
29. sep. 2011
Föstudaginn 30. september kl. 9:00-17:00 verður Menntakvika - ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands 2011 haldin í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Á dagskránni verða 189 fyrirlestrar í 53 málstofum um nýjustu rannsóknir í menntavísindum.
Lesa meira
27. sep. 2011
Laugardaginn 1. október verður haldin ráðstefna í HÍ undir heitinu „Kennsla gagnrýninnar hugsunar og siðfræði“.
Lesa meira
27. sep. 2011
Ungt fólk á Norðurlöndum á sífellt erfiðara með að skilja tungumál hvers annars, þrátt fyrir aukna umferð yfir landamæri. Norræna ráðherranefndin hefur ýtt úr vör spennandi verkefnum þar sem áhersla er lögð á að auka skilning norrænna barna á tungumálum grannþjóðanna. Eitt þessara verkefna er Norræna tungumálaátakið. Föstudaginn 30. september kl. 09:30-12:00 verður haldið námskeið á vegum Norrænu upplýsingaskrifstofunnar í Brekkuskóla á Akureyri.
Lesa meira
27. sep. 2011
Fimmtudaginn 29. september kl. 15:00 heldur dr. Jón Torfi Jónasson forseti Menntavísindasviðs fyrirlestur á Menntavísindasviði við Stakkahlíð, Skriðu.
Lesa meira
26. sep. 2011
Félag leikskólakennara sendi frá sér meðfylgjandi ályktun.
Lesa meira
26. sep. 2011
Miðvikudaginn 28. september kl. 20:00-22:00 verður haldið örnámskeið fyrir foreldra í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð stofu H-207 (gengið inn Háteigsvegsmegin).
Lesa meira26. sep. 2011
Mánudaginn 3. október nk., milli 14:00 og 15:30, verður haldin kynning á styrktarmöguleikum vegna norrænna verkefna tileinkuð börnum og ungmennum í Norræna húsinu.
Lesa meira
26. sep. 2011
Föstudaginn 21. október nk. verður haldið málþing um einingakubba fyrir kennara í leik- og grunnskólum. Málþingið verður haldið í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og hefst það kl. 13:00 en lýkur kl. 16:20.
Lesa meira
23. sep. 2011
Þriðjudaginn 27. september kl. 15:30 heldur dr. Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við Menntavísindasvið, fyrirlestur í Skriðu í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Lesa meira
20. sep. 2011
Síðastliðinn vetur var tekinn upp rafrænn umsóknarvefur, Mínar síður, fyrir sjóði Kennarasambands Íslands. Með því að skrá sig inn á Mínar síður geta félagsmenn sótt rafrænt um styrki endurmenntunarsjóða aðildarfélaganna, sjúkrasjóðs og bókað hjá Orlofssjóði. Hægt er að tengjast Mínum síðum frá forsíðu ki.is.
Lesa meira
20. sep. 2011
Föstudaginn 23. september næstkomandi kl. 15.45 verður því fagnað með stuttri samkomu að tímaritið Uppeldi og menntun er nú aðgengilegt á vefnum. Samkoman fer fram í stofu H-001 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og eru allir velkomnir.
Lesa meira
20. sep. 2011
Miðvikudaginn 21. september kl. 20:00-22:00 verður haldið örnámskeið fyrir foreldra í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð stofu H-207 (gengið inn Háteigsvegsmegin).
Lesa meira
19. sep. 2011
Í gær, 18. september, hófst samevrópska ADHD vitundarvikan undir slagorðinu „ATHYGLI, JÁ TAKK“. Markmið ADHD vitundarvikunnar er að auka þekkingu almennings á ADHD og auka skilning og efla stuðning við fólk með ADHD með opinskárri og skammarlausri umfjöllun. Þá verður haldið málþing föstudaginn 23. september undir yfirskriftinni
Nýjar lausnir - ný sýn.
Lesa meira
19. sep. 2011
Miðvikudaginn 21. september nk. heldur Dóra S. Bjarnason kynningu á rannsókn sinni Reynsla foreldra fatlaðra barna af stuðningi árin 1974-2008. Kynningin stendur frá kl. 20:00 til 22:00 í stofu H-204 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Lesa meira16. sep. 2011
8. haustþing Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla á Suðurlandi verður haldið í Hótel Selfoss, Selfossbíó, sal Hulduheima og sal Tónlistarskóla Árnessýslu, föstudaginn 7. október n.k. kl. 9:15-15:00. Allt starfsfólk leikskóla á Suðurlandi sækir þingið sem nú er í fyrsta skipti
opið öðrum áhugasömum um leikskólastarf.
Lesa meira
16. sep. 2011
Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Stakkahlíð, er með opið hús laugardaginn 17. septeber kl. 13:00-16:00. Hægt verður að hlusta á kynningar frá leik-, grunn- og framhaldsskólum, taka þátt í smiðjum og leikjum og hlusta á tónlist á meðan er gætt sér á ljúffengum vöfflum og kaffi.
Lesa meira
16. sep. 2011
Mánudaginn 19. september heldur Dr. Alistair Ross prófessor fyrirlestur í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð í stofu E 301, á milli kl. 15:00 og 16:00. Í fyrirlestrinum Kennarastarfið er pólitískt (Teaching as a Political Activity: The Teacher as a Political Actor) fjallar hann um þær áskoranir sem kennarar standa daglega frammi fyrir og felast í að ákveða hvað eigi að kenna og hvernig. Megináhersla verður lögð á kennslu sem tekur mið af mannréttindum og félagslegum samskiptum. Kennarar þurfa að taka þýðingarmiklar ákvarðanir um menntun ungra borgara og hvernig megi þroska hugsun þeirra um mannréttindi. Ross mun færa fyrir því rök að þessar ákvarðanir séu í eðli sínu pólitískar; kennarar séu pólitískir gerendur og kennslan sjálf í eðli sínu pólitískt athæfi.
Lesa meira14. sep. 2011
Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bjóða til tveggja aðskildra viðburða, morgunverðarfundar og málþings á Hótel Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 21. september n.k. kl. 8-12.
Lesa meira
12. sep. 2011
Rannsóknarstofa í þroskaþjálfafræðum stendur fyrir þremur opnum hádegisfyrirlestrum á haustmisseri í samvinnu við Átak félag fólks með þroskahömlun, Fjölmennt fullorðinsfræðslu fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp, Sjónarhól ráðgjafamiðstöð og Þroskaþjálfafélag Íslands.
Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 14. september kl. 11:40-12:20 í stofu H-208 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð.Lesa meira
12. sep. 2011
Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor í tónmennt við Kennaradeild Háskóla Íslands, heldur ókeypis örnámskeið fyrir foreldra miðvikudaginn 14. september kl. 20-22 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð stofu H-207.
Lesa meira12. sep. 2011
Í mars 2011 var sveitarfélögum sem vildu vekja athygli á málörvunarstarfi leikskóla boðið, í samráði við viðkomandi leikskóla, að senda mennta- og menningarmálaráðuneytinu lýsingu á áhugaverðum verkefnum á því sviði. Ráðuneytið fól Önnu Þorbjörgu Ingólfsdóttur, lektor við Háskóla Íslands og Ingibjörgu Ósk Sigurðardóttur, leikskólakennara og MA í menntunarfræðum, að fara yfir þær tillögur sem bárust og velja tíu áhugaverðustu verkefnin.
Lesa meira
7. sep. 2011
Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor heldur örnámskeið fyrir foreldra miðvikudaginn 7. september kl. 20:00-22:00 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð stofu H-101.
Lesa meira
7. sep. 2011
Í upphafi samgönguviku, 16. sept. nk., standa Landssamtök hjólreiðamanna og Hjólafærni á Íslandi fyrir ráðstefnu með yfirskriftina Hjólum til framtíðar með stuðningi og í samvinnu við Reykjavíkurborg, Landlæknisembættið og fleiri. Áhersla ráðstefnunnar er á hvernig stuðla megi að auknum hjólreiðum, hver staðan sé á Íslandi og hvert stefnan sé tekin.
Lesa meira
7. sep. 2011
Leikskólakennarar samþykktu nýgerðan kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga með 92,2% atkvæða en 78,8% félagsmanna greiddu atkvæði. Nei sögðu 5,6% og auðir seðlar voru 2,2%.
Lesa meira6. sep. 2011
Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2012-2013 þurfa að berast mennta- og menningarmálaráðuneytinu eigi síðar en 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.
Lesa meira
6. sep. 2011
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning KÍ vegna Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga sem hófst 1. september sl. lýkur í dag kl. 16:00. Atkvæðagreiðslan er rafræn og sjá trúnaðarmenn um framkvæmd hennar í leikskólum.
Lesa meira5. sep. 2011
Rauði kross Íslands skipuleggur fimm daga þjálfun í sálrænum stuðningi eftir alþjóðlegar hamfarir. Þjálfunin er skipulögð í samstarfi við finnska og sænska Rauða krossinn, þekkingarsetur Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í sálrænum stuðningi og Slysavarnarfélagið Landsbjörgu. Til að sækja um vinsamlegast sendið uppfærða ferilskrá og stutt bréf sem lýsir áhuga á þátttöku í námskeiðinu, á tölvupóstfangið:
baldur hjá redcross.is. Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. september 2011.
Lesa meira
2. sep. 2011
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ vegna Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga fer fram 1. til 6. september nk. Atkvæðagreiðslan er rafræn og sjá trúnaðarmenn um framkvæmd hennar í leikskólunum, en send verða út lykilorð með nákvæmum upplýsingum varðandi atkvæðagreiðsluna. Atkvæðagreiðslan hefst kl. 9:00 fimmtudaginn 1. september og lýkur kl. 16:00 þriðjudaginn 6. september.
Lesa meira2. sep. 2011
Velferðarvaktin hefur sent hvatningu þar sem því er beint til allra sveitastjórna og skólanefnda að huga sérstaklega að líðan barna í upphafi skólaárs, nú þegar þrjú ár eru liðin frá efnahagshruninu. Sjá nánar
hér.
Lesa meira
1. sep. 2011
Í bréfi sem Umboðsmaður barna sendi nýlega frá sér er vakin athygli á starfsemi embættisins og hlutverki umboðsmanns í þágu barna og unglinga. Þar kemur m.a. fram að hægt er að fá kynningu á starfinu fyrir börn og unglinga og almennt þá sem áhuga hafa jafnt með heimsóknum í skólana og með því að koma á skrifstofu embættisins.
Lesa meira
1. sep. 2011
Breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi við húsnæði orlofssjóðs.
Sigrún Halla Runólfsdóttir, sem hefur starfað hjá okkur í 3 ár sem umsjónarmaður við Sóleyjargötuhúsin hefur hætt störfum og þökkum við henni samstarfið. Nú eru tveir nýir starfsmenn í 50% starfi hvor að hefja störf við húsin okkar við Sóleyjargötu. Það eru Vilborg Ámundadóttir og Einar Clausen. Þau munu hafa umsjón með sitt hvoru húsinu og svara símanum 862-9033 þegar félagsmenn þurfa að ná í þau.
Á Flúðum hefur Arndís Eiðsdóttir starfsmaður hætt störfum við eftirlit og þrif með húsum okkar þar og þökkum við henni samstarfið. Í stað hennar höfum við ráðið Auði Kolbeinsdóttur sem mun hefja störf næstkomandi mánudag.
Lesa meira1. sep. 2011
Skólaþing er kennsluver Alþingis þar sem grunnskólanemum í 8.-10. bekk gefst kostur á að setja sig í spor þingmanna með því að fara í hlutverkaleik. Í leiknum er notast við margmiðlun og tölvutækni til að miðla upplýsingum og stýra leiknum. Með Skólaþingi er leitast við að efla skilning og þekkingu nemenda á stjórnskipulagi okkar, störfum Alþingis og lýðræðislegum vinnubrögðum. Efni Skólaþings tengist vel námsefni í lífsleikni og samfélagsgreinum.
Lesa meira
1. sep. 2011
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu 2012-2013. Einungis er hægt að sækja um rafrænt til og með 3. október 2011 á vef
Kennarasambands Íslands, Mínar síður. Öll fylgiskjöl þurfa að fylgja með rafrænni umsókn þar sem ekki er tekið við gögnum eftir á.
Lesa meira
1. sep. 2011
Stjórn Námsleyfasjóðs hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2012-2013. Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2011.
Lesa meira