
31. ágú. 2012
Málþingið sem er haldið föstudaginn 31. ágúst, kl. 13:30-16:30 í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði verður sent út á vefsíðunni
www.gaflari.is. Táknmálstúlkun verður einnig í útsendingu. Allar nánari upplýsingar er að finna
hér.
Lesa meira31. ágú. 2012
- haldið í samvinnu Félags um hugræna atferlismeðferð og Endurmenntunar Háskóla Íslands. Umsóknarfrestur er til 5. september.
Lesa meira
29. ágú. 2012
Föstudaginn 14. september næstkomandi mun Dr. Arna H. Jónsdóttir flytja fyrirlestur um doktorsritgerð sína: Faglegt hlutverk, forysta og sjálfsmynd íslenskra leikskólakennara: Skoðanir hagsmunaaðila. Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 15:30 í fyrirlestrasal Bratta í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Lesa meira29. ágú. 2012
Lögfræðingur Kennarasamband Íslands hefur gert samantekt á áliti umboðsmanns Alþingis á nokkrum þáttum um ráðningarmál, auglýsingar og meðferð ráðningasamninga.
Lesa meira
28. ágú. 2012
Skráning í ferðina er
hér og lýkur henni þriðjudaginn 4. september.
Lesa meira27. ágú. 2012
Eins og undanfarin ár sendir velferðarvaktin bréf til sveitastjórna og fleiri aðila þar sem hvatt er til þess að huga að líðan barna við upphaf skólaárs ásamt því að halda í lágmarki kostnaði við kaup á skólavörum og skólamáltíðum og vegna þátttöku í frístundastarfi. Bréfið er að finna
hér.
Lesa meira
23. ágú. 2012
Listin að leika er vefur sem kynnir nýtt efni í tónlistarkennslu. Þar segir frá hugmyndafræði Albertos Porro Carmona, tónlistarkennara og hljómsveitarstjóra á Akureyri, um hvernig örva megi áhuga og tjáningu ungra tónlistarnema. Á vefnum má lesa um hugmyndafræði hans og skoða sýnishorn að bókinni
Listin að leika á saxófón sem kom út í sumar.
Félag tónlistarskólakennara er meðal stuðningsaðila verkefnisins.
Lesa meira
22. ágú. 2012
Menntabúðir (EduCamp) um upplýsingatækni í sérkennslu eru á döfinni. Búðirnar verða haldnar í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ föstudaginn 28. september n.k. kl. 14 til 18. 3f í samvinnu við FLS, FÍS, FSF, TMF, epli.is, A4, Varmás og fleiri standa að búðunum - og bjóða alla hjartanlega velkomna.
Lesa meira
21. ágú. 2012
Kynningarnámskeið á tónlistarefni frá Höfum gaman fyrir kennara/starfsfólk leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla verða haldin á Akureyri 31. ágúst og í Kópavogi 7. september. Á námskeiðunum verður farið yfir kennsluefnið Gaman saman með Karnivali dýranna, Gaman saman með Pétri og úlfinum og Við spilum og leikum við litlu börnin.
Lesa meira17. ágú. 2012
Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda í leikskólum boða til fræðslufunda um nýja aðalnámskrá fyrir leikskóla í samvinnu við Reykjavíkurborg. Fræðslumorgnarnir verða þriðjudaginn 13. september, föstudaginn 17. september og mánudaginn 20. september í Borgartúni 12, 7. hæð - Kerhólum kl. 8:30-11:30.
Lesa meira17. ágú. 2012
Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS) Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mun standa fyrir leiðbeinendanámskeiði í 14. september nk. fyrir þá sem hafa áhuga á að halda Snillinganámskeið fyrir börn með ADHD.
Lesa meira
17. ágú. 2012
Umsóknarfrestur til að sækja um styrk til að sitja ráðstefnuna „Reflecting Remembrance. Teaching History for a Common Culture of Remembrance?“ rennur út 17. september nk. Ráðstefnan er haldin í samvinnu Sambands evrópskra sögukennara og Sambands sögukennara í Þýskalandi, 7.-13. apríl 2013 í Erfurt í Þýskalandi.
Lesa meira
16. ágú. 2012
Opnaður hefur verið nýr vefur um sjálfsmynd og líkamsmynd barna og unglinga. Hann er þverfaglegt samstarfsverkefni sálfræðinga, náms- og starfsráðgjafa og kennara og að verkefninu koma Elva Björk Ágústsdóttir, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, Anna Sigríður Jökulsdóttir, María Hrönn Nikulásdóttir og Guðbjörg Pálsdóttir. Vefurinn er verkfærakista sem verður í stöðugri þróun. Verkefni sem styrkja sjálfsmynd og líkamsmynd barna og unglinga verða sett inn á hann auk upplýsinga um málefnið.
Lesa meira16. ágú. 2012
Opnað hefur verið fyrir skráningu þátttakenda á máþingið „Lærum hvert af öðru - virkjum grunnþættina“ sem mennta- og menningarmálaráðuneytið heldur í samvinnu við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði föstudaginn 31. ágúst nk. kl. 13:30-16:30. Skráningu lýkur miðvikudaginn 29. ágúst.
Lesa meira15. ágú. 2012
Háskólinn á Bifröst býður í haust upp á sérsniðið fjarnám fyrir stjórnendur stofnana og sviða hjá sveitarfélögum. Námið kallast Sterkari stjórnsýsla og var í fyrsta sinn boðið upp á það í febrúar 2012. Námið er kennt í blönduðu námi; þ.e. fjarnám og stuttar vinnulotur á Bifröst sem eru samtals þrjár yfir önnina. Ein námsgrein er kennd í einu og vinna þátttakendur samhliða náminu að raunhæfu verkefni að eigin vali. Umsóknarfrestur er til 1. september.
Lesa meira15. ágú. 2012
Fyrr í dag áttu fulltrúar heildarsamtaka opinberra starfsmanna fund með fjármálaráðherra vegna hugsanlegra breytinga á lífeyrismálum þeirra. Þar var fjármálaráðherra afhent eftirfarandi
bréf um áætlun og leiðarljós heildarsamtaka opinberra starfsmanna í viðræðum um málefni LSR. Sjá bréf
hér.
Lesa meira13. ágú. 2012
Enn eru nokkur laus pláss á aukanámskeið um kynja- og jafnréttisfræðslu á framhaldsskólastigi sem hefst þann 14. ágúst. Námskeiðið er haldið á vegum Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara og er ætlað framhaldsskólakennurum. Markmið námskeiðsins er að þjálfa kennara til farsællar kynja- og jafnréttisfræðslu.
Lesa meira
10. ágú. 2012
Mennta- og menningarmálaráðuneytið heldur í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga málþing um grunnþætti í nýrri menntastefnu. Grunnþættirnir eru kynntir í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2011. Málþingið er haldið í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 31. ágúst, frá kl. 13:30-16:30.
Lesa meira10. ágú. 2012
Meðal annarra áhugaverðra námskeiða hjá Endurmenntun HÍ er námskeiðið
Þögnin er aldrei hlutlaus - Kynja- og jafnréttisfræðsla. Um er að ræða tvo námskeið, annars vegar fyrir mið- og efsta stig grunnskóla og hins vegar fyrir leikskólakennara og kennara á yngsta stigi.
Lesa meira
9. ágú. 2012
Kennarar eru áberandi í hópi friðarsinna og hér með minnum við á hina árlegu kertafleytingu til minningar um fórnarlömb kjarnorkusprengjanna í Hiroshima og Nagasaki í ágúst 1945.
Lesa meira
8. ágú. 2012
Í fréttum RÚV í gærkvöldi 7. ágúst var viðtal við Ingibjörgu Guðmundsdóttur, skólameistara í Kvennaskólanum í Reykjavík, Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Björn Val Gíslason, varaformann fjárlaganefndar. Ingibjörg sagði að tugmilljóna króna tap blasti við mörgum framhaldsskólanna á þessu ári vegna niðurskurðar undanfarinna ára og því nauðsynlegt að leiðrétta stöðu þeirra.
Lesa meira