Eftir mánuðum

29. maí 2012

Menningarnæturpotturinn 2012, opið fyrir umsóknir!

Auglýst er eftir áhugasömum og frumlegum hugmyndasmiðum til þess að fylla inn í viðburðalandslag Menningarnætur 2012. Styrkir úr Menningarnæturpotti Landsbankans!
Lesa meira

29. maí 2012

Annaruppbót/orlofsuppbót 1. júní 2012

Þann 1. júní verður greidd út annar- eða orlofsuppbót.
Lesa meira

24. maí 2012

Ráðstefna 29. maí - Samstarfs skóla og barnaverndar

Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:30-16:00. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.
Lesa meira

24. maí 2012

Ráðstefna um jafnréttisfræðslu í skólum var haldin miðvikudaginn 16. maí sl.

Jafnréttisnefnd KÍ stóð fyrir ráðstefnu um jafnréttisfræðslu í skólum miðvikudaginn 16. maí síðastliðinn. Á henni kom ýmislegt áhugavert fram og rúmlega 70 manns mættu til að hlýða á erindi og ræða málin. Námsgagnastofnun og Jafnréttisstofa voru einnig á staðnum með námsefni í jafnréttisfræðslu til sýnis. Á ráðstefnunni héldu þrír fyrirlesarar erindi um innleiðingu og mikilvægi jafnréttisfræðslu í skólum á öllum skólastigum. Að lokum voru pallborðsumræður.
Lesa meira

23. maí 2012

Nýtt veftímarit um skólamál

Athygli er vakin á afar áhugaverðu nýju veftímariti um skólamál sem Edda Kjartansdóttir og Nanna Christiansen eru að stofna og opnuðu óformlega þann 16. maí 2012. Markmiðið með tímaritinu er að gera umræðu um skólamál aðgengilega og sýnilega.
Lesa meira

23. maí 2012

Áhugaverð úttekt Menntamálaráðuneytis á kennslu í stærðfræði

Í apríl kom út skýrsla um úttekt Mrn. á kennslu í stærðfræði í átta grunnskólum hér á landi. Markmið úttektarinnar var að afla upplýsinga um framkvæmd stærðfræðikennslu í grunnskólum með tilliti til aðalnámskrár, námsefnis, námsgagna, menntunar kennara, árangurs nemenda, stöðu námsgreinarinnar og viðhorfa til hennar. Í skýrslunni er varpað ljósi á það sem vel er gert, bent á það sem betur má fara og settar fram hugmyndir að úrbótum. Niðurstöður eru áhugaverðar og ánægjulegar fyrir skólastarf hér á landi en þar kemur m.a. fram að styrkleikar stærðfræðikennslunnar séu áhugasamir kennarar, fámennir námshópar, góður námsstuðningur við nemendur sem eiga í erfiðleikum með stærðfræðinám og fjölbreytt námsmat.
Lesa meira

21. maí 2012

Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga í LSR 24. maí nk.

Þann 24. maí nk. heldur LSR kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur. Hægt er að velja um tvær tímasetningar þann 24. maí nk.: 8:30-10:00 eða 16:30-18:00. Fundirnir eru haldnir á Hilton Reykjavík Nordica og er nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 22. maí.
Lesa meira

16. maí 2012

Námskeið á vegum Nordspråk - Sangskatten i Norden

Í haust, 28. september til 1. október, verður haldið námsskeið á vegum Nordspråk um þann fjárssjóð sem norrænir söngvar eru og hvernig hægt er að nýta hann í kennslu. Dagskrá má skoða hér og einnig á vefnum, sjá hér.
Lesa meira

16. maí 2012

Kjarasamningur FL við Skóla ehf undirritaður

Í morgun, 16. maí, var undirritaður kjarasamningur Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Skóla ehf með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Lesa meira

15. maí 2012

Ársfundur LSR og LH

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga verður haldinn þriðjudaginn 22. maí á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 15:00.
Lesa meira

15. maí 2012

Endurmenntun framhaldsskólakennara

Næsti umsóknarfrestur fyrir styrki sem Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara - SEF úthlutar til endurmenntunar framhaldsskólakennara er 31. október.
Lesa meira

15. maí 2012

Námskeið hjá Endurmenntun HÍ

Endilega athugið þessi áhugaverðu námskeið.
Lesa meira

11. maí 2012

Úthlutun Sprotasjóðs

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013. Sjá nánar frétt ráðuneytisins hér.
Lesa meira

8. maí 2012

Jafnréttisfræðsla í skólum

Ráðstefna Jafnréttisnefndar KÍ um jafnréttisfræðslu í skólum verður haldin í Skriðu á Menntavísindasviði HÍ miðvikudaginn 16. maí næstkomandi kl. 13:30-16:30. Á henni verður innleiðing, mikilvægi og skylda jafnréttisfræðslu í skólum á öllum skólastigum tekin fyrir og rædd. Þrír fyrirlesarar verða, einn af hverju skólastigi.
Lesa meira

7. maí 2012

Úrslit í rafrænni allsherjaratkvæðagreiðslu

Í morgun lauk allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara innan Kennarasambands Íslands um kjarasamning FL og Samtaka sjálfstæðra skóla sem skrifað var undir þann 12. apríl sl.
Lesa meira

7. maí 2012

Vissir þú að ...

... kennarar eru taldir vera í mestri áhættu að skaða röddina við vinnu sína?
Lesa meira

2. maí 2012

Kjarasamningur Kennarasambands Íslands vegna FL við Samtök sjálfstæðra skóla - Rafræn atkvæðagreiðsla hafin

Stjórn Félags leikskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands í Félagi leikskólakennara. Atkvæði eru greidd um kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Samtök sjálfstæðra skóla eftir umboði rekstraraðila sem var undirritaður 12. apríl 2012 með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli