31. mar. 2009
Fimmtudaginn 2. apríl frá kl. 16.00-18.00 munu kennarar og nemendur kynna meistara- og doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (fyrrum Kennaraháskóla Íslands) skólaárið 2009-2010. Kynningin fer fram í Skála í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Lesa meira
30. mar. 2009
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2009. Umsóknum ásamt prófskírteinum úr háskólanámi og upplýsingum um starfsferil og upplýsingum um áformað nám, skal skila til Blindrafélagsins Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík merktum „Menntunarsjóður til blindrakennslu“.
Lesa meira
27. mar. 2009
Vinnuumhverfisbóla aprílmánaðar er rauð og fjallar um siðareglur kennara og hvað þær segja um góðan starfsanda á vinnustað.
Lesa meira27. mar. 2009
Háskólinn á Akureyri stendur fyrir ráðstefnu 8. og 9. maí nk. Á ráðstefnunni verða kynntar fjölbreytilegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. Ráðstefnunni er ætlað að skapa umræðuvettvang þjóðfélagsfræðinga sem starfa í háskólum, framhaldsskólum og við rannsóknir á öðrum vettvangi. Jafnframt mun ráðstefnan gefa nemendum á háskóla- og framhaldsskólastigi kost á því að kynnast og taka þátt í fræðastarfi þjóðfélagsfræðinnar.
Lesa meira23. mar. 2009
Námskeið um útiskóla verður haldið í Bergen og nágrenni 8.-12. júní.
Lesa meira
19. mar. 2009
Ársþing Samtaka fámennra skóla 2009 verður haldið í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit laugardaginn 9. maí nk og hefst kl 13:30. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: „Menntun á tímum uppgjörs og endurnýjunar: Samtök fámennra skóla 20 ára.“
Lesa meira
17. mar. 2009
Vegna flutninga má búast við einhverri truflun á símsvörun og annarri starfsemi í Kennarahúsinu frá miðvikudegi til föstudags, þ.á.m. starfsemi sjóða. Öll þjónusta og afgreiðsla færist í samt horf nk. mánudag.
Lesa meira
17. mar. 2009
Þann 12. og 13. mars sl. voru haldnir ársfundir Kennarasambandsins, skólamálaráðs og aðildarfélaga leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Auk hefðbundinna ársfundastarfa voru góðir gestir víða að úr samfélaginu fengnir til að flytja erindi um framkvæmd nýrra menntalaga, kjaramál, lífeyrismál, horfur í skólamálum næstu ár, hinn nýlega starfsendurhæfingarsjóð sem KÍ á aðild að og margt fleira.
Lesa meira
17. mar. 2009
Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara sem haldinn var 12. mars sl. samþykkti ályktun með heitinu: „Stöndum vörð um menntun og skólastarf!“ Þar er meðal annars bent á að niðurskurður bitnar oft þyngst á þeim sem minnst mega sín. Þá er nefnt mikilvægi þess að framhaldsskólar geti opnað dyrnar fyrir öllum þeim sem vilja bæta menntun sína og styrkja hæfni sína og stöðu á vinnumarkaði.
Lesa meira16. mar. 2009
Dr. Jeff Orr, yfirmaður kennaradeildarinnar við St. Francis Xavier University í Nova Scotia í Kanada, heldur fyrirlestur á Menntavísindasviði fimmtudaginn 19. mars næstkomandi.
Lesa meira
16. mar. 2009
Orlofssjóður hefur gert samninga um sölu afsláttarávísana við þrjá aðila til viðbótar þeim sem auglýst voru í nýútkomnu Ferðablaði sjóðsins.
Lesa meira
10. mar. 2009
Kennarasamband Íslands hefur ákveðið að senda ekki afrit launamiða heim til félagsmanna. Þetta á við launamiða sjúkrasjóðs og endurmenntunarsjóða aðildarfélaganna. Launamiðar hafa verið sendir rafrænt til skattstjóra og allar upphæðir eru forskráðar á framtöl þeirra sem fengið hafa greiðslur úr sjóðum KÍ.
Lesa meira
10. mar. 2009
Sjöundi ársfundur FG verður haldinn fimmtudaginn 12. mars á Hótel Loftleiðum í Reykjavík.
Lesa meira
10. mar. 2009
Fimmtudaginn 12. mars verður fulltrúafundur FF haldinn í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Fulltrúafundurinn stendur frá 9:00 til 15:45.
Lesa meira
10. mar. 2009
Ársfundur FL verður haldinn 12. mars nk. á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Samkvæmt lögum FL skal boða til ársfundar þau ár sem ekki er aðalfundur. Á ársfundi skal m.a. fjalla um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram.
Lesa meira
6. mar. 2009
Félagsmenn athugið! Kennarahúsið verður lokað á föstudag og mánudag, 6. og 9. mars vegna framkvæmda á 1. hæð hússins. Skrifstofan opnar aftur kl. 9, þriðjudaginn 10. mars.
Lesa meira6. mar. 2009
Samtök tyrknesk-kýpverskra kennara, KTÖS, hafa útbúið veggspjald í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti þann 8. mars.
Lesa meira
5. mar. 2009
Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn sem eru staddir á höfuðborgarsvæðinu um helgina til að taka þátt í dagskrá 8. mars.
Lesa meira
4. mar. 2009
Ferðaskrifstofan Vesturheimur sf skipuleggur heimsóknir í skóla og menningarstofnanir í Manitoba í Kanada.
Lesa meira