29. feb. 2012
Að tillögu Velferðarvaktarinnar árið 2009 var samþykkt í ríkisstjórn að fá hóp sérfræðinga til að vinna að gerð félagsvísa. Félagsvísar eru safn fjölbreyttra tölfræðilegra upplýsinga sem eiga að varpa ljósi á þjóðfélagsástandið á hverjum tíma og ólíkar aðstæður ýmissa þjóðfélagshópa. Markmiðið er að hafa slíkar upplýsingar aðgengilegar á einum stað og auðvelda þannig stjórnvöldum og almenningi að fylgjast með þróun og breytingum í samfélaginu og styðja við stefnumótun stjórnvalda.
Lesa meira28. feb. 2012
3,5% launahækkun 1. mars nk.
Lesa meira28. feb. 2012
... vegna líkamstjóns sem nemandi varð fyrir vegna slyss við nám í framhaldsskóla. Meðfylgjandi er samantekt Ernu Guðmundsdóttur, lögmanns KÍ, á þessum dómsniðurstöðum.
Lesa meira
28. feb. 2012
Félag um menntarannsóknir (FUM) stendur fyrir ráðstefnu um rannsóknir í menntamálum laugardaginn 17. mars. Yfirskrift ráðstefnunnar og þema er
Skóli sem siðvætt samfélag: Menntarannsóknir og framkvæmd menntastefnu. Ráðstefnan verður haldin í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og hefst kl. 9:00.
Lesa meira28. feb. 2012
Vakin er athygli á auglýsingu mennta- og menningarmálaráðuneytisins eftir umsóknum úr Sprotasjóði. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýungar í starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Lesa meira
27. feb. 2012
Bókunarvefur Orlofssjóðs lokar frá kl. 6:00 miðvikudaginn 29. febrúar og verður nýr bókunarvefur opnaður kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 1. mars 2012.
Lesa meira
23. feb. 2012
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2012-2013. Einungis er hægt að sækja um rafrænt til og með 29. febrúar 2012 á ki.is, Mínar síður. Öll fylgiskjöl þurfa að fylgja með ræfrænni umsókn þar sem ekki er tekið við gögnum eftir á.
Lesa meira
21. feb. 2012
Föstudaginn 16. mars 2012 kl. 13 til 17 verður haldin ráðstefna 3f félags um upplýsingatækni og menntun og Háskólans í Reykjavík. Ráðstefnan hefur fengið yfirheitið
Margt smátt gerir eitt stórt - Upplýsingatækni og nýjungar. Meginþema ráðstefnunnar verður upplýsingatækni í skólastarfi. Fjallað verður sérstaklega um þær breytingar sem eru að verða í skólastofunni með tilkomu smærri tækja og tóla. Spáð er í framtíðina, munu verða miklar breytingar á kennsluháttum í nánustu framtíð, hver verða áhrifin á námsgagnagerð.
Lesa meira21. feb. 2012
Næsti fundur stjórnar Vísindasjóðs FL og FSL sem að öllu jöfnu ætti að vera fyrsta miðvikudag í apríl hefur verður færður fram um viku. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 28. mars. Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 21. mars.
Lesa meira20. feb. 2012
Launagreiðendur athugið - breyttar bankaupplýsingar.
Lesa meira
17. feb. 2012
Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir stuðningi við kröfur Föroya pedagogfelag um betri laun og starfskjör í yfirstandandi kjaradeilu félagsins.
Lesa meira17. feb. 2012
Menntavísindasvið kynnir nám sitt og og starf á annarri hæð Háskólatorgs þegar Háskóladagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16. Að því koma bæði nemendur og kennarar í öllum þremur deildum sviðsins, Kennaradeild, Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild og Uppeldis- og menntunarfræðideild.
Lesa meira15. feb. 2012
Föstudaginn 24. febrúar nk. heldur FF fund með trúnaðarmönnum í framhaldsskólum. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli Reykjavík og hefst kl. 10:00 en mæting er kl. 9:45.
Lesa meira
15. feb. 2012
Krakkaskak.is er nýr vefur fyrir börn og unglinga sem vilja kynnast skáklistinni og vilja mennta sig í henni. Þar kennir ýmissa grasa fyrir utan skák eins og til dæmis litabók með taflmönnum. Þá eru teiknimyndakeppnir, kennslumyndbönd í skák og fleira skemmtilegt. Einnig er hægt að skrá sig í krakkaskáklið og tefla við önnur börn í rauntíma.
Lesa meira

14. feb. 2012
Þriðjudaginn 21. febrúar stendur Vinnueftirlit ríkisins fyrir námskeiði undir heitinu Einelti, andlegt og félagslegt vinnuumhverfi. Námskeiðið stendur frá kl. 13:00 til kl. 16:00 og verður það haldið að Bíldshöfða 18, 2h, Reykjavík.
Lesa meira
13. feb. 2012
Á fundi sínum með velferðarráðherra í lok janúar sl. vöruðu KÍ, BHM og BSRB eindregið við því að tilraunaverkefni um þjónustu við atvinnuleitendur yrði til þess að skerða á nokkurn hátt bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu enda „full þörf á því að sú stofnun standi sterk á tímum þegar atvinnuleysi er í sögulegu hámarki.“ Téð tilraunaverkefni felur að mati samtakanna í sér einkavæðingu á þjónustu við atvinnulausa á ákveðnum hluta landsins og mismunun á grundvelli stéttarfélagsaðildar.
Lesa meira13. feb. 2012
Formenn BHM, BSRB og KÍ hafa skorað á stjórnvöld að lagfæra réttindi foreldra í fæðingarorlofi með því að hækka hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með þessu eru stjórnvöld hvött til að skila til baka skerðingu í fæðingarorlofsgreiðslum allt frá 2008. Skerðing hefur þegar haft neikvæð áhrif á jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði á þann hátt að feður nýta sér síður réttindi til töku fæðingarorlofs. Árið 2011 skiluðu aðhaldsaðgerðir stjórnvalda sparnaði upp á 1,2 milljarð umfram áætlanir og því er svigrúm til að draga til baka skerðingu á réttindum.
Lesa meira13. feb. 2012
Á fundi formanna KÍ, BHM og BSRB með velferðarráðherra í janúar sl. ítrekuðu þeir kröfur um samningsbundna eingreiðslu til fólks í fæðingarorlofi. Meðal umsaminna kjarabóta í kjarasamningum síðasta árs sem samtökin gerðu við opinbera vinnuveitendur var 50 þúsund króna eingreiðsla sem átti að greiða í júní og 1. febrúar 2012 átti að greiða 25 þúsund króna eingreiðslu. Umdeilt hefur verið hvort þessi greiðsla eigi að ná til launafólks í fæðingarorlofi og vinnuveitendur hafa lagst gegn því.
Lesa meira
9. feb. 2012
Dagana 9. til 11. ágúst 2012 verður fimmta alþjóðlega söguaðferðarráðstefnan haldin í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð, Reykjavík. Markmið ráðstefnunnar er að stuðla að samskiptum milli skóla- og rannsóknarfólks sem hefur áhuga á Söguaðferðinni sem leið til að auka sveigjanleika og fölbreytni í námi.
Lesa meira7. feb. 2012
Önnur málstofa af átta um framhaldsskólarannsóknir verður haldin miðvikudaginn 8. febrúar kl. 16:20-17:05 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, stofu K-207. Sólveig Jakobsdóttir dósent og Þuríður Jóhannsdóttir lektor, báðar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjalla um fjarnám, framhaldsskólann og félagslegt réttlæti.
Lesa meira
7. feb. 2012
Dagur leikskólans var haldinn í fimmta sinn 6. febrúar. Í tilefni dagsins auglýsti Kynningarnefnd FL og FSL eftir gullkornum frá leikskólum landsins. Þau þurftu að vera lýsandi fyrir það nám sem leikskólabörn stunda og óskað var eftir mynd með. „Bestu“ gullkornin hafa verið valin á veggspjald, en þeim verður dreift til leikskóla, sveitaskrifstofa, ráðhúsa og leikskóla landsins. Auk þess var óskað eftir myndböndum með stuttum viðtölum við leikskólabörn um leikskólalífið. Dæmi um spurningar sem þau svöruðu var, hvað lærir þú í leikskólanum? Hvað gera leikskólakennarar og hvernig eiga góðir leikskólakennarar að vera?
Lesa meira
6. feb. 2012
Halldóri Halldórssyni formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga var afhent ávísun frá Félagi leikskólakennara klukkan tvö í dag. Ávísunin hljóðar upp á 363 þúsund krónur en féð safnaðist á styrktartónleikum leikskólakennara fyrir sveitarfélögin í ágúst sl. Það var Haraldur Freyr Gíslason formaður Félags leikskólakennara sem afhenti styrktarféð en því er ætlað að renna til góðgerðarmála.
Lesa meira
6. feb. 2012
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Í tilefni dagsins hefur verið gefið út veggspjald með gullkornum frá börnum sem afhent var borgarstjóra í dag.
Lesa meira
6. feb. 2012
Í dag er Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í fimmta sinn. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða 6. febrúar 1950 stofnuðu nokkrir frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samvinnuverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að efla jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Lesa meira
6. feb. 2012
Föstudaginn 10. febrúar efnir Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) til málþings í samvinnu við Jafnréttisstofu, Sagnfræðistofnun og mennta- og menningarmálaráðuneytið um hlutdeild og birtingarmyndir kynjanna í sögubókum. Málþingið, sem ber heitið „Að skrifa konur inn í söguna“, fer fram kl. 14:00-17:30 í Öskju, stofu 132.
Lesa meira
6. feb. 2012
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar og í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Bratta, aðalbyggingu Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.
Lesa meira
6. feb. 2012
Þann 26. mars nk. hefst punktastýrð úthlutun á orlofshúsum fyrir sumarið 2012. Í meðfylgjandi viðhengi er hægt að skoða hvenær hægt er að panta eftir fjölda punkta. Ferðablaðið kemur út í fyrrihluta marsmánaðar og þá er hægt að skoða hvað er í boði fyrir sumarið.
Lesa meira
6. feb. 2012
Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar.
Lesa meira3. feb. 2012
Stjórn Orlofssjóðs vekur athygli á kynningarverði vegna leigu á fundar- og ráðstefnusalnum Fróða sem staðsettur er á jarðhæð húss nr. 2 í Heiðarbyggð á Flúðum. Kynningarverðið gildir til 15. maí 2012. Salurinn er leigður út til allra félagsmanna KÍ og fara bókanir fram í gegnum skrifstofu Orlofssjóðs.
Lesa meira2. feb. 2012
Aftur eru fáanleg gjafabréf með Icelandair. Gjafabréf gildir í tvö ár en ekki er hægt að fá þau endurgreidd. Verð fyrir gjafabréf hjá Icelandair er 25.000 krónur og gildir það sem 30.000 kr. greiðsla upp í fargjald í beinu áætlunarflugi til allra áfangastaða flugfélagsins. Til þess að kaupa gjafabréf í flug þarf að fara inn á Mínar síður og velja Orlofsvefinn „afsláttarávísanir“.
Lesa meira