Eftir mánuðum

2. júl. 2009

Lokun Kennarahúss, afgreiðsla Orlofssjóðs og annarra sjóða

Kennarahúsið verður lokað frá og með 13. júlí til og með 3. ágúst. Afgreiðslan opnar aftur þriðjudaginn 4. ágúst klukkan 9:00. Umsóknir allra sjóða verða næst greiddar út 15. ágúst. Þeir sem þurfa að ná sambandi við Orlofssjóð meðan á sumarlokun stendur geta hringt í síma 595 1170 eftir hádegi eða sent tölvupóst á orlof hjá ki.is.
Lesa meira

2. júl. 2009

Umsókn á endurgreiðslu skráningargjalda í skóla

Nokkuð hefur verið af fyrirspurnum varðandi umsóknir á endurgreiðslu skráningargjalda í skóla. Þegar félagsmaður sækir um endurgreiðslu þarf hann að senda útfyllt umsóknareyðublað og kvittun á greiðslu gjaldanna. Greiðslukvittun má vera prentuð úr heimabanka.
Lesa meira

2. júl. 2009

Stability Pact - Stöðugleikasáttmáli

The Stability Pact is accessible here - Hér meðfylgjandi er stöðugleikasáttmálinn á ensku.
Lesa meira

2. júl. 2009

Kennarar fylgi eftir faglegu endurmati og forgangsröðun verkefna í skólakerfinu

Á fundi stjórna og samninganefnda aðildarfélaga KÍ þann 29. júní sl. kom fram að mjög mikilvægt er að nýta ákvæði stöðugleikasáttmálans sem lúta að virku samráði og fylgja því eftir að forgangsröðun verkefna í endurmati vegna aðhaldsaðgerða sé fagleg og með hagsmuni nemenda í forgrunni. „Við verðum að fylgjast með því að forgangsröðun sé eins og við teljum réttasta,“ sagði einn fundarmanna og annar hafði á orði að þótt staðan væri ekki góð þyrftu kennarar að passa sig á meðvirkni í ástandinu. Í leiðarljósum aðhaldsaðgerða í skýrslu fjármálaráðherra um áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009–2013 er lögð áhersla á faglega forgangsröðun verkefna og að forðast beri flatan niðurskurð.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli