
30. des. 2011
Hafið það gott um áramótin kæru félagsmenn, aðrir vinir og vandamenn! Hittumst heil á nýju ári. Kveðja, KÍ.
Lesa meira28. des. 2011
Þann 1. febrúar 2012 kl. 8:30 til 11 á Grand hóteli í Reykjavík verður haldinn fundur um réttindi og lýðræði í leikskóla. Fundarstjóri er Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara.
Lesa meira
28. des. 2011
Alþingi samþykkti rétt fyrir jól að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár, þ.e. frá byrjun janúar 2012 til ársloka 2014. Frá og með næstu áramótum lækkar því frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarlífeyrissparnað úr 4% í 2% af heildarlaunum.
Lesa meira
22. des. 2011
Kennarahúsið verður lokað föstudaginn 23. desember, þriðjudaginn 27. desember og mánudaginn 2. janúar.
Lesa meira
20. des. 2011
Kennarasamband Íslands veitir á hverju ári styrk til samtaka eða aðila sem tengja starf sitt börnum og ungmennum. Er styrkurinn veittur í stað þess að senda jólakort. Í ár fær Hjálparstarf kirkjunnar þennan styrk að upphæð 300.000 krónur sem skiptist í þrennt og fer í Velferðarsjóð barna, Framtíðarsjóð ungmenna og í „kortaleiðina“ í innanlandsaðstoðinni. Þórður Á. Hjaltested formaður KÍ, Björg Bjarnadóttir varaformaður KÍ og Svanhildur María Ólafsdóttir formaður SÍ afhentu Vilborgu Oddsdóttur félagsráðgjafa Hjálparstarfsins styrkinn.
Lesa meira
14. des. 2011
Kennarahúsið verður lokað í dag, 14. desember, frá kl. 12:00-16:00 vegna tiltektardags starfsmanna. Venjulegur opnunartími á morgun.
Lesa meira
12. des. 2011
Fimmtudaginn 8. desember sl. samþykktu stjórn og skólamálanefnd Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskólakennara ályktun um hávaða, ályktun um undirbúningstíma og áskorun vegna innleiðingar aðalnámskrár.
Lesa meira6. des. 2011
Fimmtudaginn 8. desember n.k. verður haldin kynning á lokaverkefnum nema til M.Ed. náms við Háskóla Íslands. Kynningin fer fram í húsnæði HÍ við Stakkahlíð í stofu E-301 og hefst kl. 09:00.
Lesa meira
6. des. 2011
Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni í samstarfi við Félagsráðgjafardeild, Lagadeild og Menntavísindasvið Háskóla Íslands bjóða til málþingsins
Ábyrgð og aðgerðir miðvikudaginn 7. desember nk. Málþingið verður haldið í stofu 132 í Öskju og hefst kl. 15:00 en lýkur kl. 17:00.
Lesa meira6. des. 2011
Starfshópur um málefni framhaldsskóla hefur verið settur á laggirnar á grunni samkomulags KÍ/framhaldsskóla og mennta- og menningarmálaráðherra. Hópurinn hélt sinn fyrsta fund 15. nóvember og á að skila niðurstöðum næsta vor. Meðal þess sem starfshópurinn á að fjalla um er vinnutilhögun kennara og aukin menntunarþörf í ljósi breytts hlutverks, samvinna kennara og aðgangur að sérfræðiþjónustu.
Lesa meira
2. des. 2011
... um kjarasamning Kennarasambands Íslands / vegna Félags leikskólakennara og Sigöldu ehf.
Lesa meira2. des. 2011
Þriðjudaginn 6. desember 2011 kl. 14:00-16:00 verður haldinn opinn umræðufundur um PISA 2009, þar sem umræðuefnið er starfshættir í íslenskum grunnskólum. Fundurinn verður haldinn í sal Námsmatsstofnunar, Borgartúni 7A.
Lesa meira