhaldsskólum um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi fyrir framhaldsskóla

Hægt er að koma atkvæðum til Kjörstjórnar KÍ, Kennarahúsinu, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík, allt fram til 10. júlí.
Lesa meira

1. júl. 2008

Dr. Lasse Savola í Kastljósi: Kennarar eiga að fá hærri laun og meira frelsi til að nota þær kennsluaðferðir sem þeim fellur best

Einstaklingsmiðað nám er góð hugmynd en slælega framkvæmd. Ekki er borin næg virðing fyrir kennurum hérlendis og það háir skólastarfi. Sums staðar ráða nemendur of miklu um heimanám sitt. Þetta kom meðal annars fram í Kastljóssviðtali í gær við dr. Lasse Savola sem kennir kennslufræði stærðfræði við Háskólann í Reykjavík.
Lesa meira

1. júl. 2008

Lögverndun starfsheitis leikskólakennara tekur gildi í dag

Ný lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla öðlast gildi í dag, 1. júlí 2008. Lögin fela í sér lengingu kennaramenntunar í fimm ár og lögverndun starfsheitis leikskólakennara. Af þessu tilefni birtir Félag leikskólakennara heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu þar sem leikskólakennurum er óskað til hamingju með daginn.
Lesa meira

1. júl. 2008

Kennaraháskólinn og HÍ sameinast í dag

Kennaraháskóli Íslands og Háskóli Íslands sameinast formlega í dag undir heiti Háskóla Íslands. Um leið tekur gildi nýtt skipulag þar sem HÍ er skipt í fimm fræðasvið: Menntavísindasvið, félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið, hugvísindasvið og verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli