29. maí 2009
Núna er fundað í Karphúsinu en fátt fréttnæmt. Hins vegar hefur verið boðaður fundur næsta þriðjudag þar sem hittast stjórn Kennarasambandsins, stjórnir aðildarfélaga KÍ og samninganefndir þeirra. Þrennt verður tekið fyrir á fundinum: 1. Farið yfir helstu atriði sem rætt er um í Karphúsinu og með ráðherrum ríkisstjórnar. 2. Nokkrar tölfræðilegar upplýsingar. 3. Umræður og, eftir atvikum, ákvarðanir um næstu skref.
Lesa meira
28. maí 2009
Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur um þróun háskóla þriðjudaginn 2. júní kl. 16.00. Í fyrirlestrinum mun Jón Torfi reifa ýmis atriði sem einkennt hafa þróun háskóla á Vesturlöndum, m.a. í ljósi fyrri verka hans um þetta efni, og ýmis álita- og átakamál sem henni fylgja. Jón Torfi telur mikilvægt að háskólafólk taki virkan þátt í mótun háskólanna og mun hann varpa fram nokkrum spurningum til fundargesta, m.a. með hliðsjón af umræðunni að undanförnu um skipan háskólamála hér á landi.
Lesa meira28. maí 2009
Byrjendanámskeið fyrir leikskólakennara í eTwinning verður haldið 10. júní 2008 á Háskólatorgi (við hliðina á aðalbyggingu HÍ). Námskeiðið hefst stundvíslega kl 8:30 og stendur til 12:00. Ekkert þátttökugjald.
Lesa meira27. maí 2009
Skólastjórafélag Suðurlands hvetur til þess að haft verði víðtækt samráð við stjórnendur grunnskóla í þeirri vinnu grunnskólayfirvalda í sveitarfélögunum sem framundan er við að ná fram sparnaði í rekstrarútgjöldum á grunnskólastiginu. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið samþykkti á vorfundi sínum þann 22. maí sl. Ennfremur segir að það sé afar óheppilegt að velja eina miðstýrða leið til niðurskurðar, mjög gætilega verði að fara í að skerða þjónustu sem grunnskólinn veiti og það verði að skoða út frá forsendum hvers og eins skóla og í samráði við stjórnendur.
Lesa meira27. maí 2009
Alþjóðleg nefnd skipuð sérfræðingum frá OECD og úr finnska menntamálageiranum auk fleiri kallar eftir því að athafnir fylgi orðagjálfri og öll ráðuneyti og stjórnmálaflokkar forgangsraði í þágu menntunar. Ennfremur að ráðamenn átti sig á að niðurskurður geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð Íslands. Sjaldgæft er að heyra talað jafn tæpitungulaust hjá stjórnskipaðri nefnd og hér er gert og hlýtur að verða til þess að fólk átti sig á alvöru málsins.
Lesa meira26. maí 2009
Umboðsmaður barna hvetur menntamálaráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga til að íhuga málið vel áður en ráðist er í að fækka kennsludögum í grunnskólum. Mikilvægt sé að hagsmunir barna séu ávallt hafðir í fyrirrúmi og börnum hlíft við hvers kyns niðurskurði sem sveitarfélögin standa frammi fyrir. Þetta kemur fram í bréfi umboðsmanns en hann er sem kunnugt er opinber talsmaður allra barna á Íslandi. Í bréfinu ítrekar umboðsmaður að börn og ungmenni eru viðkvæmur þjóðfélagshópur sem þarfnast sérstakrar verndar og umönnunar umfram aðra þjóðfélagsþegna.
Lesa meira26. maí 2009
Miðvikudaginn 27. maí verður efnt til námstefnu um námsmat í framhaldsskólum í Skriðu, aðalfyrirlestrasal Menntavísindasviðs Háskóla Íslands frá kl. 9.00-16.30. Á námstefnunni verða flutt fjölmörg erindi um námsmatsaðferðir og stöðu námsmats í framhaldsskólum. Námstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Lesa meira25. maí 2009
Í frétt á Vísi.is í dag kemur fram að menntamálaráðherra hyggist ekki fara gegn vilja kennara, en Kennarasambandið hefur lagst gegn hugmyndum Sambands íslenskra sveitarfélaga um fækkun skóladaga í grunnskólum.
Lesa meira25. maí 2009
Föstudaginn 22. maí voru haldnir fundir í vinnuhópum sem tengjast endurskoðun og gerð kjarasamninga. Fulltrúar KÍ í hópunum lögðu fram yfirlýsingu (sjá frétt dags. 22. maí) frá Kennarasambandi Íslands þar sem sett eru fram skilyrði fyrir áframhaldandi þátttöku KÍ í samflotinu. Vikuna 25. til 29. maí verður áfram fundað í hópum og reynt að ná utan um þau verkefni sem hópunum er ætlað að vinna.
Lesa meira22. maí 2009
Fulltrúar KÍ í viðræðum aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, sem nú standa yfir, lögðu fram yfirlýsingu á fundi aðila í dag. Yfirlýsingin er lögð fram í ljósi frétta og viðtala um að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti nú öllum ráðum til að fá stjórnvöld til að breyta grunnskólalögum með það að markmiði að skerða laun um 5%. Fulltrúar KÍ telja ekki heiðarlegt að sitja við samningaborð og leita sameiginlegra lausna meðan einn aðili þess samráðs nýtir tímann til að fá löggjafann í lið með sér í tilraunum sínum til að skerða kjör.
Lesa meira22. maí 2009
Ný samningafrétt er komin inn undir samningafréttabóluna.
Lesa meira
20. maí 2009
Svo virðist sem orðið „niðurskurður“ njóti ekki bara lítilla vinsælda hjá þeim sem verða fyrir honum heldur ekki síður þeim sem halda á hnífnum. Mikið er rætt um hagræðingaraðgerðir í skólamálum en menn setur hljóða ef minnst er á niðurskurð. Engu að síður er víða niðurskurður og tíðum illa grundaður. Á fundi menntaráðs þann 13. maí var til dæmis borin fram tillaga um samráð við skólaráð um niðurskurð. Hún var samþykkt með þeirri breytingu að í stað hins uggvænlega niðurskurðar komu orðin árleg starfsáætlun og rekstraráætlun.
Lesa meira
20. maí 2009
Mikilvægt er að félagsmenn geti fylgst jafnóðum með samningamálum. Þar ber að nefna helstu fundi í samflotinu (sjá nánar í samningabólu), einnig fundi og annað samstarf samningsaðila hjá hinu opinbera , fundi innan KÍ og fleira. Hér er safnað saman samningafréttum og þær birtar sem sk. samningabólur, samsvarandi bólum um vinnuumhverfismál sem birtar eru mánaðarlega. Samningabólurnar eru jafnframt settar undir liðinn Kennarinn og kreppan hægra megin á síðunni. Við vonum að þetta mælist vel fyrir. Hér er fyrsta samningabólan.
Lesa meira
20. maí 2009
Áfram er fundað um stöðugleikasáttmálann í Karphúsinu í dag og fulltrúar á vinnumarkaði vinna hörðum höndum, í samráði við ríkisstjórnina, að því að slíkur sáttmáli líti dagsins ljós hið fyrsta. KÍ fer með eftirfarandi áhersluatriði inn í þessar mikilvægu samningaviðræður.
Lesa meira18. maí 2009
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara býður upp á vettvangsnám fyrir verkmenntakennara og raungreinakennara í framhaldsskólum næsta vetur. Fyrirkomulag námskeiðsins er þannig að kennt er í fjórum lotum yfir veturinn á helgarnámskeiðum. Gert er ráð fyrir tveimur lotum á haustönn og tveimur á vorönn. Viðfangsefni og fyrirlestrar eru valin í samráði við þátttakendur en gert er ráð fyrir því að starfendarannsóknir verða kynntar svo og hugmyndir að námsmati, einkum leiðbeinandi mati og matskvörðum því tengdu. Allir þátttakendur gera litla starfendarannsókn þar sem kennarinn skoðar eigin kennslu í þeim tilgangi að bæta nám nemenda. Umsóknarfrestur er til 10. júní nk.
Lesa meira
13. maí 2009
Tónlistarhátíð unga fólksins verður haldin í annað skipti dagana 4. - 16. ágúst 2009 í Salnum í Kópavogi. Ætlun okkar er að skapa vettvang þar sem tónlistarnemendur á hinum ýmsu stigum náms geta komið saman og lært af frábærum listamönnum.
Lesa meira13. maí 2009
Í dag, miðvikudaginn 13. maí, er félagsfundur 1. og 2. deildar FL. Fundurinn hefst kl. 18:00 og verður hann sendur út á vefnum.
Lesa meira
12. maí 2009
Þann 1. júní verður greidd út annar- eða orlofsuppbót.
Lesa meira
12. maí 2009
Á tuttugu ára afmæli Samtaka fámennra skóla sl. laugardag var ákveðið að leggja samtökin niður. Um tuttugu manns víðs vegar að af landinu mættu á afmælisstefnu og aðalfund SFS í Stórutjarnaskóla þar sem Ólafur Arngrímsson og samstarfsmenn hans tóku vel á móti fólki með góðum viðurgerningi í fallegu umhverfi. Fluttir voru fyrirlestrar um skólamál í fámennum byggðum og að því loknu hófst aðalfundur en fyrir honum lá meðal annars stjórnartillaga um að leggja samtökin niður.
Lesa meira
12. maí 2009
Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun verður haldin föstudaginn 5. júní í tengslum við stóra leikskóladaginn í Reykjavík. Stóri leikskóladagurinn verður svo haldinn laugardaginn 6. júní.
Lesa meira11. maí 2009
Kennarasamband Íslands hvetur félagsmenn sína til að nýta sér áður auglýsta símaráðgjöf sálfræðinga. Ráðgjöfin verður í boði út maí og hægt er að leita til sálfræðinganna af jafnt faglegum sem persónulegum ástæðum. Viðtalstímar hjá Hugo Þórissyni eru á þriðjudögum milli 16 og 18 og hjá Þórkötlu Aðalsteinsdóttur á fimmtudögum milli 15 og 17. Upplýsingar um símanúmer sálfræðinganna er hægt að fá hjá trúnaðarmönnum eða á skrifstofu KÍ.
Lesa meira
11. maí 2009
Auglýst hefur verið laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra Sambands norrænna kennarasamtaka, NLS. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk. en ráðið er í starfið frá og með 1. janúar 2010.
Lesa meira
11. maí 2009
Ársfundur LSS verður haldinn miðvikudaginn 13. maí nk. Fundurinn hefst kl. 10:30 í fundarsal BSRB á 1. hæð að Grettisgötu 89. Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM, KÍ og launagreiðenda eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Lesa meira
8. maí 2009
Maria Westvall prófessor við tónlistardeild Örebro Háskóla í Svíþjóð er í heimsókn á Menntavísindasviði í boði Nordplus nets um tónlistarmenntun. Þann 14. maí flytur hún fyrirlestur um menntun tónlistarkennara og framhaldsmenntun í tónlist við Örebro Háskóla. Fyrirlesturinn fer fram í stofu H-201 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og hefst kl. 16.
Lesa meira
8. maí 2009
Haldnir verða opnir félagsfundir í öllum svæðadeildum FL frá 11. maí til 2. júní.
Lesa meira
7. maí 2009
Brot úr 1. maí ávarpi Kennarasambands Íslands, Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, Bandalags háskólamanna og Sambands íslenskra framhaldsskólanema.
Lesa meira
7. maí 2009
Þróunarverkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum boðar til námsstefnu þriðjudaginn 26. maí kl. 13:30 í Salnum í Kópavogi.
Lesa meira