Eftir mánuðum

30. des. 2009

Apríl úthlutun

Fyrsta janúar opnar fyrir úthlutun í apríl og þar á meðal um páskana.
Lesa meira

29. des. 2009

Listmenntun á Íslandi

Menntamálaráðuneytið birti nýverið skýrslu um niðurstöður rannsóknar dr. Anne Bamford á listmenntun á Íslandi. Skýrslan ber yfirskriftina: Arts and Cultural Education in Iceland. Anne Bamford var aðalfyrirlesari á árlegu Rannsóknamálþingi menntavísindasviðs Háskóla Íslands árið 2008 og sótti heim um fjörutíu skóla ásamt Jóni Hrólfi Sigurjónssyni verkefnisstjóra.
Lesa meira

29. des. 2009

Steina- og skeljasafn Kennarasambandsins óskar eftir tilsjónarmanni

Steina- og skeljasafn Ara Stefánssonar sem er í eigu KÍ er staðsett í anddyri Kennarahússins á Laufásvegi eins og mörgum – ef ekki flestum – félagsmönnum er kunnugt. Safnið er í ólestri og þarfnast sárlega tilsjónarmanns sem þekkir til steina og skelja og er reiðubúinn að leggja fram krafta sína til að koma skikki á það. Er ekki einhver áhugasamur um verkið? Ef svo er, þá hafið sambandi við Erlu í móttöku Kennarahússins í síma 595 1111. Þetta er merkilegt safn og mun veita fólki ánægju ef það kemst undir læknishendur.
Lesa meira

29. des. 2009

Áramótalokun

Kennarahúsið verður lokað frá og með 31. desember. Við opnum aftur mánudaginn 4. janúar.
Lesa meira

18. des. 2009

Jólalokun

Kennarahúsið verður lokað frá og með 23. desember. Opnum aftur þriðjudaginn 29. desember.
Lesa meira

17. des. 2009

Breytingar á úthlutun í A deild hjá Vísindasjóði FL

Frá og með 1. janúar 2010 taka í gildi breytingar á úthlutun í A-deild Vísindasjóðs FL vegna kynnisferða hópa (leikskóla eða stofnunar). Hópstyrkur hækkar úr 70 þúsund krónum í 95 þúsund krónur.
Lesa meira

17. des. 2009

Fyrsti doktorinn úr hópi leikskólakennara sem útskrifast frá hérlendum háskóla

Þann 15. desember sl. fór fram doktorsvörn við uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Anna Magnea Hreinsdóttir, fyrsti leikskólakennarinn sem útskrifast sem doktor frá Menntavísindasviði, varði doktorsritgerð sína „Af því að við erum börn “: Lýðræðislegt umræðumat á menntun barna og þjónustu fjögurra íslenskra leikskóla / “Because we are children”: A deliberative democratic evaluation of education and services in four preschools in Iceland.
Lesa meira

16. des. 2009

KÍ styður Hjálparstarf kirkjunnar

Kennarasamband Íslands hefur undanfarin ár styrkt góðgerðarfélög og -samtök í stað þess að senda jólakort til samstarfsaðila. Stjórn Kennarasambandsins ákvað á fundi sínum þann 11. desember sl. að styðja Hjálparstarf kirkjunnar með þrjú hundruð þúsund króna framlagi fyrir þessi jól. Féð rennur til aðstoðar innanlands.
Lesa meira

14. des. 2009

Skorað á menntamálaráðherra

Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á menntamálaráðherra að forgangsraða í þágu menntunar og standa vörð um þá lágmarksþjónustu sem börnum og unglingum er tryggð með núverandi lögum. Þá varar hún við hugmyndum Sambands íslenskra sveitarfélaga um áframhaldandi stórfellan niðurskurð í skólakerfinu. Þetta kemur meðal annars fram í ályktun sem stjórnin sendi frá sér 11. desember sl.
Lesa meira

10. des. 2009

Forgangsröðun í þágu barna og menntunar

Á fundi stjórnar Félags leikskólakennara þann 9. desember 2009 voru til umræðu efnahagsmál þjóðarinnar og áhrif niðurskurðar í leikskólum á gæði leikskólastarfs og menntun leikskólabarna. Fundurinn sendi frá sér ályktun þar sem ítrekað er að ekki sé hægt að ganga lengra í niðurskurði og það sé mikill tvískinnungur að halda því fram að hægt sé að halda uppi fullri þjónustu og gæðum með áframhaldandi niðurskurði. Í ályktuninni er bent á hversu góðærið var magurt fyrir leikskóla og ávinningur þess að hafa nú vel mannaða skóla hverfi vegna niðurskurðar. Foreldrar eru áhyggjufullir eins og kennarar enda sýnt og sannað af reynslu annarra þjóða að í þrengingum er fátt, ef nokkuð, mikilvægara en öruggt og öflugt skólakerfi.
Lesa meira

10. des. 2009

Kompás virkjar börn og ungmenni í mannréttindabaráttu

KOMPÁS – handbók í mannréttindafræðslu var kynnt á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í gær, 9. desember. Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Námsgagnastofnun hafa látið þýða og gefa út þessa bók sem kom fyrst út hjá Evrópuráðinu árið 2002 og er nú fáanleg á 28 tungumálum. KOMPAS er handbók í mannréttindafræðslu sem er ætluð þeim sem starfa í skólum eða með börnum og unglingum á vettvangi félags-, æskulýðs- og tómstundastarfs. Bókin nýtist fagfólki, forystufólki í félagsstarfi og sjálfboðaliðum.
Lesa meira

9. des. 2009

Við minnum á umræðufund í dag um TALIS: Hvaða þættir hafa áhrif á starfsþróun kennara og löngun þeirra til meiri starfsþróunar?

Umræðufundur Námsmatsstofnunar um TALIS rannsóknina verður haldinn í dag klukkan 13:30 til 15:00 í fundarsal Námsmatsstofnunar, Borgartúni 7A.
Lesa meira

7. des. 2009

Streita og líðan á vinnustað

Vissir þú að því hefur verið haldið fram að allt að þriðjungur kennara þjáist af mikilli streitu og/eða kulnun? Streita og vanlíðan starfsfólks hefur áhrif á vinnustaðinn í heild og hefur áhrif á einstaka starfsmenn, líðan þeirra og vinnuframlag. Í vinnuumhverfisbólu desembermánaðar er fjallað um streitu og líðan á vinnustað, hvernig meta megi stöðuna og taka á málum. Þar með lýkur umfjöllun um heilsueflingu á vinnustöðum sem var þema Vinnuumhverfisnefndar KÍ á haustönn 2009 en þema næstu annar verður „Vinnuumhverfið - hljóð, rödd, loft og lýsing“.
Lesa meira

4. des. 2009

Fræðsla um ADHD fyrir grunnskóla

Kennarar athugið. Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur fer með tveggja klst. fræðslupakka um ADHD inn í grunnskóla og á frístundaheimili.
Lesa meira

4. des. 2009

Starfsendurhæfing á vinnumarkaði

Öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda hér á landi ákváðu að semja um stofnun og starfsemi Starfsendurhæfingarsjóðs í kjarasamningum á árinu 2008. Markmiðið var (og er) að stuðla að breyttum vinnubrögðum í þessum málaflokki og tryggja aukna þjónustu við einstaklinga sem búa við heilsubrest af einhverjum toga. Samtök launamanna hafa í gegnum tíðina gegnt mikilvægu hlutverki við að byggja upp það velferðarkerfi sem við búum við í dag og stór hluti þess hérlendis er til staðar vegna samstarfs verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda. Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er m.a. að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu starfsendurhæfingar og öðrum úrræðum. Sjóðurinn hefur einnig það hlutverk að styðja við rannsóknir og þróun á sviði starfsendurhæfingar og efla þekkingu og reynslu á þessu sviði.
Lesa meira

4. des. 2009

Minni niðurskurður til menntamála í Reykjavík en óttast var

Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 var lagt fram við fyrstu umræðu á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær. Í frétt á heimasíðu borgarinnar kemur fram að gert er ráð fyrir að Menntasvið, Leikskólasvið og Íþrótta- og tómstundasvið hagræði einungis um 4% en skattar og gjöld á grunnþjónustu verði ekki hækkað, náms- og fæðisgjöld í leikskólum verða óbreytt,100% systkinaafsláttur verður áfram í gildi, verð á skólamáltíðum í grunnskólum hækkar ekki og gjaldskrár frístundaheimila verða óbreyttar. Hagræða þarf í rekstri Reykjavíkur um 3,3 milljarða króna á næsta ári og með aðhaldi í ráðningum og launaútgjöldum er ætlunin að ná fram 19% niðurskurðarins, eða 651 milljón.
Lesa meira

3. des. 2009

Fundaröð Námsmatsstofnunar um niðurstöður TALIS rannsóknarinnar

KÍ vekur athygli félagsmanna sinna á umræðufundum um TALIS rannsóknina sem Námsmatsstofnun heldur í fundarsal sínum í Borgartúni 7 A í Reykjavík. Fyrsti fundurinn var haldinn miðvikudaginn 2. desember, næsti fundur verður miðvikudaginn 9. desember kl. 13:30-15:00 og fjallar sá um starfsþróun kennara.
Lesa meira

2. des. 2009

FG ályktar gegn niðurskurði

Stjórn Félags grunnskólakennara ályktaði rétt í þessu gegn frekari niðurskurði og áformum um slíkt í grunnskólum landsins. Bent er á að niðurskurður sé nú þegar orðinn verulegur og þrátt fyrir að mörg sveitarfélög nýti ekki útsvarsheimildir sínar að fullu krefjist þau engu að síður enn frekari niðurskurðar á kennslu og menntun grunnskólabarna.
Lesa meira

1. des. 2009

Barnvænt samfélag - málþing haldið 10. nóvember sl.

Félag leikskólakennara, Heimili og skóli og Samtök atvinnulífsins héldu málþing um barnvænt samfélag á Grand Hótel þriðjudaginn 10. nóvember 2009 kl. 8:00 – 11:00. Frummælendur voru: Sæunn Kjartansdóttir höfundur bókarinnar „Árin sem engin man“, Ragnhildur Sverrisdóttir foreldri, Arnar Yngvason leikskólakennari, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður leikskólaráðs Reykjavíkur og Svali Björgvinsson starfsmannastjóri Icelandair.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli