30. sep. 2009
Með nýjum grunnskólalögum frá 2008 var heimilað í 45. gr. laganna að samreka leik-, grunn- og tónlistarskóla. SÍ og FL fóru strax haustið 2008 fram á viðræður við LN um kjör stjórnenda samrekins skóla. Samkomulag var undirritað 20. ágúst sl. og hafa nú stjórnir FL, SÍ og LN staðfest það.
Lesa meira30. sep. 2009
Eftirfarandi kemur fram á vef menntamálaráðuneytis: Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði námsgagna. Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Sérstök áhersla er lögð á námsgögn sem tengjast lestrarkennslu og læsi í víðum skilningi.
Lesa meira
30. sep. 2009
Í tilefni af tíu ára afmæli FÉKKST - Félag kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum, boðar stjórn félagsins til ráðstefnunnar Trúarbragðafræðsla í skólum - hvert stefnum við? Ráðstefnan fer fram í húsnæði menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð laugardaginn 7. nóvember nk. og hefst kl. 11:00.
Lesa meira28. sep. 2009
Trúnaðarmannanámskeið FL fyrir nýliða verður haldið í Reykjavík mánudaginn 5. október. Áður auglýst nýliðanámskeið á Akureyri fellur niður. Föstudaginn 2. október verður haldið námskeið fyrir alla trúnaðarmenn (líka nýliða) á Akureyri, á Selfossi fimmtudaginn 15. október og í Reykjavík þriðjudaginn 13. október og þriðjudaginn 27. október.
Lesa meira
24. sep. 2009
Heimsgangan Í þágu friðar og tilveru án ofbeldis leggur af stað frá Wellington á Nýja-Sjálandi þann 2. október á fæðingardegi Ghandis. Þetta er um þrjátíu manna hópur sem ferðast um nærri hundrað lönd og er komu þeirra fagnað með friðargöngum, ráðstefnum og öðrum uppákomum, auk þess sem fulltrúar hópsins hitta friðarsinna og ráðamenn á hverjum stað. Hérlendis er starfandi skipulagshópur vegna heimsgöngunnar og ásamt fjölmörgum samtökum og einstaklingum stendur hann fyrir því að mynda stórt mannlegt friðarmerki á Klambratúni (Miklatúni) kl. 20:00 föstudaginn 2. október. Þennan sama dag, sem er jafnframt dagur Sameinuðu þjóðanna án ofbeldis (Day of Nonviolence), verða viðburðir um allan heim til að fagna upphafi Heimsgöngunnar og gera þennan merka dag hátiðlegan.
Lesa meira
24. sep. 2009
Í haust verða haldnir áhugaverðir fyrirlestrar á vegum Rannsóknarstofu í Vinnuvernd. Fyrirlestrarnir eru haldnir í Háskóla Íslands í stofu 201 í Odda og standa frá kl. 12:00 – 13:00.
Lesa meira
24. sep. 2009
KÍ vekur athygli á Evrópska tungumáladeginum þar sem stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og FEKÍ, Félag enskukennara á Íslandi, efna til hátíðardagskrár í tilefni af deginum og 40 ára afmælis FEKÍ.
Lesa meira21. sep. 2009
Sjálfsmynd og kynhegðun unglinga er til umræðu á morgunverðarfundi forvarnarhópsins Náum áttum á Grand hóteli 30. september kl. 8:15.
Lesa meira
17. sep. 2009
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu 2010-2011. Væntanlegir styrkþegar fá greidd laun á námsleyfistíma í allt að tólf mánuði eftir lengd náms. Eyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins og á heimasíðu Kennarasambandsins. Umsóknarfrestur er til 1. okt. 2009.
Lesa meira
11. sep. 2009
Faghópur leikskólastjóra heldur ráðstefnuna Með sól í hjarta þann 9. október nk. í Gullhömrum Grafarholti. Rithöfundurinn og kennarinn Holly Elissa Bruno heldur tvo fyrirlestra á ráðstefnunni.
Lesa meira
11. sep. 2009
Félag um leiklist í skólastarfi, FLÍSS, í samstarfi við Fræðsludeild Þjóðleikhússins boðar til fyrstu vinnusmiðju vetrarins nk. þriðjudagskvöld kl. 20.00 að Lindargötu 3. Smiðjuna leiðir víðfrægur finnskur kennari, Tintti Karppinen.
Lesa meira11. sep. 2009
Frétt frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga: Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir eftir umsóknum í Námsleyfasjóð vegna námsleyfa grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2010-2011. Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2009. Stjórn Námsleyfasjóðs hefur ákveðið að við úthlutun verði sett í forgang nám sem tengist kennslu í lestri og læsi. Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Lesa meira11. sep. 2009
Athyglisverð málstofa, um hljóðvist í leik- og grunnskólum, verður haldin föstudaginn 25. september 2009 kl. 12:00 – 16:00 í Bratta, sal í nýbyggingu, á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð. Skólamenn og aðrir sérfræðingar fjalla um hljóðvist út frá hönnun húsnæðis, heilsufari, námi og fleiri sjónarhornum. Dagskráin verður túlkuð á táknmál. Skráning á ust hjá ust.is fyrir 23. september.
Lesa meira11. sep. 2009
Alls hafa 606 svarað spurningunni: Finnst þér starfsemi KÍ mikilvæg? 76% svarenda finnst hún mjög mikilvæg og 10% finnst hún frekar mikilvæg. Önnur svör skiptust þannig að 1% hefur ekki tekið afstöðu, 6% finnst starfsemin ekkert sérstaklega mikilvæg og 4% hökuðu við síðasta svarmöguleikann, „nei, engan veginn“.
Lesa meira
7. sep. 2009
... er bleik.
Lesa meira4. sep. 2009
Í undirbúningi er að stofna félag sem berst fyrir hagsmunum barna með tal- og málþroskafrávik. Stofnfundur félagsins verður 16. september nk. kl. 20:00 í Skriðu í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.
Lesa meira4. sep. 2009
Á degi læsis er fólk hvar sem er á landinu hvatt til að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða á annan hátt nota málið til ánægjulegra samskipta. Árið 1965 tileinkuðu Sameinuðu þjóðirnar ár hvert 8. september mikilvægi læsi fyrir lífsgæði og baráttunni gegn ólæsi. Í heiminum eru ennþá 20% fullorðinna ólæsir vegna skorts á tækifærum. Þar af er hlutfall ólæsra kvenna 66%. 75 milljónir barna eiga ekki kost á skólagöngu.
Lesa meira