Eftir árum

27. des. 2012

Andlát

Brynhildur Ólafsdóttir, skólastjóri Háaleitisskóla, lést á líknardeild Landspítalans 18. desember sl.
Lesa meira

21. des. 2012

Jóla opnunartími Kennarahússins

Kennarahúsið verður opið 27. og 28. desember frá 9:00 til 16:00. Lokað verður miðvikudaginn 2. janúar en opnað aftur kl. 9:00 fimmtudaginn 3. janúar.
Lesa meira

21. des. 2012

Félagsmenn í fæðingarorlofi - annaruppbót/persónuuppbót 1. desember 2012

Að gefnu tilefni viljum við koma því á framfæri að félagsmenn í fæðingarorlofi eiga einnig rétt á annaruppbót/persónuuppbót þann 1. desember miðað við starfshlutfall eins og þeir sem eru í starfi. Þó þarf að skoða sérstaklega hlutfall annaruppbótar/persónuuppbótar þeirra sem eru í framlengdu fæðingaorlofi.
Lesa meira

20. des. 2012

Jólastyrkur KÍ 2012

Velferðarsjóður barna, Framtíðarsjóður ungmenna og "kortaleið" Hjálparstarfs kirkjunnar fá jólastyrk KÍ í ár.
Lesa meira

20. des. 2012

Félagsmenn athugið!

Lokað verður í Kennarahúsinu í dag, 20. desember, frá 12:00 til 13:00.
Lesa meira

18. des. 2012

Mínar síður ...

... eru komnar í lag.
Lesa meira

17. des. 2012

Þjöppum okkur saman og náum árangri

Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður FF ritaði grein sem birtist á Smugunni 14. desember sl. þar bregst hún við gagnrýni Baldurs J. Baldurssonar framhaldsskólakennara sem birt var á sama miðli þann 12. desember.
Lesa meira

17. des. 2012

Úttektir á leikskólum til Námsmatsstofnunar

Í frétt frá mennta- og menningarmálaráðuneyti segir að frá og með 1. janúar 2013 flytjist umsjón og framkvæmd ytra mats á leikskólum frá ráðuneytinu til Námsmatsstofnunar.
Lesa meira

17. des. 2012

Fleiri framhaldsskólakennarar með kennsluréttindi í nóvember 2011

Hagstofa Íslands birtir frétt á heimasíðu sinni í dag þar sem m.a. greint er frá því að aldrei fyrr hafi jafn margir kennarar með full réttindi starfað í framhaldsskólum landsins eða 86,3%. Hlutfall þeirra er þó heldur lægra úti á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
Lesa meira

14. des. 2012

Átak í útgáfu- og kynningarmálum Félags framhaldsskólakennara

Félag framhaldsskólakennara setti á stefnuskrá sína á síðasta aðalfundi að efla kynningarstarf á vegum félagsins. Kynninganefnd var í framhaldi skipuð í nóvember 2012.
Lesa meira

13. des. 2012

Félagsmenn athugið!

Til þess að umsóknir í Verkefna- og námsstyrkjasjóð FG og SÍ (Vonarsjóð), Vísindasjóð FL og FSL og Sjúkrasjóð KÍ, verði afgreiddar fyrir áramót, þurfa þær ásamt fylgiskjölum að berast fyrir 16. desember nk.
Lesa meira

13. des. 2012

Jórunn Tómasdóttir skrifar grein á visir.is og gagnrýnir skert fjárframlög til Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Nú er lag fyrir þingmennina okkar að þeir taki málið upp, skoði það ofan í kjölinn og berjist fyrir áframhaldandi öflugri starfsemi Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Lesa meira

12. des. 2012

Snillingarnir - Námskeið fyrir börn með ADHD

Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS) Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mun standa fyrir leiðbeinendanámskeiði í febrúar 2013 fyrir þá sem hafa áhuga á að halda Snillinganámskeið fyrir börn með ADHD.
Lesa meira

12. des. 2012

Mat á stöðu kjaramála í framhaldsskólum og stefna vegna kjarasamninga 2014

Stjórn Félags framhaldsskólakennara hefur sent frá sér mat á stöðu kjaramála félagsmanna KÍ í framhaldsskólum nú í árslok 2012 og stefnu um aðgerðir vegna kjarasamninga 2014.
Lesa meira

11. des. 2012

Félagar í KÍ/framhaldsskóla eru með svipuð mánaðarlaun og hjúkrunarfræðingar

Í fréttum ríkisútvarpsins 7. desember sl. var fjallað um laun hjúkrunarfræðinga og þau borin saman við laun annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna. Þar kemur fram að félagar í KÍ eru með mjög svipuð mánaðarlaun og hjúkrunarfræðingar.
Lesa meira

10. des. 2012

Skipulag menntamála í Evrópuríkjum

Hvenær hefja börn skólagöngu í Finnlandi? Hvað tekur framhaldsnám mörg ár í Þýskalandi? Hvað er háskólanám langt í Belgíu?
Lesa meira

10. des. 2012

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku vorið 2013

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.
Lesa meira

10. des. 2012

Tónlistarmyndband um grunnskólann

Þrir kennarar í grunnskólanum í Vodskov tóku sig til og bjuggu til stórskemmtilegt tónlistarmyndband um inntak og markmið grunnskóla.
Lesa meira

7. des. 2012

Ályktun stjórnar KÍ vegna niðurskurðar árlegra styrkja til faggreinafélaga

Á fundi sínum 7. desember 2012 ályktaði stjórn KÍ eftirfarandi: Kennarasamband Íslands mótmælir ítrekuðum niðurskurði á styrkjum mennta- og menningarmálaráðuneytis til starfsemi faggreinafélaga undanfarin fjögur ár.
Lesa meira

7. des. 2012

Skólastarf í framhaldsskólum í skugga niðurskurðar

Athygli er vakin á grein eftir Aðalheiði Steingrímsdóttur, formann Félags framhaldsskólakennara, og Hrafnkel Tuma Kolbeinsson, varaformann Félags framhaldsskólakennara, sem birtist í Fréttablaðinu í dag, 7. desember.
Lesa meira

7. des. 2012

Félagsmenn athugið!

Orlofssjóð KÍ vantar fleiri orlofshús til leigu næsta sumar. Ef félagsmenn vita um hús sem sjóðurinn gæti leigt á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austfjörðum eða Suðurlandi, endilega hafið samband í netfangið orlof hjá ki.is.
Lesa meira

5. des. 2012

Menntamálaskýrsla úr tengslum við veruleika skólastarfsins

Nýlega kynnti starfshópur undir forystu Skúla Helgasonar alþingismanns og varaformanns menntamálanefndar, tillögur sínar um samþættingu menntunar og atvinnu. Verulegum hluta skýrslunnar er beint að framhaldsskólanum á Íslandi. Í upphafi vekur athygli að framhaldsskólinn átti engan fulltrúa í þessum starfshópi ef frá er talinn einn starfandi skólameistari einkarekins framhaldsskóla.
Lesa meira

4. des. 2012

Kjaraviðræðum Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga vísað til ríkissáttasemjara

Í viðræðunum undanfarna mánuði voru ekki lagðar fram eiginlegar kröfugerðir. Gengið var út frá sameiginlegri vinnu samningsaðila meðal annars viðamikilli skoðanakönnun sem rúmlega 60% grunnskólakennara tóku þátt í fyrr á þessu ári. Niðurstöður hennar voru sendar kennurum í haust. Einnig lágu til grundvallar dagbókarfærslur um 70 kennara, sem skráðu alla vinnu sína til að samningsaðilar gætu betur áttað sig á umfangi starfs þeirra og breytingum sem orðið hafa á kennarastarfinu síðustu misseri. Að auki hefur samninganefnd FG ýmsar kannanir frá liðnum árum til að styðjast við, ábendingar frá fagfélögum kennara og umræður og ábendingar frá fjölmörgum fundum með trúnaðarmönnum og kennurum um land allt, síðustu misseri.
Lesa meira

3. des. 2012

Kaldar kveðjur til faggreinafélaga

Styrkir mennta- og menningarmálaráðuneytis til starfsemi faggreinafélaga voru lækkaðir í haust þriðja árið í röð. Þeir nema nú 150 þúsund krónum á ári á hvert félag, óháð fjölda félagsmanna eða hvert umfang starfseminnar er.
Lesa meira

26. nóv. 2012

Sigríður Sveinsdóttir heiðursfélagi FT

Sigríður Sveinsdóttir, píanókennari og fyrrverandi formaður Félags tónlistarskólakennara, var gerð að heiðursfélaga Félags tónlistarskólakennara á afmælisársfundi FT 24. nóvember sl. á Grand Hóteli.
Lesa meira

26. nóv. 2012

Heiðursfélagi látinn

Valborg Sigurðardóttir, fv. skólastjóri Fósturskóla Íslands og heiðursfélagi í Félagi leikskólakennara lést 25. nóvember sl. Útför hennar fer fram frá Neskirkju í dag 30. nóvember. Björg Bjarnadóttir varaformaður KÍ, Ingibjörg Kristleifsdóttir formaður FSL og Haraldur F. Gíslason formaður FL rituðu um hana minningargrein. Hún er hér.
Lesa meira

26. nóv. 2012

Allir stundi nám og vinnu við sitt hæfi - Ályktun

Framkvæmdastjórn skólamálaráðs Kennarasambands Íslands fjallaði á fundi sínum 23. nóvember 2012 um skýrslu stýrihóps forsætisráðuneytisins Allir stundi nám og vinnu við sitt hæfi. Þar eru settar fram tillögur hópsins um samþættingu menntunar og atvinnulífs. Framkvæmdastjórnin gerir alvarlegar athugasemdir við að ekki var óskað eftir fulltrúa kennarasamtakanna í stýrihópinn þar sem kennarar og skólastjórnendur bera hitann og þungann af daglegu skipulagi og framkvæmd skólastarfs í landinu.
Lesa meira

22. nóv. 2012

Yfirlýsing stjórnar KÍ vegna fréttar í Fréttablaðinu 14. nóvember 2012

Stjórnarfundur Kennarasambands Íslands haldinn föstudaginn 16. nóvember sl. fól formanni KÍ að bregðast við frétt Fréttablaðsins 14. nóvember sl. um vísindasjóð Félags framhaldsskólakennara en þar er vísað í frétt í sama blaði frá í október 2011 um meint bókhaldsbrot hjá Kennarasambandinu.
Lesa meira

21. nóv. 2012

Grunnskóli á grænu ljósi

Grunnskóli á grænu ljósi er yfirskrift átaks í umferðaröryggismálum í grunnskólum sem þrír ráðherrar hrundu formlega af stað í dag. Skrifuðu ráðherrarnir undir bréf sem sent verður grunnskólum og hnykkt á þremur mikilvægur öryggisatriðum sem eru: notkun endurskinsmerkja, öruggar ferðaleiðir og öryggi barna er nota skólabíla.
Lesa meira

21. nóv. 2012

Annaruppbót/persónuuppbót 1. desember 2012

Á vef KÍ er hægt að skoða hver upphæð annar- eða persónuuppbótar er fyrir desember 2012.
Lesa meira

20. nóv. 2012

Skólavarðan er komin út

Skólavarðan 2. tbl. 2012 er komin út á vef Kennarasambandsins. Meðal efnis í blaðinu er ítarleg umfjöllun um málþing um starfsþróun kennara á öllum skólastigum. Meðal efnis í blaðinu er ítarleg umfjöllun um málþing um starfsþróun kennara á öllum skólastigum.
Lesa meira

19. nóv. 2012

Syngjum saman í annað sinn

Dagur íslenskrar tónlistar er laugardaginn 1. desember næstkomandi og líkt og í fyrra verður margt um dýrðir að því tilefni.
Lesa meira

15. nóv. 2012

Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember

Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður nú fagnað í sautjánda sinn. Í skólum landsins og á vegum margra annarra stofnana og samtaka verður dagsins minnst með margvíslegum hætti.
Lesa meira

14. nóv. 2012

Til kennara í Félagi framhaldsskólakennara

Tilefni þessa pósts eru niðurstöðurnar í atkvæðagreiðslunni í ríkisreknum framhaldsskólum um samkomulag KÍ/framhaldsskóla og fjármálaráðherra, sem lágu fyrir í gær.
Lesa meira

14. nóv. 2012

Framhaldsdeild á Hvammstanga

Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra og Húnaþing vestra undirrituðu samning um starfsemi framhaldsdeildar á Hvammstanga 12. nóvember sl.
Lesa meira

14. nóv. 2012

Námskeið í upplýsingarétti almennings: Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga

Námskeið um upplýsingarétt almennings: Framkvæmd og túlkun upplýsingalaga nr. 50/1996 verður haldið fimmtudaginn 22. nóvember kl. 13-17 í Húsnæði Endurmenntunar HÍ við Dunhaga.
Lesa meira

13. nóv. 2012

Niðurstöður atkvæðagreiðslu í ríkisreknum framhaldsskólum um samkomulag KÍ og fjármálaráðherra

Þann 12. nóvember sl. lauk allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum innan Kennarasambands Íslands um samkomulag Kennarasambands Íslands vegna ríkisrekinna framhaldsskóla og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs sem skrifað var undir þann 24. október sl. með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Lesa meira

13. nóv. 2012

Kynningarnámskeið fyrir kennara og sérkennara

Um er að ræða kynningu á HLJÓM-2 sem er skimunarpróf fyrir börn á síðasta ári í leikskóla. Farið verður í undirstöðuatriði prófsins og forspárgildi þess fyrir lestrarnám, námsgengi og líðan í grunnskólanum.
Lesa meira

9. nóv. 2012

Rafræn atkvæðagreiðsla félagsmanna FF og FS í ríkisreknum framhaldsskólum um samkomulag KÍ/framhaldsskóla og fjármálaráðherra

Rafræn atkvæðagreiðsla um samkomulag KÍ/framhaldsskóla og fjármálaráðherra hefst kl. 8:00 mánudaginn 5. nóvember og lýkur kl. 18:00 mánudaginn 12. nóvember. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er.
Lesa meira

9. nóv. 2012

Ábending um grein

Ábending um grein Baldurs J. Baldurssonar framhaldsskólakennara í Tækniskólanum „Glapræði í nýjum kjarasamningi Félags framhaldsskólakennara“ sem birtist á Smugunni, 9. nóvember sl.
Lesa meira

9. nóv. 2012

Mennta- og menningarmálaráðherra vill snúa vörn í sókn

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Hún segir að gert sé ráð fyrir aukafjárveitingu til framhaldsskólanna í frumvarpi til fjáraukalaga og viðbótarfjármagni til framhaldsskóla fyrir aðra umræðu fjárlagafrumvarps.
Lesa meira

8. nóv. 2012

8. nóvember - Dagur gegn einelti

Í dag 8. nóvember er í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti. Allir eru hvattir til að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti á vefsíðunni Í þínum sporum. Frístundasvið Reykjavíkur hefur útbúið verkefnabanka til efla færni í samskiptum.
Lesa meira

5. nóv. 2012

Kynningarfundur um Sjúkrasjóð KÍ

KR, KFR og KMSK boða til kynningarfundar um Sjúkrasjóð KÍ. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 20. nóvember kl. 17:00 í fyrirlestrarsal Lækjarskóla í Hafnarfirði. Stjórn sjóðsins mun kynna sjóðinn og svara fyrirspurnum félagsmanna.
Lesa meira

5. nóv. 2012

Svar Aðalheiðar Steingrímsdóttur formanns FF við grein Baldurs J. Baldurssonar framhaldsskólakennara og trúnaðarmanns í Tækniskólanum um samkomulag við fjármálaráðherra sem birtist á Smugunni, 4. nóvember sl.

Baldur J. Baldursson heldur því fram að engin þörf sé á endurmati á kennarastarfinu þar sem núverandi kjarasamningur og reglugerð um störf kennara veiti fullt svigrúm til að aðlaga störf kennara að þörfum og óskum hvers skóla. Hér hefði Baldur þurft að rýna betur í innviði vinnutímans og velta fyrir sér hvort hann sé í samræmi við þær breytingar sem hafa orðið á kennarastarfinu á undanförnum árum.
Lesa meira

2. nóv. 2012

Svar Aðalheiðar Steingrímsdóttur formanns FF við grein Guðjóns R. Jónassonar í Fréttablaðinu 1. nóvember

Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara skrifar í tilefni af grein Guðjóns Ragnars Jónassonar í Fréttablaðinu 1. nóvember 2012 um nýgert samkomulag KÍ/framhaldsskóla og fjármálaráðherra.
Lesa meira

2. nóv. 2012

Nokkur orð um kjaramál framhaldsskólakennara í ljósi samkomulags sem atkvæði verða greidd um 5.-12. nóvember 2012.

Samkomulagið byggir á bókunum með gildandi kjarasamningi ( frá maí 2011), sérstöku samkomulagi við menntamálaráðherra og yfirlýsingu sama ráðherra en bæði síðasttöldu gögnin eru fylgiskjöl með kjarasamningi.
Lesa meira

2. nóv. 2012

Skýringar á nokkrum atriðum í samkomulagi frá 24. 10. 2012

Launaþróun KÍ framhaldsskóla borin saman við meðaltal BHM: Í kjarasamningi framhaldsskóla felst ekki samningsbundinn réttur um það að á hverjum tíma skuli dagvinnulaun okkar og heildarlaun vera a.m.k. jöfn og meðaltal BHM. BHM er hins vegar sá samanburðarhópur sem samningsaðilar líta til í umræðu um launaþróun í framhaldsskólum. Í gildandi kjarasamningi er það svo bókun 5 gefur enn einu sinni tilefni til þess að fjalla um þennan samanburð en þó aðeins með tilliti til skólaáranna 2011-12 og 2012-13. Launasig okkar samanborið við BHM hefur orðið til á löngum tíma eða að þessu sinni frá árinu 2006 en áður má t.d. benda á tímabilið milli 1997 og 2000 þegar mismunurinn var um 35% okkur í óhag.
Lesa meira

1. nóv. 2012

Lokaskýrsla um starf samstarfsnefndar um símenntun kennara

Lokaskýrsla um starf samstarfsnefndar um símenntun kennara er komin út. Stýrihópur hefur lokið vinnu við skýrslu og skýrslan er hér með útgefin og birt á vef KÍ.
Lesa meira

31. okt. 2012

Námskeið í frásagnarlist í Danmörku 2013

BestTellers halda námskeið í frásagnarlist: Modern Storytelling for Teachers í Nykøbing í Danmörku í júní 2013. Námskeiðið er m.a. ætlað kennurum innan Evrópusambandsins og EES sem hafa áhuga á að nota frásagnarlist í kennslu. Námskeiðið fer fram á ensku.
Lesa meira

31. okt. 2012

Verkefnabanki til að efla færni barna í samskiptum

Í tilefni Dags gegn einelti 8. nóvember hefur skóla- og frístundasvið Reykjavíkur útbúið sérstakan verkefnabanka með tillögum sem kennarar og frístundaráðgjafar geta nýtt í vinnu með börnum til að efla færni þeirra í samskiptum.
Lesa meira

31. okt. 2012

Skrifaðu undir þjóðarsáttmála gegn einelti

Þann 8. nóvember nk. verður í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti, sjá nánar frétt. Ráðuneytið vill hvetja alla til að veita þessum degi sérstaka athygli og leggja þannig sitt af mörkum í þágu baráttunnar gegn einelti. Á vefsíðunni, Í þínum sporum - Stöndum saman gegn einelti, er hægt að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti.
Lesa meira

30. okt. 2012

Halldór Haraldsson heiðursfélagi FT

Halldór Haraldsson píanóleikari og kennari til margra áratuga varð 75 ára fyrr á þessu ári. Í tilefni afmælisins héldu nemendur hans gegnum árin, samstarfsfólk og velunnarar stórtónleika honum til heiðurs í Salnum í Kópavogi. Á þriðja tug hljóðfæraleikara kom fram auk Halldórs sjálfs. Stjórn Félags tónlistarskólakennara notaði tækifærið og gerði Halldór að heiðursfélaga FT.
Lesa meira

23. okt. 2012

Fræðsludagur fyrir áhugafólk um skólamál

Félag íslenskra sérkennara efnir til fræðsludags mánudaginn 29. október nk. á Grand Hótel í Reykjavík.
Lesa meira

19. okt. 2012

Upptaka af fyrirlestri Johns MacBeath

Fjölmennt var á málþingi um símenntun kennara í Bratta 18. október sl. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnaði málþingið og sagði í leiðinni frá stofnun fagráðs um símenntun og starfsþróun kennara.
Lesa meira

19. okt. 2012

Ritröð um grunnþætti menntunar fyrir öll skólastig

Út eru komin þrjú þemahefti af sex um grunnþætti menntunar. Þeim er m.a. ætlað að stuðla að því að grunnþættirnir verði leiðarvísar í skólastarfinu, auðvelda starfsfólki skóla, kennurum og skólastjórum að átta sig á inntaki þeirra og flétta þá inn í skólastarfið. Ekki er um beinar kennsluleiðbeiningar að ræða heldur má finna í þeim stutta fræðilega umfjöllun um hvern þátt, hugmyndir um leiðir og hagnýtar ábendingar. Bæklingarnir sem út eru komnir fjalla um sköpun, læsi og lýðræði og mannréttindi. Seinni þrjú heftin verða gefin út fyrir áramót.
Lesa meira

16. okt. 2012

Skil skólastiga

Þriðjudaginn 13. nóvember nk. kl. 14:00-17:00 verður haldið málþing i tilefni af útkomu bókarinnar Skil skólastiga - frá leikskóla til grunnskóla og grunnskóla til framhaldsskóla eftir Gerði G. Óskarsdóttur.
Lesa meira

16. okt. 2012

Eplið!

Nýtt og gómsætt epli er komið út!
Lesa meira

15. okt. 2012

Málþing um símenntun kennara í Bratta

Þann 18. október nk. verður haldið málþing um símenntun kennara. Málþingið verður haldið í Bratta, húsi Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð, kl. 14:30 - 16:30. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnar málþingið og tilkynnir um stofnun fagráðs um símenntun og starfsþróun kennara. Guðjón Bragason, Jón Torfi Jónasson og Elna Katrín Jónsdóttir, taka til máls en aðalfyrirlesari verður John MacBeath prófessor emeritus við Cambridge háskóla.
Lesa meira

15. okt. 2012

Ályktun um innleiðingu aðalnámskrá grunnskóla

Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn á Akureyri 13. október 2012 fagnar nýrri aðalnámskrá og þeirri faglegu vinnu sem liggur að baki hennar.
Lesa meira

11. okt. 2012

Vinnuverndarvikan 2012-2013

Árlega er haldin Evrópsk vinnuverndarvika undir forystu Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar (OSHA) og nú er vikan dagana 22.-26. október nk. Yfirskrift Evrópsku vinnuverndarvikunnar árin 2012 og 2013 er Vinnuvernd - allir vinna og er megináherslan lögð á sameiginlega ábyrgð stjórnenda og starfsmanna á vinnuvernd. Þann 23. okt. næstkomandi verður haldin ráðstefna undir sama heiti og hægt verður að fylgjast með henni á vefnum.
Lesa meira

11. okt. 2012

MenntaMiðja

MenntaMiðja er samráðsvettvangur sem er ætlað að byggja brýr milli aðila innan skólasamfélags með því að skapa vettvang til samstarfs um þróun starfisins. MenntaMiðju er ætlað að vera eins konar umgjörð utan um grasrótarstarf sem sprottið hefur upp í tengslum við starf sem unnið hefur verið á Nátturutorgi, Sérkennslutorgi, Tungumálatorgi og víðar.
Lesa meira

11. okt. 2012

Alþjóðadagur stelpna 11. október

Í dag, 11. október, er haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn alþjóðadagur stelpna, United Nations International Day of the Girl. Dagurinn er tileinkaður stelpum og baráttunni gegn kynjamisrétti og fyrir réttindum stelpna alls staðar í heiminum. Það er mjög merkileg vinna stelpna sem liggur að baki þessum degi eins og lesa má um á síðunni dayofthegirl.org/ Til hamingju stelpur!
Lesa meira

11. okt. 2012

Kennaramenntun á Íslandi – Stöndum með kennurum

Í Fréttablaðinu 10. október 2012 er viðtal við Björgvin G. Sigurðsson, formann allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis undir yfirskriftinni „Skoða styttingu náms í þrjú ár“. Kennarasamband Íslands (KÍ) telur það algjörlega galið að forystufólk þjóðarinnar sé í alvöru að hugsa á þessum nótum. Hvar er metnaður og framsýni yfirvalda? Á að kasta út um gluggann framsýnni stefnu sem sett var með heildarendurskoðun á lögum um skólastigin og menntun kennara og skólastjórnenda 2008? - Uppgjöf myndi einhver segja.
Lesa meira

11. okt. 2012

Ráðstefna um klám

Innanríkisráðuneyti, velferðarráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti, í samstarfi við lagadeild Háskóla Íslands, efna til ráðstefnu um klám þriðjudaginn 16. október nk. Á ráðstefnunni verður fjallað um klám út frá lagalegu og samfélagslegu sjónarhorni og því velt upp hvert hlutverk löggjafans og stjórnvalda er í þeim efnum.
Lesa meira

10. okt. 2012

Endurbætur á orlofshúsum KÍ

Orlofshús KÍ gangast núna og á næstunni undir endurbætur innan og utan. Nýjasti meðlimurinn í hópnum er hús nr. 36 í Ásabyggð á Flúðum og eins og sést á meðfylgjandi myndum hefur tekist ljómandi vel til.
Lesa meira

10. okt. 2012

Breytt útlit á bókunarvefnum Frímanni

Orlofssjóður KÍ vill vekja athygli á að búið er að bæta útlit bókunarsíða Orlofssjóðs KÍ í bókunarvefnum Frímanni. Nú eru bókaðir dagar litaðir, hvítir dagar eru lausir og grá litaðir dagar þýða að húsnæðið er ekki í boði þá daga.
Lesa meira

10. okt. 2012

Kennaranámskeið 18. og 19. október 2012

Dagana 18. og 19. október standa samstarfshópur fulltrúa frá ADHD samtökunum, Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Félag grunnskólakennara, SAMFOK, Heimili og skóli, Skólastjórafélag Reykjavíkur, Kennarafélag Reykjavíkur og ýmsir sérfræðingar fyrir námskeiði undir heitinu Skólaganga barna með athyglisbrest og ofvirkni fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla.
Lesa meira

9. okt. 2012

Lady Gaga í Skólavörðunni

Í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar er grein um samtökin Born this way sem Lady Gaga og móðir hennar Cynthia Germanotta stofnuðu í fyrra. Markmiðið þeirra er að vinna að umburðarlyndu samfélagi þar sem fjölbreytni er hyllt og einstaklingar metnir að verðleikum og efldir til góðra verka.
Lesa meira

9. okt. 2012

Vaxtarsprotar í skólastarfi

Samtök áhugafólks um skólaþróun og Sprotasjóður efna til ráðstefnu í Lækjarskóla í Hafnarfirði 9.-10. nóvember nk. Hlutverk Sprotasjóðs er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Kynnt verða tæplega 50 þróunarverkefni frá öllum skólastigum sem fengið hafa styrk úr Sprotasjóði á undanförnum árum.
Lesa meira

9. okt. 2012

MenntaMiðja suðupottur hugmynda og þekkingar

Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um MenntaMiðju, samráðsvettvang um skóla- og frístundastarf. Að samkomulaginu standa Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri og Reykjavíkurborg. Undirritunin og opnun vefsíðu MenntaMiðju fór fram í lok Menntakviku, ráðstefnu Menntavísindasviðs, föstudaginn 5. október.
Lesa meira

8. okt. 2012

Þögnin er aldrei hlutlaus - opinn umræðufundur um jafnréttisfræðslu í skólum

Þriðjudaginn 9. október nk. verður haldinn opinn umræðufundur um jafnréttisfræðslu í skólum.
Lesa meira

8. okt. 2012

Íslenska óperan - Il Trovatore

Þann 20. október mun Íslenska óperan frumsýna Il Trovatore eftir Verdi í Eldborgarsal Hörpu. Félagsmönnum Kennarasambands Íslands er boðinn hópafsláttur á óperuna sem verður sýnd til 17. nóvember. Hér er kynningarblað um Il Trovatore og upplýsingar um afsláttinn til smærri og stærri hópa, dagsetningar og fleira.
Lesa meira

8. okt. 2012

ADHD námskeið 18. og 19. október

ADHD samtökin verða með námskeið fyrir fagfólk, kennara og annað starfsfólk í grunnskóla fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19. október. Námskeiðið gæti einnig gagnast framhaldsskólakennurum. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands og verður einnig í boði í fjarfundi ef þess verður óskað.
Lesa meira

5. okt. 2012

Sérblað KÍ með Fréttablaðinu

Í tilefni alþjóðadags kennara gefur Kennarasamband Íslands út sérblað sem fylgir Fréttablaðinu í dag föstudaginn 5. október. Þema blaðsins er Stöndum með kennurum. Tilgangur útgáfunnar er að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem fram fer í skólum landsins og því lykilhlutverki sem kennarar gegna þar. Í blaðinu eru greinar, viðtöl við kennara og myndir úr skólalífi tónlistar-, leik-, grunn-, og framhaldsskóla. Menntamálaráðherra, fulltrúi nemenda, fulltrúi foreldra og fleiri fá orðið og lýsa því hvernig þeir ætla að standa með kennurum. Forystumenn kennarasambandsins og alþjóðasamfélagsins senda kveðjur og hvatningarorð til kennara, almennings og ráðamanna.
Lesa meira

5. okt. 2012

Til hamingju kennarar!

Í tilefni af alþjóðlegum degi kennara 5. október viljum við í framkvæmdastjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema, fyrir hönd allra íslenskra framhaldsskólanema, óska kennurum nær og fjær innilega til hamingju með daginn. Barátta okkar framhaldsskólanema fyrir bættum hagsmunum hefur lengi verið strembin og í hugum margra framhaldsskólanema er fátt mikilvægara en sú þörf að láta rödd sína heyrast. Miklum árangri hefur verið náð í þessari baráttu okkar frá stofnun Iðnnemasambands Íslands en fyrir u.þ.b. 5 árum tók Samband íslenskra framhaldsskólanema við keflinu og sór að standa áfram vörð um hagsmuni nemenda og þjóna sem sameiginleg rödd þeirra.
Lesa meira

5. okt. 2012

Til hamingju með alþjóðadag kennara!

Alþjóðadagur kennara hefur verið haldinn hátíðlegur um nokkurt árabil. Þann dag vekja alþjóðasamtök kennara og hvert og eitt land athygli á starfi kennara um leið og þrýst er á um umbætur í skólamálum. Yfirskrift dagsins í ár er Stöndum með kennurum.
Lesa meira

5. okt. 2012

Menntun og mannúð

Fjársöfnum KÍ til styrktar Moyamba-athvarfinu í Síerra Leóne er nú í fullum gangi. Með söfnuninni hrindir KÍ í framkvæmd samþykkt frá síðasta þingi og tekur þátt í alþjóðlegu uppbyggingarstarfi til að efla menntun. Fólki gefst kostur á að greiða mismunandi upphæð með því að hringja í mismunandi númer.
Lesa meira

4. okt. 2012

Málþing um barnaheimspeki - Hver er heimspekin í barnaheimspekinni?

Laugardaginn 13. október 2012, kl. 10:00-15:00, verður efnt til málþings um barnaheimspeki í Verzlunarskóla Íslands, Græna salnum, en þar munu reyndir heimspekikennarar leggja fram hugleiðingar um heimspeki og heimspekikennslu sem þátttakendur geta síðan tekið til umræðu.
Lesa meira

3. okt. 2012

Menntakvika: Ráðstefna Menntavísindasviðs 5. október

Árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands verður haldin þann 5. október, kl. 9:00-17:00, undir heitinu Menntakvika: rannsóknir, nýbreytni og þróun. Megintilgangur ráðstefnunnar er að skapa mennta- og uppeldisstéttum vettvang til að kynnast nýbreytni í rannsókna- og þróunarstarfi sem unnið er í skólum landsins og innan háskólaumhverfisins. Yfir 150 erindi verða flutt um fjölbreytt málefni s.s. spjaldtölvur í námi, kyngervi og menntun, samfélagslega ábyrgð háskóla og banka, viðhorf til eineltis, notkun samfélagsmiðla, notkun fæðubótarefna, að læra til telpu og drengs og margt fleira spennandi.
Lesa meira

3. okt. 2012

Það er leikur að læra - ráðstefna í Salnum í Kópavogi 2. nóvember

Föstudaginn 2. nóvember verður ráðstefnan Það er leikur að læra haldin í Salnum í Kópavogi.
Lesa meira

2. okt. 2012

Heilsumatur – námskeið

Hvernig má auka næringu í mataræði á einfaldan hátt? Hvað á ég að borða? Hvernig á að matreiða heilsuvörur? Hvað er til ráða þegar ofnæmi eða óþol herjar á fólk? Hvernig er hægt að gera bragðgóðan heilsumat og spara tíma og peninga í leiðinni?
Lesa meira

2. okt. 2012

Friðarþing skáta 2012

Í tilefni 100 ára afmæli skátahreyfingarinnar á Íslandi munu skátarnir bjóða til Friðarþings 12. - 14. október nk. í Hörpu.
Lesa meira

28. sep. 2012

Samband við Samband úr sambandi

Ingibjörg Kristleifsdóttir formaður FSL og Haraldur F Gíslason formaður FL skrifa:

Félag leikskólakennara, foreldrasamfélagið og aðrir velunnarar leikskólans fögnuðu þann 1. júlí 2008 þegar ný lög um leikskóla og lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum tóku gildi. Áfanga var náð. Samfélagið var búið að staðfesta það með enn skýrari hætti en áður að leikskólinn væri hluti af menntakerfinu og að sömu kröfur skyldi gera til kennara á öllum skólastigum. Leikskólinn, vagga lýðræðisins, var viðurkenndur sem undirstaða skólakerfisins.
Lesa meira

26. sep. 2012

Trúnaðarmannanámskeið FL

Í október verða haldin námskeið fyrir trúnaðarmenn Félags leikskólakennara. Námskeiðin verða 5 talsins, þar af eitt sem haldið verður í Reykjavík, eingöngu ætluð nýliðum í hópi trúnaðarmanna, þ.e. þeim sem hafa ekki sótt nýliðanámskeið áður. Skráningu lauk 25. september
Lesa meira

26. sep. 2012

Upptaka frá eineltismálþingi

Skólastjórafélag Íslands hélt málþing undir yfirskriftinni: Unnið gegn einelti - aðgerðir og ábyrgð þann 25. september sl. á Grand hóteli. Til umræðu var ábyrgð og aðgerðir skólastjóra gegn einelti. Tilgangurinn er að efla málefnalega umfjöllun og styrkja samvinnu allra aðila sem að uppeldi barna koma til að spyrna fótum við þeim vágesti sem einelti er. Upptaka frá málþinginu verður aðgengileg fyrir áhugasama næstu tvær vikunar.
Lesa meira

25. sep. 2012

Skólavarðan er komin út

Skólavarðan 1. tbl. 2012 er komin út. Blaðinu hefur verið dreift í takmörkuðu upplagi í alla skóla landsins. Blaðið er aðgengilegt í rafrænu formi til vinstri á forsíðu KÍ.
Lesa meira

25. sep. 2012

Engilráð andarungi og Sjónarhóll

Fyrir nokkru kom Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, færandi hendi til Sjónarhóls með ávísun að andvirði 363 þúsund krónur. Peningurinn var afrakstur styrktartónleika sem Félag leikskólakennara stóð fyrir sumarið 2011 í aðdraganda boðaðs verkfalls leikskólakennara og átti ágóðinn að renna til sveitarfélaga. Við móttöku ávísunarinnar til Sambands íslenskra sveitarfélaga tilkynnti Halldór að upphæðin yrði látin renna til Sjónahóls. Sjónarhóll þakkaði kærlega veittan styrk og ákvað þegar í stað að nýta upphæðina til að gefa öllum leikskólum landsins Engilráðarbrúðu og brosbók Engilráðar.
Lesa meira

25. sep. 2012

Málþingið: Unnið gegn einelti - aðgerðir og ábyrgð

ATH: hægt að skrá sig núna! Skólastjórafélag Íslands heldur málþing undir yfirskriftinni: Unnið gegn einelti - aðgerðir og ábyrgð 25. september, kl. 13:00-16:00 á Grand hóteli. Til umræðu verða ábyrgð og aðgerðir skólastjóra gegn einelti. Tilgangurinn er að efla málefnalega umfjöllun og styrkja samvinnu allra aðila sem að uppeldi barna koma til að spyrna fótum við þeim vágesti sem einelti er. Skólastjórnendur, kennarar og aðrir sem áhuga hafa af samskiptamálum eru velkomnir á málþingið.
Lesa meira

25. sep. 2012

Hvað tekur við? Ungt fólk með ADHD og fræðsluskyldan

Föstudaginn 28. september nk. kl. 13:00-16:00 standa ADHD samtökin fyrir málþingi undir yfirskriftinni: Hvað tekur við? Ung fólk með ADHD og fræðsluskyldan. Málþingið verður haldið í húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands við Dunhaga og boðið verður upp á það í fjarfundi fyrir landsbyggðarfólk.
Lesa meira

20. sep. 2012

Umsóknir um námslaun vegna framhaldsnáms skólaárið 2013-2014

Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu 2013-2014.
Lesa meira

14. sep. 2012

Haustþing FL og FSL á Suðurlandi 5. október

Haustþing Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla á Suðurlandi verður haldið á Hótel Selfoss og í Selfossbíói föstudaginn 5. október nk. kl. 9:15 til 15:00.
Lesa meira

13. sep. 2012

Námskeið í heimspeki

Laugardaginn 22. september nk. hefst námskeiðið Heimspeki í skólastarfi - Að kenna gagnrýna og skapandi hugsun í samræðu sem Félag heimspekikennara stendur fyrir. Námskeið er tilvalið fyrir grunnskólakennara og aðra sem hafa áhuga á að kenna heimspeki og/eða fá þjálfun í heimspekilegri samræðu.
Lesa meira

13. sep. 2012

Nordplus junior - Styrkir til samstarfs á leik- grunn- og framhaldsskólastigi

Veittir eru styrkir til undirbúningsheimsókna fyrir kennara í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Fyrir þarf að liggja samstarf á milli a.m.k. tveggja samstarfsaðila á Norðurlöndum og/eða Eystrasaltslöndum. Veittir eru styrkir til ferðar og uppihalds. Sjá auglýsingu hér.
Lesa meira

10. sep. 2012

Upplýsinga- og miðlalæsi í þverfaglegu samstarfi við upplýsingaver grunnskóla

Fimmtudaginn 27. september kl. 14:00-16:00, í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð - Bratta, heldur Dr. Ross J. Todd dósent við Rutgers University í New Jersey málstofu um upplýsinga- og miðlalæsi í þverfaglegu samstarfi við upplýsingaver grunnskóla.
Lesa meira

10. sep. 2012

Námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2013-2014

Stjórn Námsleyfasjóðs hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2013-2014. Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 2. október 2012.
Lesa meira

6. sep. 2012

Tilkynning frá Vísindasjóði FL og FSL

Í október ár hvert veitir Vísindasjóður FL og FSL þróunar- og rannsóknarstyrki, styrki til námsefnisgerðar og styrki til einstakra félagsmanna eða hópa félagsmanna, faghópa og nefnda innan félagsins til að halda námskeið og ráðstefnur fyrir félagsmenn. Umsóknarfrestur er til 15. september. Einungis félagsmenn geta sótt um styrki, ekki skólar eða launagreiðendur. Umsóknum skal skilað inn rafrænt á Mínum síðum í síðasta lagi 15. september.
Lesa meira

5. sep. 2012

Faglegt hlutverk, forysta og sjálfsmynd íslenskra leikskólakennara: Skoðanir hagsmunaaðila

Föstudaginn 14. september næstkomandi mun dr. Arna H. Jónsdóttir flytja fyrirlestur um doktorsritgerð sína sem unnin er m.a. útfrá hugtökum Vandenbroeck’s o.fl. (2010) um hlutverk leikskóla og hugmyndir Whitty (2008) og Oberhuemer (2005) um lýðræðislega fagmennsku.
Lesa meira

3. sep. 2012

Skólaþing

Skólaþing er kennsluver Alþingis þar sem grunnskólanemum í 8.-10. bekk gefst kostur á að setja sig í spor þingmanna með því að fara í hlutverkaleik. Efni Skólaþings tengist vel námsefni í lífsleikni og samfélagsgreinum í efstu bekkjum grunnskólans um lýðræðið, lög og reglur og stjórnskipulag Íslands.
Lesa meira

3. sep. 2012

Ráðstefna 12.-13. október 2012

Dagana 12.-13. október nk. verður haldin ráðstefna undir heitinu Skaðleg áhrif hávaða í námsumhverfi barna.
Lesa meira

3. sep. 2012

Námsorlof framhaldsskólakennara og stjórnenda framhaldsskóla

Umsóknarfrestur er til 1. október 2012.
Lesa meira

31. ágú. 2012

Vefslóð á málþingið „Lærum hvert af öðru – virkjum grunnþættina“

Málþingið sem er haldið föstudaginn 31. ágúst, kl. 13:30-16:30 í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði verður sent út á vefsíðunni www.gaflari.is. Táknmálstúlkun verður einnig í útsendingu. Allar nánari upplýsingar er að finna hér.

Lesa meira

31. ágú. 2012

Hugræn atferlismeðferð - nám í undirstöðuatriðum

- haldið í samvinnu Félags um hugræna atferlismeðferð og Endurmenntunar Háskóla Íslands. Umsóknarfrestur er til 5. september.
Lesa meira

29. ágú. 2012

Fyrirlestur 14. september

Föstudaginn 14. september næstkomandi mun Dr. Arna H. Jónsdóttir flytja fyrirlestur um doktorsritgerð sína: Faglegt hlutverk, forysta og sjálfsmynd íslenskra leikskólakennara: Skoðanir hagsmunaaðila. Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 15:30 í fyrirlestrasal Bratta í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Lesa meira

29. ágú. 2012

Ráðningamál

Lögfræðingur Kennarasamband Íslands hefur gert samantekt á áliti umboðsmanns Alþingis á nokkrum þáttum um ráðningarmál, auglýsingar og meðferð ráðningasamninga.
Lesa meira

28. ágú. 2012

Kennarafélag Reykjavíkur býður til haustgöngu 8. september nk.

Skráning í ferðina er hér og lýkur henni þriðjudaginn 4. september.
Lesa meira

27. ágú. 2012

Bréf velferðarvaktarinnar til sveitastjórna og fleiri

Eins og undanfarin ár sendir velferðarvaktin bréf til sveitastjórna og fleiri aðila þar sem hvatt er til þess að huga að líðan barna við upphaf skólaárs ásamt því að halda í lágmarki kostnaði við kaup á skólavörum og skólamáltíðum og vegna þátttöku í frístundastarfi. Bréfið er að finna hér.
Lesa meira

23. ágú. 2012

Listin að leika

Listin að leika er vefur sem kynnir nýtt efni í tónlistarkennslu. Þar segir frá hugmyndafræði Albertos Porro Carmona, tónlistarkennara og hljómsveitarstjóra á Akureyri, um hvernig örva megi áhuga og tjáningu ungra tónlistarnema. Á vefnum má lesa um hugmyndafræði hans og skoða sýnishorn að bókinni Listin að leika á saxófón sem kom út í sumar. Félag tónlistarskólakennara er meðal stuðningsaðila verkefnisins.
Lesa meira

22. ágú. 2012

Menntabúðir um upplýsingatækni í sérkennslu

Menntabúðir (EduCamp) um upplýsingatækni í sérkennslu eru á döfinni. Búðirnar verða haldnar í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ föstudaginn 28. september n.k. kl. 14 til 18. 3f í samvinnu við FLS, FÍS, FSF, TMF, epli.is, A4, Varmás og fleiri standa að búðunum - og bjóða alla hjartanlega velkomna.
Lesa meira

21. ágú. 2012

Höfum gaman, kynningarnámskeið á Akureyri og í Kópavogi

Kynningarnámskeið á tónlistarefni frá Höfum gaman fyrir kennara/starfsfólk leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla verða haldin á Akureyri 31. ágúst og í Kópavogi 7. september. Á námskeiðunum verður farið yfir kennsluefnið Gaman saman með Karnivali dýranna, Gaman saman með Pétri og úlfinum og Við spilum og leikum við litlu börnin.
Lesa meira

17. ágú. 2012

Fræðslumorgnar um nýja aðalnámskrá fyrir leikskóla

Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda í leikskólum boða til fræðslufunda um nýja aðalnámskrá fyrir leikskóla í samvinnu við Reykjavíkurborg. Fræðslumorgnarnir verða þriðjudaginn 13. september, föstudaginn 17. september og mánudaginn 20. september í Borgartúni 12, 7. hæð - Kerhólum kl. 8:30-11:30.
Lesa meira

17. ágú. 2012

Leiðbeinendanámskeið - Snillingarnir

Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS) Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mun standa fyrir leiðbeinendanámskeiði í 14. september nk. fyrir þá sem hafa áhuga á að halda Snillinganámskeið fyrir börn með ADHD.
Lesa meira

17. ágú. 2012

Ráðstefna fyrir sögukennara í Þýskalandi í apríl 2013

Umsóknarfrestur til að sækja um styrk til að sitja ráðstefnuna „Reflecting Remembrance. Teaching History for a Common Culture of Remembrance?“ rennur út 17. september nk. Ráðstefnan er haldin í samvinnu Sambands evrópskra sögukennara og Sambands sögukennara í Þýskalandi, 7.-13. apríl 2013 í Erfurt í Þýskalandi.
Lesa meira

16. ágú. 2012

Nýr vefur - verkefni og upplýsingar um sjálfsmynd barna og unglinga

Opnaður hefur verið nýr vefur um sjálfsmynd og líkamsmynd barna og unglinga. Hann er þverfaglegt samstarfsverkefni sálfræðinga, náms- og starfsráðgjafa og kennara og að verkefninu koma Elva Björk Ágústsdóttir, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, Anna Sigríður Jökulsdóttir, María Hrönn Nikulásdóttir og Guðbjörg Pálsdóttir. Vefurinn er verkfærakista sem verður í stöðugri þróun. Verkefni sem styrkja sjálfsmynd og líkamsmynd barna og unglinga verða sett inn á hann auk upplýsinga um málefnið.
Lesa meira

16. ágú. 2012

Skráning á málþing um grunnþætti menntunar

Opnað hefur verið fyrir skráningu þátttakenda á máþingið „Lærum hvert af öðru - virkjum grunnþættina“ sem mennta- og menningarmálaráðuneytið heldur í samvinnu við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði föstudaginn 31. ágúst nk. kl. 13:30-16:30. Skráningu lýkur miðvikudaginn 29. ágúst.
Lesa meira

15. ágú. 2012

Sérsniðið fjarnám fyrir stjórnendur stofnana og sviða hjá sveitarfélögum

Háskólinn á Bifröst býður í haust upp á sérsniðið fjarnám fyrir stjórnendur stofnana og sviða hjá sveitarfélögum. Námið kallast Sterkari stjórnsýsla og var í fyrsta sinn boðið upp á það í febrúar 2012. Námið er kennt í blönduðu námi; þ.e. fjarnám og stuttar vinnulotur á Bifröst sem eru samtals þrjár yfir önnina. Ein námsgrein er kennd í einu og vinna þátttakendur samhliða náminu að raunhæfu verkefni að eigin vali. Umsóknarfrestur er til 1. september.
Lesa meira

15. ágú. 2012

Fundur formanna BHM, BSRB og KÍ með fjármálaráðherra um lífeyrismál

Fyrr í dag áttu fulltrúar heildarsamtaka opinberra starfsmanna fund með fjármálaráðherra vegna hugsanlegra breytinga á lífeyrismálum þeirra. Þar var fjármálaráðherra afhent eftirfarandi bréf um áætlun og leiðarljós heildarsamtaka opinberra starfsmanna í viðræðum um málefni LSR. Sjá bréf hér.
Lesa meira

13. ágú. 2012

„Fóturinn of stór - eða skórinn of lítill?“ Kynja- og jafnréttisfræðsla á framhaldsskólastigi

Enn eru nokkur laus pláss á aukanámskeið um kynja- og jafnréttisfræðslu á framhaldsskólastigi sem hefst þann 14. ágúst. Námskeiðið er haldið á vegum Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara og er ætlað framhaldsskólakennurum. Markmið námskeiðsins er að þjálfa kennara til farsællar kynja- og jafnréttisfræðslu.
Lesa meira

10. ágú. 2012

Lærum hvert af öðru - virkjum grunnþættina

Mennta- og menningarmálaráðuneytið heldur í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga málþing um grunnþætti í nýrri menntastefnu. Grunnþættirnir eru kynntir í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2011. Málþingið er haldið í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 31. ágúst, frá kl. 13:30-16:30.
Lesa meira

10. ágú. 2012

Námskeið fyrir kennara hjá Endurmenntun HÍ

Meðal annarra áhugaverðra námskeiða hjá Endurmenntun HÍ er námskeiðið Þögnin er aldrei hlutlaus - Kynja- og jafnréttisfræðsla. Um er að ræða tvo námskeið, annars vegar fyrir mið- og efsta stig grunnskóla og hins vegar fyrir leikskólakennara og kennara á yngsta stigi.
Lesa meira

9. ágú. 2012

Kertafleyting á Akureyri og í Reykjavík í kvöld

Kennarar eru áberandi í hópi friðarsinna og hér með minnum við á hina árlegu kertafleytingu til minningar um fórnarlömb kjarnorkusprengjanna í Hiroshima og Nagasaki í ágúst 1945.
Lesa meira

8. ágú. 2012

Búið að taka alla fitu úr framhaldsskólakerfinu

Í fréttum RÚV í gærkvöldi 7. ágúst var viðtal við Ingibjörgu Guðmundsdóttur, skólameistara í Kvennaskólanum í Reykjavík, Katrínu Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Björn Val Gíslason, varaformann fjárlaganefndar. Ingibjörg sagði að tugmilljóna króna tap blasti við mörgum framhaldsskólanna á þessu ári vegna niðurskurðar undanfarinna ára og því nauðsynlegt að leiðrétta stöðu þeirra.
Lesa meira

10. júl. 2012

Kennarahúsið lokar í þrjár vikur

Skrifstofur Kennarasambands Íslands og aðildarfélaga þess verða lokaðar í þrjár vikur vegna sumarleyfa, frá mánudeginum 16. júlí. Opnað verður aftur þriðjudaginn 7. ágúst klukkan 9. Þeir sem þurfa að ná sambandi við Orlofssjóð meðan á sumarlokun stendur geta hringt í síma 595-1170 milli klukkan 10 og 14 á virkum dögum.
Lesa meira

28. jún. 2012

Laust um helgina!

Félagsmenn athugið! Eitthvað er af lausum húsum um helgina. Kannski er ÞITT draumahús laust! Skoðaðu laus hús á bókunarvef Orlofssjóðs á Mínum síðum.
Lesa meira

26. jún. 2012

Nýtt EPLI!

Sumareplið var að koma út. Hægt er að skoða það hér.
Lesa meira

26. jún. 2012

Lokun Kennarahúss, afgreiðsla umsókna Sjúkrasjóðs og endurmenntunarsjóða

Kennarahúsið verður lokað frá og með 14. júlí til og með 6. ágúst. Afgreiðslan opnar aftur þriðjudaginn 7. ágúst.
Lesa meira

25. jún. 2012

Bókunarvefur Orlofssjóðs

Einhverjir félagsmenn hafa lent í vandræðum með að komast á bókunarvef Orlofssjóðs. Ef upp kemur villumelding þar sem kemur fram t.d. This page has insecure content þarf að velja Load anyway, sjá mynd.

Lesa meira

25. jún. 2012

Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið 28. og 29. ágúst 2012. Einnig er í boði viðbótarnámskeið fyrir þá sem starfa í leikskóla.
Lesa meira

25. jún. 2012

Nemendum gróflega mismunað með frumgreinanámi

Frumgreinanám er skipulagt og verðlagt að geðþótta háskólanna sem halda því úti og ekki er farið að lagakröfum um menntun og réttindi kennara. Félag framhaldsskólakennara fagnar skýrslu Ríksiendurskoðunar um námið og hefur sent menntamálaráðherra ályktun þessu að lútandi.
Lesa meira

25. jún. 2012

Skýrsla um framkvæmd skólastarfs í leikskólum lögð fram í fyrsta sinn á Alþingi

Í fyrsta skipti lagði mennta- og menningarmálaráðherra fram skýrslu um skólahald í leikskólum á vorþingi Alþingis 2012. Þetta er gert í samræmi við 3. gr. laga um leikskóla frá 2008, en í þeim lögum er nýmæli um að ráðherra skuli leggja fram skýrslu um framkvæmd skólastarfs í leikskólum á þriggja ára fresti. Skýrslan fjallar um skólaárin 2008 - 2009, 2009 - 2010 og 2010 - 2011 og tekur hún mið að lögum um leikskóla og á að mynda skýr tengsl við áherslur laganna.
Lesa meira

21. jún. 2012

Kennarahúsið lokar kl. 15 í dag!

Félagsmenn athugið! Kennarahúsið verður lokað frá kl. 15:00 í dag vegna sumarskemmtunar starfsfólks. Opnað verður á venjulegum tíma í fyrramálið.
Lesa meira

19. jún. 2012

19. júní

Konur fengu kosningarétt þann 19. júní árið 1915 og því er fagnað um allt land í dag um leið og minnt er á vonda stöðu kvenna víðsvegar um heim og bent á leiðir til úrbóta. Ingibjörg H. Bjarnason menntafrömuður, dans- og leikfimikennari, bekkjarkennari og síðar skólastjóri (forstöðumaður) Kvennaskólans var fyrst kvenna til að setjast á Alþingi en það þar var árið 1922. Eins og mýmörg dæmi sanna hafa kennarar lengst af verið framarlega í samfélagsumræðu og -úrbótum. Kvenréttindafélag Íslands gefur út 19. júní sem fylgir með Fréttablaðinu í dag og vegleg dagskrá er á vegum félagsins, sem einnig er nýkomið með fésbókarsíðu. Á vef félagsins eru einnig upplýsingar um hátíðahöld víðar um landið.
Lesa meira

14. jún. 2012

Hvernig virkjum við grunnþættina í skólastarfi? Lærum hvert af öðru!

Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga efna til ráðstefnu 31. ágúst nk. kl. 13:00-16:30 um grunnþætti í nýrri menntastefnu. Ráðstefnan verður haldin í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Lesa meira

13. jún. 2012

Breyting á úthlutunarreglum Vísindasjóðs FL og FSL

Á fundi stjórnar Vísindasjóðs FL og FLS sem haldinn var í morgun, miðvikudaginn 13. júní, var ákveðið að breyta úthlutunarreglum sjóðsins. Sú jákvæða þróun hefur orðið að mun fleiri félagsmenn sækja nú um styrki til sjóðsins en áður. Þessi breyting hefur orðið til þess að fjárstreymi úr sjóðnum er meira en sjóðurinn getur borið til lengri tíma litið að mati stjórnar. Sem dæmi má nefna að kynnisferðir til útlanda jukust úr 20 í 60 milljónir fyrstu 5 mánuði þessa árs miðað við fyrstu 5 mánuði ársins 2011. Í ljósi þessa ákvað stjórn sjóðsins meðfylgjandi breytingar.
Lesa meira

12. jún. 2012

Námskeiðið Upplýsingatækni með ungum börnum

Endurmenntun Háskóla Íslands, í samvinnu við Félag leikskólakennara, býður upp á námskeiðið Upplýsingatækni með ungum börnum. Skráningarfrestur er til 5. nóvember 2012.
Lesa meira

12. jún. 2012

Leikur að bókum

Endurmenntun Háskóla Íslands, í samstarfi við Félag leikskólakennara, býður upp á námskeiðið Leikur að bókum. Markmiðið með námskeiðinu er að veita leikskólakennurum margháttaðan innblástur tengdan vinnu með barnabækur í leikskólanum. Kynntar verða ferskar og einfaldar aðferðir til að gera barnabækur lifandi fyrir börnunum og leysa úr læðingi sköpunarkraft, ímyndunarafl og síðast en ekki síst bókaást hjá bæði börnum og fullorðnum. Skráningarfrestur er til 4. október 2012. Einnig er boðið upp á fjarnámskeið með sama heiti og rennur skráningafresturinn út 27. ágúst fyrir það.
Lesa meira

12. jún. 2012

Ferð á Fimmvörðuháls

Tvö sæti laus í ferð á Fimmvörðuháls næstkomandi laugardag 16. júní til 17. júní. „Fyrstur kemur fyrstur fær“.
Lesa meira

12. jún. 2012

HringÞing um menntamál innflytjenda í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum og fullorðinsfræðslu

Föstudaginn 14. september n.k. verður haldið HringÞing um menntamál innflytjenda í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum og fullorðinsfræðslu. HringÞingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og öllum opið. Skólafólk, foreldrar, nemendur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst því fjöldi er takmarkaður.
Lesa meira

7. jún. 2012

Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslna

Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslna um kjarasamning KÍ/FL við Skóla ehf og Waldorfleikskólann Sólstafi.
Lesa meira

6. jún. 2012

Orlofshúsavefur - skoðunarhamur

Til að auðvelda aðgengi félagsmanna að orlofshúsavefnum Frímann er búið að setja inn hnapp þar sem hægt að skoða húsnæði og annað sem er í boði fyrir félagsmenn KÍ.
Lesa meira

6. jún. 2012

Jörð - Loft - Vatn - Eldur

Sjöunda norræna drama ráðstefnan Drama Boreale verður haldin 6.-10. ágúst 2012 í Háskóli Íslands, menntavísindasviði.
Lesa meira

5. jún. 2012

Ráðstefna FEKÍ 7.-9. júní / FEKI's 2012 International Conference

Félag enskukennara - FEKÍ - stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu undir heitinu Making Sense Through Writing dagana 7.-9. júní nk. Ráðstefnan er ætluð öllum tungumálakennurum sem og öðrum sem áhuga hafa. / FEKI's 2012 International Conference for everyone in language education, June 7-9.
Lesa meira

5. jún. 2012

Kennaranámskeið Kramhússins

Kramhúsið býður upp á námskeiðið Skapandi kraftur dagana 12.-14. júní nk. Kennt verður í Kramhúsinu frá kl. 9:00-17:00 alla dagana.
Lesa meira

5. jún. 2012

Ný varaformaður FSL

Björk Óttarsdóttir varaformaður FSL var nýlega ráðin sem sérfræðingur í leik- og gunnskólamálum í mennta og menningarmálaráðuneytinu. Stjórn FSL þakkar henni vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. Stjórn skipti með sér verkum á ný á fundi 4. júní sl. og var Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri á Ökrum í Garðabæ kjörin varaformaður. Sverrir Jörstad Sverrisson verður áfram ritari, Inga Líndal Finnbogadóttir kemur inn í aðalstjórn sem gjaldkeri og Björg Sigurvinsdóttir verður áfram meðstjórnandi.
Lesa meira

1. jún. 2012

Innleiðing Barnasáttmálans á Norðurlöndunum

Umboðsmaður barna minnir á málstofu um innleiðingu Barnasáttmálans á Norðurlöndunum sem verður haldin þriðjudaginn 5. júní frá klukkan 9:00 til 11:30 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Málstofan er öllum opin meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið ub hjá barn.is sem fyrst.
Lesa meira

29. maí 2012

Menningarnæturpotturinn 2012, opið fyrir umsóknir!

Auglýst er eftir áhugasömum og frumlegum hugmyndasmiðum til þess að fylla inn í viðburðalandslag Menningarnætur 2012. Styrkir úr Menningarnæturpotti Landsbankans!
Lesa meira

29. maí 2012

Annaruppbót/orlofsuppbót 1. júní 2012

Þann 1. júní verður greidd út annar- eða orlofsuppbót.
Lesa meira

24. maí 2012

Ráðstefna 29. maí - Samstarfs skóla og barnaverndar

Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:30-16:00. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.
Lesa meira

24. maí 2012

Ráðstefna um jafnréttisfræðslu í skólum var haldin miðvikudaginn 16. maí sl.

Jafnréttisnefnd KÍ stóð fyrir ráðstefnu um jafnréttisfræðslu í skólum miðvikudaginn 16. maí síðastliðinn. Á henni kom ýmislegt áhugavert fram og rúmlega 70 manns mættu til að hlýða á erindi og ræða málin. Námsgagnastofnun og Jafnréttisstofa voru einnig á staðnum með námsefni í jafnréttisfræðslu til sýnis. Á ráðstefnunni héldu þrír fyrirlesarar erindi um innleiðingu og mikilvægi jafnréttisfræðslu í skólum á öllum skólastigum. Að lokum voru pallborðsumræður.
Lesa meira

23. maí 2012

Nýtt veftímarit um skólamál

Athygli er vakin á afar áhugaverðu nýju veftímariti um skólamál sem Edda Kjartansdóttir og Nanna Christiansen eru að stofna og opnuðu óformlega þann 16. maí 2012. Markmiðið með tímaritinu er að gera umræðu um skólamál aðgengilega og sýnilega.
Lesa meira

23. maí 2012

Áhugaverð úttekt Menntamálaráðuneytis á kennslu í stærðfræði

Í apríl kom út skýrsla um úttekt Mrn. á kennslu í stærðfræði í átta grunnskólum hér á landi. Markmið úttektarinnar var að afla upplýsinga um framkvæmd stærðfræðikennslu í grunnskólum með tilliti til aðalnámskrár, námsefnis, námsgagna, menntunar kennara, árangurs nemenda, stöðu námsgreinarinnar og viðhorfa til hennar. Í skýrslunni er varpað ljósi á það sem vel er gert, bent á það sem betur má fara og settar fram hugmyndir að úrbótum. Niðurstöður eru áhugaverðar og ánægjulegar fyrir skólastarf hér á landi en þar kemur m.a. fram að styrkleikar stærðfræðikennslunnar séu áhugasamir kennarar, fámennir námshópar, góður námsstuðningur við nemendur sem eiga í erfiðleikum með stærðfræðinám og fjölbreytt námsmat.
Lesa meira

21. maí 2012

Kynningarfundir fyrir sjóðfélaga í LSR 24. maí nk.

Þann 24. maí nk. heldur LSR kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur. Hægt er að velja um tvær tímasetningar þann 24. maí nk.: 8:30-10:00 eða 16:30-18:00. Fundirnir eru haldnir á Hilton Reykjavík Nordica og er nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 22. maí.
Lesa meira

16. maí 2012

Námskeið á vegum Nordspråk - Sangskatten i Norden

Í haust, 28. september til 1. október, verður haldið námsskeið á vegum Nordspråk um þann fjárssjóð sem norrænir söngvar eru og hvernig hægt er að nýta hann í kennslu. Dagskrá má skoða hér og einnig á vefnum, sjá hér.
Lesa meira

16. maí 2012

Kjarasamningur FL við Skóla ehf undirritaður

Í morgun, 16. maí, var undirritaður kjarasamningur Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Skóla ehf með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Lesa meira

15. maí 2012

Ársfundur LSR og LH

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga verður haldinn þriðjudaginn 22. maí á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 15:00.
Lesa meira

15. maí 2012

Endurmenntun framhaldsskólakennara

Næsti umsóknarfrestur fyrir styrki sem Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara - SEF úthlutar til endurmenntunar framhaldsskólakennara er 31. október.
Lesa meira

15. maí 2012

Námskeið hjá Endurmenntun HÍ

Endilega athugið þessi áhugaverðu námskeið.
Lesa meira

11. maí 2012

Úthlutun Sprotasjóðs

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013. Sjá nánar frétt ráðuneytisins hér.
Lesa meira

8. maí 2012

Jafnréttisfræðsla í skólum

Ráðstefna Jafnréttisnefndar KÍ um jafnréttisfræðslu í skólum verður haldin í Skriðu á Menntavísindasviði HÍ miðvikudaginn 16. maí næstkomandi kl. 13:30-16:30. Á henni verður innleiðing, mikilvægi og skylda jafnréttisfræðslu í skólum á öllum skólastigum tekin fyrir og rædd. Þrír fyrirlesarar verða, einn af hverju skólastigi.
Lesa meira

7. maí 2012

Úrslit í rafrænni allsherjaratkvæðagreiðslu

Í morgun lauk allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara innan Kennarasambands Íslands um kjarasamning FL og Samtaka sjálfstæðra skóla sem skrifað var undir þann 12. apríl sl.
Lesa meira

7. maí 2012

Vissir þú að ...

... kennarar eru taldir vera í mestri áhættu að skaða röddina við vinnu sína?
Lesa meira

2. maí 2012

Kjarasamningur Kennarasambands Íslands vegna FL við Samtök sjálfstæðra skóla - Rafræn atkvæðagreiðsla hafin

Stjórn Félags leikskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands í Félagi leikskólakennara. Atkvæði eru greidd um kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Samtök sjálfstæðra skóla eftir umboði rekstraraðila sem var undirritaður 12. apríl 2012 með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Lesa meira

30. apr. 2012

Verum saman 1. maí!

Hátíðahöld 1. maí í Reykjavík hefjast kl. 13:00 með því að fólk safnast saman á Hlemmi. Gangan leggur af stað kl. 13:30 og útifundur hefst á Ingólfstorgi kl. 14:10. Að loknum fundi kl. 15:15 býður Kennarasambandið félagsmönnum sínum upp á hið árlega 1. maí kaffi á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2.
Lesa meira

27. apr. 2012

Ársfundur lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar 2012, verður haldinn miðvikudaginn 16. maí kl. 15:00 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík. Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Lesa meira

27. apr. 2012

Fundir vegna umsókna í Vonarsjóð FG og SÍ

Stjórn Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ (Vonarsjóðs) þakkar félagsmönnum fyrir jákvæð viðbrögð við óumflýjanlegum breytingum á styrkúthlutunum úr sjóðnum. Einnig vill stjórnin vekja athygli á því að næstu fundir verða tveir en ekki einn vegna fjölda umsókna sem bárust fyrir 16. apríl og þurfa að fara fyrir fund. Fundirnir verða mánudaginn 30. apríl og föstudaginn 4. maí. Í framhaldi af þeim verður hægt að svara umsóknum. Félagsmenn FG og SÍ eru beðnir um að sýna biðlund og gefa fulltrúum tækifæri á að vinna umsóknirnar í maí.
Lesa meira

26. apr. 2012

Körlum fjölgar við kennslu í leikskólum

Í frétt frá Hagstofu Íslands um leikskóla kemur m.a. fram að frá desember 2009 til sama mánaðar árið 2011 fjölgar körlum í starfi í leikskólum um 64, en konum fækkar um 188. Einkum fjölgar körlum sem starfa við kennslu. Þeir voru 197 árið 2009 en 253 árið 2011, og hafði því fjölgað um 28,4% á tveimur árum. Á þessu tveggja ára tímabili fækkaði konum í sömu störfum um 154; 3,1%. Í desember 2011 störfuðu 5.515 manns í 4.798 stöðugildum við leikskóla á Íslandi. Það er fjölgun um 27 starfsmenn frá fyrra ári (0,5%) og stöðugildum fjölgaði einnig um 27 (0,6%). Leikskólabörnum hefur fjölgað um 198 á sama tíma, eða um 1,0%. Frá desember 2009 hefur leikskólabörnum fjölgað um 443 en starfsmönnum fækkað um 124, segir í frétt Hagstofu Íslands.
Lesa meira

25. apr. 2012

Ársfundur LSS 8. maí

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 16:00, í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30, Reykjavík.
Lesa meira

25. apr. 2012

Foreldraverðlaunin 2012

Heimili og skóli óska eftir tilnefningum til foreldraverðlauna 2012. Verðlaunin verða afhent miðvikudaginn 16. maí við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Tilnefningar sendist rafrænt á eyðublaði á vefsíðunni heimiliogskoli.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er 1. maí 2012.
Lesa meira

25. apr. 2012

Könnun á þörf og framkvæmd undirbúningstíma

Í gær, 24. apríl, var send út könnun til félagsmanna í Félagi leikskólakennara og til leikskólastjóra á þörf og framkvæmd undirbúningstíma utan hefðbundinna starfa á deild. Könnunin er unnin samkv. bókun 6 í kjarasamningi FL við sveitarfélögin. Könnunin verður opin til kl. 15:00, föstudaginn 4. maí 2012. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt í könnuninni.
Lesa meira

24. apr. 2012

BRIM 2012

Úskriftarsýning nemenda á listnámsbraut Borgarholtsskóla verður haldin í Brimhúsinu við Reykjavíkurhöfn dagana 27.-29. apríl næstkomandi. Opið er alla sýningardagana frá kl. 14-18. Sýningin verður opnuð formlega fimmtudaginn 26. apríl kl. 17-19.
Lesa meira

24. apr. 2012

Áskoranir og ævintýri - útinám barna í þéttbýli

Alþjóðleg ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði verður haldin á Menntavísindasviði Háskóla Íslands frá 31. maí til 2. júni 2012. ATH að framlengdur umsóknarfrestur til skráningar er til 4. maí!
Lesa meira

24. apr. 2012

Virk umræða um skólastefnu KÍ

Nýverið hefur skólastefnu KÍ verið dreift til félagsmanna. Framkvæmdastjórn skólamálaráðs hefur á starfsáætlun sinni að kynna stefnuna og hvetja til umræðu um hana sem víðast. Í því skyni sendi framkvæmdastjórn skólamálaráðs tölvupóst til félagsmanna þar sem félagsmenn voru hvattir til að velta efni stefnunnar fyrir sér. Í fyrsta pistlinum var sjónum beint að „Skólastarfi og menntun“. Álíka pistlar verða sendir út um hvern kafla stefnunnar.
Lesa meira

23. apr. 2012

Símenntun og starfsþróun kennara er forsenda skólaþróunar

Á ársfundi KÍ 18. apríl síðasliðinn voru meðal annars samþykktar ályktanir um símenntun, starfsþróun og nýja kennaramenntun. Hvatt er til heildstæðrar stefnumótunar í símenntun og starfsþróun kennara og vakin athygli á fjölbreyttum atvinnumöguleikum með tilkomu nýs fimm ára kennaranáms.
Lesa meira

20. apr. 2012

Opnað fyrir einstaklingsstyrki hjá Vonarsjóði miðvikudaginn 25. apríl

Því miður þarf að seinka opnun fyrir einstaklingsstyrki hjá Verkefna- og námsstyrkjasjóði (Vonarsjóði) þar sem ljúka þarf afgreiðslu áður innsendra umsókna. Það er því ekki hægt að sækja um einstaklingsstyrki fyrr en miðvikudaginn 25. apríl nk. Sjá má bréf frá stjórn sjóðsins varðandi breytingar á reglum hér.
Lesa meira

18. apr. 2012

Kennarahúsið lokar kl. 15:30

Skrifstofum KÍ í Kennarahúsinu er lokað kl. 15:30 í dag, 18. apríl, vegna ársfundar Kennarasambandsins.
Lesa meira

17. apr. 2012

Ársfundur KÍ 18. apríl

Ársfundur Kennarasambands Íslands verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 18. apríl, á Hótel Sögu. Dagskráin hefst með morgunhressingu kl. 9:30 en fundurinn er settur kl. 10:00. Sjá dagskrá hér.
Lesa meira

17. apr. 2012

Fleiri flakkarar

Í dag, 17. apríl, kl. 18:00 geta þeir sem eiga 100+ punkta bókað flakkara á bókunarvefnum. Ef félagsmenn lenda í vandræðum geta þeir haft samband við Hönnu Dóru, framkvæmdastjóra Orlofssjóðs, í síma 867 8697 eða Elís formann sjóðsins í síma 899 1504. Svara þau fyrirspurnum frá kl. 18:00 til 20:00 í kvöld.
Lesa meira

16. apr. 2012

Einstaklingsstyrkir Vonarsjóðs

Vegna breytinga á reglum Verkefna- og námsstyrkjasjóðs (Vonarsjóðs) er ekki hægt að sækja um einstaklingsstyrki fyrr en mánudaginn 23. apríl nk. Sjá má bréf frá stjórn sjóðsins varðandi breytingarnar hér.
Lesa meira

13. apr. 2012

Kynning á umsóknarferli hjá Sameinuðu þjóðunum

Mánudaginn 16. apríl kl. 14:00-17:00 og þriðjudaginn 17. apríl kl. 14:00-17:00 munu tveir fulltrúar mannauðsskrifstofu SÞ í New York kynna fyrir áhugasömum langt og umfangsmikið umsóknarferli fyrir stöður hjá alþjóðastarfsliði SÞ. Kynningarfundirnir verða haldnir í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25. Áhugasamir geta skráð sig með tölvupósti á póstfangið skraning hjá utn.stjr.is með upplýsingum um nafn auk menntunar og ósk um hvor fundurinn verður sóttur.
Lesa meira

13. apr. 2012

Félag leikskólakennara og Samtök atvinnulífsins undirrita kjarasamning

Í gær kl. 16:00 skrifaði samninganefnd Félags leikskólakennara undir samning við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd skóla innan Samtaka sjálfstæðra skóla sem vísuðu samningsumboði til SA. Samningurinn er tilvísunarsamningur þannig að samningurinn sem KÍ/FL gerði við sveitarfélögin í ágúst sl. gildir fram til 30. júní 2014. Í samningnum er kveðið á um að kaup og kjör fari samkvæmt kjarasamningi KÍ/FL við Samband íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. ágúst 2011, þá halda þeir félagsmenn FL þeim kjörum sem þeir hafa haft samkvæmt fyrri kjarasamningi eða ráðningarsamningi umfram það sem kveðið er á um í kjarasamningi KÍ/FL við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meira

12. apr. 2012

Flakkarabókanir hefjast á mánudaginn

Mánudaginn 16. apríl kl. 18:00 opnar fyrir bókanir í flakkara. Þann dag geta þeir sem eiga 300 punkta eða fleiri bókað á bókunarvefnum.
Lesa meira

12. apr. 2012

Félag leikskólakennara er á Facebook

Félag leikskólakennara hvetur alla félagsmenn sína til þess að gerast vinir síðunnar og taka þátt í umræðum og fylgjast með því sem er að gerast í félagsstarfinu. Þegar hafa rúmlega 1800 manns skráð sig á síðuna. Síðan er á þessari slóð: https://www.facebook.com/leikskolakennarar. Síðan er opin öllum til aflestrar, en ef félagsmenn vilja tjá sig um efni hennar verða þeir að gerast vinir hennar.
Lesa meira

11. apr. 2012

Aldrei veik

Ný nálgun á fjarvistir frá vinnu veldur byltingu í líðan og heilsufari. Á vef VIRK eru nokkur forvitnileg myndbönd þar sem sagt er frá því hvernig nýrri fjarvistarstefnu er hleypt af stokkunum og hvernig hún hefur virkað á viðkomandi vinnustöðum en tveir þeirra eru skólar. Í Bakkaskóla í Fredericia, venjulegum dönskum grunnskóla, voru 35 af 45 kennurum skólans aldrei veikir á síðasta ári. Þann árangur má rekja til fjarverustefnu vinnustaðarins þar sem áhersla er lögð á forvarnir, umhyggju starfsfólksins gagnvart hvert öðru, gagnkvæmt traust og nærveru skólastjórans.
Lesa meira

11. apr. 2012

Vissir þú að...

...70% allra sjúkdóma í heiminum í dag stafa af hreyfingarleysi, reykingum og mataræði?
Lesa meira

10. apr. 2012

Áskoranir og ævintýr - útinám barna í þéttbýli

Alþjóðleg ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði verður haldin við Menntavísindasvið Háskóla Íslands frá 31. maí til 2. júní 2012.
Lesa meira

10. apr. 2012

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Stóra upplestrarkeppnin fagnar 16 ára afmæli í ár. Verkefnið er árlega sett af stað á degi íslenskrar tungu og hefst þá ræktunarhluti verkefnisins sem stendur fram í lok febrúar. Þá hefst hátíðarhlutinn og eru hátíðirnar 31 þetta árið. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn stýra verkefninu og taka við skráningum frá skólum og fylgjast með framkvæmd þess um land allt.
Lesa meira

10. apr. 2012

Ályktanir fulltrúafundar Félags framhaldsskólakennara 29. mars 2012

Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara árið 2012 var haldinn í Reykjavík 29. mars sl. Fundinn sátu fulltrúar úr öllum framhaldsskólum landsins, auk stjórnar, samninganefndar og skólamálanefndar félagsins. Fundurinn samþykkti ályktanir um ýmis brýn hagsmunamál framhaldsskólakennara.
Lesa meira

10. apr. 2012

Málstofa um einelti

Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum - BÆR og Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti standa að málstofu um einelti 12. apríl 2012 kl. 14:00-16:30 í stofu H 207 í húsnæði MVS við Stakkahlíð. Aðgangur öllum opinn og er ókeypis.
Lesa meira

10. apr. 2012

Breytingar á úthlutun úr Verkefna- og námsstyrkjasjóði FG og SÍ

Stjórn Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ (Vonarsjóðs) hefur endurskoðað úthlutunarreglur sjóðsins í samræmi við þá þróun sem verið hefur síðastliðið ár. Sú ánægjulega þróun hefur orðið að mun fleiri félagsmenn sækja nú um styrki til sjóðsins en áður. Þessi þróun hefur orðið til þess að fjárstreymi úr sjóðnum er meira en sjóðurinn getur borið til lengri tíma litið. Vegna fjölgunar umsókna á síðasta ári er nú þegar ljóst að sjóðurinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar nema breytingar verði gerðar á úthlutunarreglum hans. Sjá meðfylgjandi bréf til félagsmanna.
Lesa meira

4. apr. 2012

Gleðilega páska!

Kennarasamband Íslands óskar félagsmönnum sínum og öðrum landsmönnum gleðilegra páska.
Lesa meira

4. apr. 2012

Bókanir á Orlofsvefnum

Athugið félagsmenn, að á Orlofsvefnum er bókunum núna aðeins haldið í 30 mínútur meðan að fólk er að ganga frá greiðslu.
Lesa meira

30. mar. 2012

Orlofsvikur lausar í sumar!

Enn eru 143 vikur lausar til leigu í sumar. Skoðið hvort eitthvað hentar ykkur!

Nokkrar fyrirspurnir hafa borist vegna gráu kassanna í listanum Laus tímabil á bókunarvefnum. Þegar þeir koma fyrir í yfirlitinu er um að ræða flakkara (sem ekki er byrjað að úthluta), búið að bóka viðkomandi tímabil eða það ekki í boði.
Lesa meira

29. mar. 2012

Viku- og flakkaraleiga í húsum KÍ

Meðfylgjandi er listi yfir viku- og flakkaraleigu í húsum KÍ, sjá hér.
Lesa meira

29. mar. 2012

Bókun orlofshúsa - MUNA AÐ GREIÐA

Eitthvað hefur borið á því að félagsmenn sem töldu sig hafa pantað orlofshús fengu sendan tölvupóst þar sem fram kom að pöntuninni hefði verið eytt eða hún afpöntuð. Í flestum tilfellum er ástæðan sú að pöntuninni var ekki lokið. Það er að segja orlofshúsið hefur verið merkt pantað en ekki gengið frá greiðslu og því gerist þetta.
Lesa meira

29. mar. 2012

Orlofshús

Í dag, 29. mars, kl. 18:00 geta þeir sem eiga 100+ punkta bókað hús á bókunarvefnum. Ef félagsmenn lenda í vandræðum geta þeir haft samband við Hönnu Dóru, framkvæmdastjóra Orlofssjóðs, í síma 867 8697 og Elís formann sjóðsins í síma 899 1504. Svara þau fyrirspurnum frá kl. 18:00 til 21:00 í kvöld.
Lesa meira

29. mar. 2012

FSL heldur árs-, samráðs- og sameiginlegan stjórnarfund með FL dagana 12. og 13. apríl nk.

FSL þarf smæðar sinnar vegna að vera útsjónasamt í rekstri félagsins. Því var ákveðið að setja saman í einn pakka ársfund, samráðsfund og sameiginlegan stjórnarfund með FL. Í starfsáætlun félaganna segir að sameiginlegur fundur stjórna skuli haldinn á Akureyri 13. apríl og við notum ferðina og boðum til ársfundar og samráðsfundar 12. og 13. apríl í Hofi.
Lesa meira

29. mar. 2012

Sóknarfæri í námi og kennslu - ráðstefna um starfendarannsóknir 13. apríl

Spennandi ráðstefna sem mikill metnaður er lagður í og langur undirbúningur að baki. Dagskráin ekki af verri endanum. Kíkið á þessa!
Lesa meira

28. mar. 2012

Staða orlofspunkta

Nokkuð hefur verið um fyrirspurnir vegna stöðu orlofspunkta þar sem félagsmenn finna ekki viðkomandi upplýsingar. Til þess að finna punktastöðu þarf að vera inni á Mínum síðum. Þar á að vera hnappur sem heitir Síðan mín og undirsíða sem heitir Mínar upplýsingar. Þar kemur punktastaðan fram. Stundum kemur upp sú staða að hnappurinn Síðan mín sést ekki og þá er nægilegt að bíða stutta stund eða fara á milli annarra möguleika á síðunni til þess að hnappurinn birtist.
Lesa meira

27. mar. 2012

Ársfundur FL 29. mars

Þann 29. mars nk. verður ársfundur Félags leikskólakennara haldinn á Grand hóteli í Reykjavík. Ársfundur er haldinn þau ár sem ekki er aðalfundur. Á fundinum er fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram. Rétt til setu á ársfundi hafa stjórn og varastjórn, formenn svæðadeilda, samninganefnd og fulltrúar félagsins í skólamálanefnd og kynningarnefnd.
Lesa meira

27. mar. 2012

Raddir barna - Ráðstefna á vegum RannUng 5. október 2012

Áhugaverð ráðstefna um sjónarmið barna verður haldin á Alþjóðadegi kennara þann 5. október. Þar verður meðal annars fjallað um hvernig hægt er að öðlast skilning og auka þekkingu á viðhorfum og hugmyndum ungra barna á ýmsum þáttum í daglegu lífi þeirra og skólagöngu.
Lesa meira

27. mar. 2012

Útskriftarnemar í uppeldis- og menntunarfræði kynna BA verkefni sín

Föstudaginn 30. mars nk. halda útskriftarnemar, í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, ráðstefnu og kynna BA verkefni sín. Ráðstefnan er haldin í Skriðu, húsi Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og stendur frá kl. 9:00 til 17:00. Erindi ráðstefnunnar eru flokkuð niður í þemu og ættu allir að gera fundið eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meira

27. mar. 2012

Fagráð vegna eineltismála í grunnskólum

Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, staðfesti þann 10. mars 2012 verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í samræmi við reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur skólasamfélagsins í grunnskólum. Í 7. gr. reglugerðarinnar segir: „Foreldrar eða skólar geta óskað eftir aðstoð sérstaks fagráðs, sem starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis, ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu sérfræðiþjónustu...“
Lesa meira

22. mar. 2012

Sumarnámskeið fyrir framhaldsskólakennara

Vakin er athygli á sumarnámskeiðum ætluðum framhaldsskólakennurum.
Lesa meira

21. mar. 2012

Launamiðar ekki sendir heim

Kennarasamband Íslands hefur ákveðið að senda ekki afrit launamiða heim til félagsmanna. Launamiðar hafa verið sendir rafrænt til skattstjóra og eru allar upphæðir forskráðar á framtöl þeirra sem fengið hafa greiðslur úr sjóðum KÍ. Launamiðar eru einnig sendir í tölvupósti til þeirra félagsmanna sem eru með netfang skráð í félagakerfi KÍ.
Lesa meira

21. mar. 2012

Fulltrúafundur FF 29. mars

Þann 29. mars nk. verður fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara haldinn í Hvammi á Grand hótel, Reykjavík. Dagskrá og fundarboð er hægt að sjá hér.
Lesa meira

21. mar. 2012

LSR sjóðfélagafundur á Akureyri

Í tilefni af nýlegri skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008 boðar stjórn LSR til fundar með sjóðfélögum fimmtudaginn 22. mars á Akureyri. Fundurinn verður haldinn í Lionssal á 4. hæð Skipagötu 14 og hefst kl. 16:30.
Lesa meira

20. mar. 2012

Ferðablað Orlofssjóðs er komið út

Nýtt Ferðablað Orlofssjóðs er komið út. Hægt er að skoða það hér.
Lesa meira

20. mar. 2012

Hvað ræður för?

Fimmtudaginn 29. mars stendur Sjónarhóll fyrir málþingi um börn og ungmenni með hegðunar- og/eða geðraskanir. Málþingið verður haldið á Hótel Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 12:30 til 16:30.
Lesa meira

20. mar. 2012

Velferð barna þremur árum síðar!

Náum áttum, opinn samstarfshópur um fræðslu- og forvarnamál, efnir til morgunverðarfundar á Grand Hóteli næstkomandi miðvikudag, 21. mars 2012, kl. 8:15-10:00. Yfirskrift fundarins er „Velferð barna þremur árum síðar! Hvað segja lykiltölur um stöðuna í dag“.
Lesa meira

19. mar. 2012

Kynning á framhaldsnámi við Menntavísindasvið

Kennarar og nemendur kynna meistara- og doktorsnám við Menntavísindasvið fimmtudaginn 22. mars kl. 16-18 í Fjöru - matsal. Gestir eru hvattir til að koma í heimsókn í Stakkahlíðina og spjalla við kennara og nemendur og fá upplýsingar um fjölda spennandi námsleiða. Þrjár deildir sviðsins, Kennaradeild, Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild og Uppeldis- og menntunarfræðideild munu kynna fjölbreytt framhaldsnám.
Lesa meira

19. mar. 2012

Ársfundur VIRK 2012

Ársfundur VIRK verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl 2012 kl. 8:00 til 12:00 í Hörpu í salnum Norðurljós. Dagskráin er tvískipt. Fyrri hluti fundarins inniheldur fræðandi erindi og hefst hann með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra kl. 8:15. Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK mun síðan fara yfir starfsemi VIRK á síðastliðnu ári og Ingibjörg Jónsdóttir prófessor við Institute of Stress Medicine í Gautaborg mun halda erindi um reynslu og niðurstöður nýjustu rannsókna varðandi forvarnir og starfsendurhæfingu vegna kulnunar og síþreytu á vinnustöðum. Kaffihlé verður frá kl. 10:30 til 11:00 og að því loknu hefjast hefðbundin ársfundarstörf.
Lesa meira

15. mar. 2012

Lokatónleikar Nótunnar fara fram á sunnudaginn í Hörpu!

Lokatónleikar Nótunnar 2012 fara fram sunnudaginn 18. mars í Eldborg í Hörpu. Nótan og Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára þess efnis að lokatónleikar hátíðarinnar fari fram í Hörpu. Sannkölluð hátíðarstemming verður í húsinu allan daginn en á milli tónleika Nótunnar bjóða tónlistarnemendur upp á lifandi tónlist í anddyri Hörpu, hljóðfæraverslanir og Epli.is leyfa gestum að skoða og prófa hin ýmsu hljóðfæri, tæki og tól, - allt frá íslenskri fiðlu og langspili til iPads. Boðið verður upp á hljóðfærasmiðju þar sem yngsta kynslóðin getur búið til sín eigin hljóðfæri og tekið með sér heim, nemendur frá Listaháskóla Íslands verða á staðnum sem og Tónlistarsafn Íslands og Samtök Listrænt Ágengra Tónsmiða Umhverfis Reykjavík sem munu grilla slátur o.fl.!
Lesa meira

13. mar. 2012

Doktorsvörn í Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs

Föstudaginn 16. mars nk. fer fram doktorsvörn við Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs. Þá ver Þórdís Þórðardóttir doktorsritgerð sína Menningarlæsi - Hlutverk barnaefnis í uppeldi og menntun telpna og drengja í tveimur leikskólum. Athöfnin fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst klukkan 13:00.
Lesa meira

13. mar. 2012

Íslandsdeild OMEP

Aðalfundur BERNSKUNNAR Íslandsdeildar OMEP - alþjóðlegra samtaka um uppeldi ungra barna verður haldinn laugardaginn 24. mars 2012 kl. 11:00 í leikskólanum Ökrum, Línakri 2, Garðabæ. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.
Lesa meira

13. mar. 2012

Margt smátt gerir eitt stórt - Upplýsingatækni og nýjungar

Föstudaginn 16. mars 2012 kl. 13 til 17 verður ráðstefna 3f félags um upplýsingatækni og menntun og Háskólans í Reykjavík haldin, undir heitinu Margt smátt gerir eitt stórt - Upplýsingatækni og nýjungar.
Lesa meira

9. mar. 2012

LSR sjóðfélagafundur

Í tilefni af nýlegri skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdragana bankahrunsins 2008 boðar stjórn LSR til fundar með sjóðfélögum. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. mars og hefst hann kl. 16:30.
Lesa meira

9. mar. 2012

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga (LSS) – opinn sjóðfélagafundur

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar, Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar, Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar og Lífeyrissjóður Neskaupstaðar boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel við Sigtún þann 13. mars nk. kl. 17:00. Farið verður yfir rekstur og afkomu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og lífeyrissjóða í hans rekstri í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.
Lesa meira

9. mar. 2012

Ráðstefna um dönsku og dönskukennslu

Félag dönskukennara stendur fyrir ráðstefnu um dönsku og dönskukennslu föstudaginn 16. mars. Ráðstefnan er haldin í Háskólanum í Reykjavík og stendur frá kl. 14:00-17:30.
Lesa meira

6. mar. 2012

Frímann er mættur á svæðið!

Orlofssjóður KÍ hefur tekið í notkun nýjan bókunarvef sem fékk heitið Frímann. Farið er inn á nýja bókunarvef í gegnum Mínar síður á forsíðu KÍ.
Lesa meira

6. mar. 2012

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars

Hér á landi voru það Menningar- og friðarsamtök kvenna sem minntust dagsins lengst af en undanfarin ár hafa fleiri samtök tekið þátt í að minnast dagsins með sérstakri dagskrá. Kennarasamband Íslands er aðili að tveimur fundum í Reykjavík ásamt öðrum stéttarfélögum og samtökum launafólks í tilefni af deginum.
Lesa meira

5. mar. 2012

Heimspekileg samræða í leik- og grunnskólum: Fyrstu skrefin

Föstudaginn og laugardaginn 9. og 10. mars nk. verður haldið námskeið i Garðaskóla undir heitinu Heimspekileg samræða í leik- og grunnskólum: Fyrstu skrefin. Námskeiðið hefst á fyrirlestri um heimspeki í skólastarfi og er öllum opið. Á dagskránni er síðan verkefnavinna og samræður þátttakenda og verður sérstök áhersla lögð á vinnubrögð sem henta vel í kennslu yngri barna. ATH: uppfærð auglýsing.
Lesa meira

2. mar. 2012

Endurbætt síða

Heimasíðan Gegneinelti.is hefur verið endurbætt. Meðal annars hefur undirskriftakerfi síðunnar verið einfaldað til muna þannig að mjög einfalt er fyrir alla, jafnt unga sem aldna, að undirrita þjóðarsáttmálann um baráttu gegn einelti.
Lesa meira

2. mar. 2012

Íslandsmót iðn- og verkgreina 2012

Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið i Háskólanum í Reykjavík 9.-10. mars nk. Íslandsmótið veitir ungu fólki tækifæri til sýna fram á færni sína og kunnáttu í iðn- og verkgreinunum. Tekist er á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.
Lesa meira

2. mar. 2012

Jákvæðar leiðir til bættrar hegðunar

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins stendur fyrir námskeiði 22. og 23. mars nk. í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Lesa meira

2. mar. 2012

Punktastýrð úthlutun orlofshúsa KÍ

Punktastýrð úthlutun á vikuleigu hefst 28. mars nk., en 16. apríl á flakkaraleigu.
Lesa meira

2. mar. 2012

Kallað er eftir styrkumsóknum vegna kennslu í frumkvöðlafræðum

Skila þarf inn umsóknum í síðasta lagi 16. apríl 2012.
Lesa meira

1. mar. 2012

Einstök sögu- og menningarferð til Alsír í fótspor Guðríðar Símonardóttur

Í júní bjóða ÍT ferðir upp á einstaka sögu- og menningarferð til Alsír og Marseille, í fylgd Steinunnar Jóhannesdóttur rithöfundar sem skrifaði Reisubók Guðríðar. Ferðin stendur yfir dagana 1.-9. júní og eru örfá sæti laus. Fyrir kennara er boðið upp á skólaheimsókn einn daginn í Algeirsborg. (ath. ekki styrkhæft)
Lesa meira

1. mar. 2012

Seinkun verður á opnun nýs Orlofsvefs!

Félagsmenn athugið! Seinkun verður á opnun nýs Orlofsvefs KÍ. Ef áætlanir standast verður opnað fyrir bókanir kl. 18:00 í kvöld.
Lesa meira

1. mar. 2012

Kórstjórar/tónmenntakennarar heiðraðir fyrir starf sitt

Samtök tungumálakennara vilja heiðra kórstjóra/tónmenntakennara fyrir það öfluga starf sem þeir inna af hendi til eflingar erlendra tungumála á Íslandi, með því að kenna og flytja söngva frá öllum heimshornum. Formenn kórfélaga og Tónmenntakennarafélags Íslands - TKÍ, veita viðurkenningunum viðtöku föstudaginn 2. mars kl. 20:00 við hátíðlega athöfn.
Lesa meira

1. mar. 2012

Fulltrúafundur FF 29. mars 2012

Fimmtudaginn 29. mars nk. verður fulltrúafundur FF haldinn á Hvammi, Grand Hótel Reykjavík.
Lesa meira

29. feb. 2012

Félagsvísar verða til í fyrsta sinn á Íslandi

Að tillögu Velferðarvaktarinnar árið 2009 var samþykkt í ríkisstjórn að fá hóp sérfræðinga til að vinna að gerð félagsvísa. Félagsvísar eru safn fjölbreyttra tölfræðilegra upplýsinga sem eiga að varpa ljósi á þjóðfélagsástandið á hverjum tíma og ólíkar aðstæður ýmissa þjóðfélagshópa. Markmiðið er að hafa slíkar upplýsingar aðgengilegar á einum stað og auðvelda þannig stjórnvöldum og almenningi að fylgjast með þróun og breytingum í samfélaginu og styðja við stefnumótun stjórnvalda.
Lesa meira

28. feb. 2012

Félagsmenn athugið!

3,5% launahækkun 1. mars nk.
Lesa meira

28. feb. 2012

Hæstiréttur dæmir íslenska ríkið bótaskylt gagnvart nemanda, ...

... vegna líkamstjóns sem nemandi varð fyrir vegna slyss við nám í framhaldsskóla. Meðfylgjandi er samantekt Ernu Guðmundsdóttur, lögmanns KÍ, á þessum dómsniðurstöðum.
Lesa meira

28. feb. 2012

Ráðstefna FUM 17. mars

Félag um menntarannsóknir (FUM) stendur fyrir ráðstefnu um rannsóknir í menntamálum laugardaginn 17. mars. Yfirskrift ráðstefnunnar og þema er Skóli sem siðvætt samfélag: Menntarannsóknir og framkvæmd menntastefnu. Ráðstefnan verður haldin í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og hefst kl. 9:00.
Lesa meira

28. feb. 2012

Styrkir úr Sprotasjóði - umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 29. febrúar!

Vakin er athygli á auglýsingu mennta- og menningarmálaráðuneytisins eftir umsóknum úr Sprotasjóði. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýungar í starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Lesa meira

27. feb. 2012

Félagsmenn athugið!

Bókunarvefur Orlofssjóðs lokar frá kl. 6:00 miðvikudaginn 29. febrúar og verður nýr bókunarvefur opnaður kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 1. mars 2012.
Lesa meira

23. feb. 2012

Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna í grunnskólum skólaárið 2012-2013

Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2012-2013. Einungis er hægt að sækja um rafrænt til og með 29. febrúar 2012 á ki.is, Mínar síður. Öll fylgiskjöl þurfa að fylgja með ræfrænni umsókn þar sem ekki er tekið við gögnum eftir á.
Lesa meira

21. feb. 2012

Margt smátt gerir eitt stórt

Föstudaginn 16. mars 2012 kl. 13 til 17 verður haldin ráðstefna 3f félags um upplýsingatækni og menntun og Háskólans í Reykjavík. Ráðstefnan hefur fengið yfirheitið Margt smátt gerir eitt stórt - Upplýsingatækni og nýjungar. Meginþema ráðstefnunnar verður upplýsingatækni í skólastarfi. Fjallað verður sérstaklega um þær breytingar sem eru að verða í skólastofunni með tilkomu smærri tækja og tóla. Spáð er í framtíðina, munu verða miklar breytingar á kennsluháttum í nánustu framtíð, hver verða áhrifin á námsgagnagerð.
Lesa meira

21. feb. 2012

Fundur færður fram um viku!

Næsti fundur stjórnar Vísindasjóðs FL og FSL sem að öllu jöfnu ætti að vera fyrsta miðvikudag í apríl hefur verður færður fram um viku. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 28. mars. Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 21. mars.
Lesa meira

20. feb. 2012

Upplýsingar frá Íslandsbanka varðandi skilagreinar launagreiðanda

Launagreiðendur athugið - breyttar bankaupplýsingar.
Lesa meira

17. feb. 2012

Stuðningsyfirlýsing til Föroya pedagogfelag frá Kennarasambandi Íslands

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir stuðningi við kröfur Föroya pedagogfelag um betri laun og starfskjör í yfirstandandi kjaradeilu félagsins.
Lesa meira

17. feb. 2012

Menntavísindasvið á háskóladaginn

Menntavísindasvið kynnir nám sitt og og starf á annarri hæð Háskólatorgs þegar Háskóladagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16. Að því koma bæði nemendur og kennarar í öllum þremur deildum sviðsins, Kennaradeild, Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild og Uppeldis- og menntunarfræðideild.
Lesa meira

15. feb. 2012

Fundur með trúnaðarmönnum 24. febrúar

Föstudaginn 24. febrúar nk. heldur FF fund með trúnaðarmönnum í framhaldsskólum. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli Reykjavík og hefst kl. 10:00 en mæting er kl. 9:45.
Lesa meira

15. feb. 2012

Krakkaskák

Krakkaskak.is er nýr vefur fyrir börn og unglinga sem vilja kynnast skáklistinni og vilja mennta sig í henni. Þar kennir ýmissa grasa fyrir utan skák eins og til dæmis litabók með taflmönnum. Þá eru teiknimyndakeppnir, kennslumyndbönd í skák og fleira skemmtilegt. Einnig er hægt að skrá sig í krakkaskáklið og tefla við önnur börn í rauntíma.
Lesa meira

14. feb. 2012

Námskeið um einelti, andlegt og félagslegt vinnuumhverfi

Þriðjudaginn 21. febrúar stendur Vinnueftirlit ríkisins fyrir námskeiði undir heitinu Einelti, andlegt og félagslegt vinnuumhverfi. Námskeiðið stendur frá kl. 13:00 til kl. 16:00 og verður það haldið að Bíldshöfða 18, 2h, Reykjavík.
Lesa meira

13. feb. 2012

KÍ, BHM og BSRB gegn einkavæðingu í þjónustu við atvinnulausa - var haldið utan við umræðuna

Á fundi sínum með velferðarráðherra í lok janúar sl. vöruðu KÍ, BHM og BSRB eindregið við því að tilraunaverkefni um þjónustu við atvinnuleitendur yrði til þess að skerða á nokkurn hátt bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu enda „full þörf á því að sú stofnun standi sterk á tímum þegar atvinnuleysi er í sögulegu hámarki.“ Téð tilraunaverkefni felur að mati samtakanna í sér einkavæðingu á þjónustu við atvinnulausa á ákveðnum hluta landsins og mismunun á grundvelli stéttarfélagsaðildar.
Lesa meira

13. feb. 2012

Skorað á stjórnvöld að hækka greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og skila til baka skerðingu

Formenn BHM, BSRB og KÍ hafa skorað á stjórnvöld að lagfæra réttindi foreldra í fæðingarorlofi með því að hækka hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með þessu eru stjórnvöld hvött til að skila til baka skerðingu í fæðingarorlofsgreiðslum allt frá 2008. Skerðing hefur þegar haft neikvæð áhrif á jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði á þann hátt að feður nýta sér síður réttindi til töku fæðingarorlofs. Árið 2011 skiluðu aðhaldsaðgerðir stjórnvalda sparnaði upp á 1,2 milljarð umfram áætlanir og því er svigrúm til að draga til baka skerðingu á réttindum.
Lesa meira

13. feb. 2012

Eingreiðsla til fólks í fæðingarorlofi

Á fundi formanna KÍ, BHM og BSRB með velferðarráðherra í janúar sl. ítrekuðu þeir kröfur um samningsbundna eingreiðslu til fólks í fæðingarorlofi. Meðal umsaminna kjarabóta í kjarasamningum síðasta árs sem samtökin gerðu við opinbera vinnuveitendur var 50 þúsund króna eingreiðsla sem átti að greiða í júní og 1. febrúar 2012 átti að greiða 25 þúsund króna eingreiðslu. Umdeilt hefur verið hvort þessi greiðsla eigi að ná til launafólks í fæðingarorlofi og vinnuveitendur hafa lagst gegn því.
Lesa meira

9. feb. 2012

Ráðstefna um söguaðferðina

Dagana 9. til 11. ágúst 2012 verður fimmta alþjóðlega söguaðferðarráðstefnan haldin í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð, Reykjavík. Markmið ráðstefnunnar er að stuðla að samskiptum milli skóla- og rannsóknarfólks sem hefur áhuga á Söguaðferðinni sem leið til að auka sveigjanleika og fölbreytni í námi.
Lesa meira

7. feb. 2012

Fjarnám, framhaldsskólinn og félagslegt réttlæti

Önnur málstofa af átta um framhaldsskólarannsóknir verður haldin miðvikudaginn 8. febrúar kl. 16:20-17:05 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, stofu K-207. Sólveig Jakobsdóttir dósent og Þuríður Jóhannsdóttir lektor, báðar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjalla um fjarnám, framhaldsskólann og félagslegt réttlæti.
Lesa meira

7. feb. 2012

Bestu gullkornin!

Dagur leikskólans var haldinn í fimmta sinn 6. febrúar. Í tilefni dagsins auglýsti Kynningarnefnd FL og FSL eftir gullkornum frá leikskólum landsins. Þau þurftu að vera lýsandi fyrir það nám sem leikskólabörn stunda og óskað var eftir mynd með. „Bestu“ gullkornin hafa verið valin á veggspjald, en þeim verður dreift til leikskóla, sveitaskrifstofa, ráðhúsa og leikskóla landsins. Auk þess var óskað eftir myndböndum með stuttum viðtölum við leikskólabörn um leikskólalífið. Dæmi um spurningar sem þau svöruðu var, hvað lærir þú í leikskólanum? Hvað gera leikskólakennarar og hvernig eiga góðir leikskólakennarar að vera?
Lesa meira

6. feb. 2012

Leikskólakennarar styrkja sveitarfélögin

Halldóri Halldórssyni formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga var afhent ávísun frá Félagi leikskólakennara klukkan tvö í dag. Ávísunin hljóðar upp á 363 þúsund krónur en féð safnaðist á styrktartónleikum leikskólakennara fyrir sveitarfélögin í ágúst sl. Það var Haraldur Freyr Gíslason formaður Félags leikskólakennara sem afhenti styrktarféð en því er ætlað að renna til góðgerðarmála.
Lesa meira

6. feb. 2012

Dagur leikskólans

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Í tilefni dagsins hefur verið gefið út veggspjald með gullkornum frá börnum sem afhent var borgarstjóra í dag.
Lesa meira

6. feb. 2012

Dagur leikskólans

Í dag er Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í fimmta sinn. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða 6. febrúar 1950 stofnuðu nokkrir frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samvinnuverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að efla jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Lesa meira

6. feb. 2012

Að skrifa konur inn í söguna

Föstudaginn 10. febrúar efnir Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) til málþings í samvinnu við Jafnréttisstofu, Sagnfræðistofnun og mennta- og menningarmálaráðuneytið um hlutdeild og birtingarmyndir kynjanna í sögubókum. Málþingið, sem ber heitið „Að skrifa konur inn í söguna“, fer fram kl. 14:00-17:30 í Öskju, stofu 132.
Lesa meira

6. feb. 2012

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 7. febrúar 2012

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar og í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Bratta, aðalbyggingu Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.
Lesa meira

6. feb. 2012

Tilkynning frá Orlofssjóði!

Þann 26. mars nk. hefst punktastýrð úthlutun á orlofshúsum fyrir sumarið 2012. Í meðfylgjandi viðhengi er hægt að skoða hvenær hægt er að panta eftir fjölda punkta. Ferðablaðið kemur út í fyrrihluta marsmánaðar og þá er hægt að skoða hvað er í boði fyrir sumarið.
Lesa meira

6. feb. 2012

Til hamingju með daginn leikskólakennarar!

Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar.
Lesa meira

3. feb. 2012

Fundarsalurinn Fróði á kynningartilboði

Stjórn Orlofssjóðs vekur athygli á kynningarverði vegna leigu á fundar- og ráðstefnusalnum Fróða sem staðsettur er á jarðhæð húss nr. 2 í Heiðarbyggð á Flúðum. Kynningarverðið gildir til 15. maí 2012. Salurinn er leigður út til allra félagsmanna KÍ og fara bókanir fram í gegnum skrifstofu Orlofssjóðs.
Lesa meira

2. feb. 2012

Icelandair afsláttarmiðar í flug

Aftur eru fáanleg gjafabréf með Icelandair. Gjafabréf gildir í tvö ár en ekki er hægt að fá þau endurgreidd. Verð fyrir gjafabréf hjá Icelandair er 25.000 krónur og gildir það sem 30.000 kr. greiðsla upp í fargjald í beinu áætlunarflugi til allra áfangastaða flugfélagsins. Til þess að kaupa gjafabréf í flug þarf að fara inn á Mínar síður og velja Orlofsvefinn „afsláttarávísanir“.
Lesa meira

31. jan. 2012

Sérstök eingreiðsla 1. febrúar 2012

Athygli er vakin á því að félagsmenn KÍ í leik-, grunn- og tónlistarskólum sem eru við störf þann 1. febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu, kr. 25.000,- miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012.
Lesa meira

31. jan. 2012

Enskunámskeið fyrir grunnskólakennara

Félag enskukennara á kost á 16 plássum á online námskeið á vegum British Council sem hefst 20. febrúar 2012. Námskeiðið nefnist Primary Essentials og er ætlað grunnskólakennurum sem kenna ensku. Enn eru 5 sæti laus á námskeiðið sem er þátttakendum að kostnaðarlausu en útheimtir töluverða vinnu.
Lesa meira

30. jan. 2012

Ráðstefna Iðnmenntar 2012

Starfsmenntun, skóli - atvinnulíf. Gildi starfsmenntunar í íslensku samfélagi. Föstudaginn 3. febrúar verður ráðstefna Iðnmenntar 2012 haldin á Grand Hótel Reykjavík og hefst hún kl. 13:00.
Lesa meira

30. jan. 2012

Skuldbinding framhaldsskólanemenda í tengslum við námsframvindu þeirra

Fyrsta málstofan af átta um framhaldsskólarannsóknir verður haldin miðvikudaginn 1. febrúar kl. 16:20-17:05 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, stofu K-207. Í þessari fyrstu málstofu er það Kristjana Stella Blöndal, lektor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, sem fjallar um áhugavert efni undir heitinu: Skuldbinding framhaldsskólanemenda í tengslum við námsframvindu þeirra.
Lesa meira

27. jan. 2012

Skráðum nemendum í framhalds- og háskólum fjölgar um 3,1% frá fyrra ári

Haustið 2011 voru skráðir nemendur á framhalds- og háskólastigi 48.723. Á framhalds- og viðbótarstigi voru skráðir 29.389 nemendur og 19.334 nemendur á háskóla- og doktorsstigi. Skráðum nemendum fjölgar um 3,1% frá fyrra ári og með þeirri fjölgun er sú fækkun sem varð á síðasta ári að mestu gengin til baka.
Lesa meira

26. jan. 2012

Norrænn samanburður og ánægja nemenda af lestri

Opinn umræðufundur þriðjudaginn 31. janúar 2012 kl. 14-16 í sal Námsmatsstofnunar, Borgartúni 7A. Þetta er fimmti fundur vetrarins hjá Námsmatsstofnun um PISA, opinn öllu áhugafólki um grunnmenntun og grunnskóla. Dagskráin er tvíþætt. Norrænn samanburður á lesskilningi í tilefni af nýju riti frá Norrænu ráðherranefndinni og hins vegar ánægja nemenda af lestri í tilefni af nýafstaðinni ráðstefnu Rithöfundasambands Íslands.
Lesa meira

26. jan. 2012

Menntaáætlun Nordplus 2012

Auglýst er eftir styrkjum til menntasamvinnu á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Umsóknarfrestur er 1. mars 2012.
Lesa meira

26. jan. 2012

Skólaráðstefna Epli.is

Fimmtudaginn 2. febrúar stendur Epli.is fyrir menntaráðstefnu á Grand hótel í Reykjavík.
Lesa meira

25. jan. 2012

Símenntunar-/starfsþróunarmál í brennidepli

Föstudaginn 13. janúar 2012 var haldinn á vegum Skólamálaráðs fræðslufundur um símenntun/starfsþróun - framtíðarsýn. Á fundinn mættu um 60 manns, flestir frá Kennarasambandinu, stjórnum og skólamálanefndum aðildarfélaganna, en einnig sátu fundinn fulltrúar frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri.
Lesa meira

23. jan. 2012

Fullt út úr dyrum á málþingi BSRB, BHM og KÍ um lífeyrismál

Málþing BSRB, KÍ og BHM fór fram á Grand hóteli á fimmtudaginn fyrir fullum sal en alls mættu rúmlega 400 manns til að hlýða á þau erindi sem þar voru flutt.
Lesa meira

20. jan. 2012

Læsi - Meira en stafir og staut

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar heldur ráðstefnu fyrir leikskólakennara og annað starfsfólk leikskóla laugardaginn 4. febrúar í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Ráðstefnan er haldin í tengslum við Dag leikskólans, en síðastliðin tvö ár hefur Leikskólasvið Reykjavíkurborgar haldið ráðstefnur á þessum tíma.
Lesa meira

19. jan. 2012

„Munurinn á lífeyrisgreiðslum minni en munurinn á lífeyrisréttindum gefur til kynna“

Þetta kemur fram í skýrslu Benedikts Jóhannessonar sem hann vann fyrir BSRB, KÍ og BHM og sem var kynnt á málþingi fyrr í dag.
Lesa meira

17. jan. 2012

Hægt að fylgjast með lífeyrismálþinginu á netinu

BHM, BSRB og KÍ standa fyrir málþingi um samspil lífeyris og almannatrygginga á Grand hóteli Reykjavík (Gullteig) þann 19. janúar nk. frá kl. 13:00-16:00. Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis en einnig verður hægt að fylgjast með þinginu gegnum netið.
Lesa meira

16. jan. 2012

Samspil lífeyris og almannatrygginga – þín framtíð

Málþing um samspil lífeyris og almennatrygginga verður haldið þann 19. janúar á Grand hóteli í Reykjavík kl. 13-16. Þingið er öllum opið og þátttaka ókeypis. Þar verða kynntar niðurstöður skýrslu sem Benedikt Jóhannesson vann að beiðni BSRB, KÍ og BHM um samspil lífeyrisgreiðslna úr lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna og greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins. Auk Benedikts munu nýskipaður fjármálaráðherra Oddný G. Harðardóttir og Sigríður Lillý Baldursdóttir frá Tryggingastofnun ríkisins halda erindi. Skráningarmöguleiki er kominn inn.
Lesa meira

13. jan. 2012

Framtíðarsýn í list- og verkgreinum

Mánudaginn 16. janúar verður haldinn undirbúningsfundur vegna vinnu við aðalnámskrá grunnskóla í list- og verkgreinum 2012. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Listaháskóla Íslands og stendur frá kl. 14:00 til 17:30.
Lesa meira

10. jan. 2012

Símenntun/starfsþróun – framtíðarsýn?

Framkvæmdastjórn skólamálaráðs Kennarasambands Íslands í samstarfi við fulltrúa KÍ í samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun heldur fræðslufund föstudaginn 13. janúar kl. 13:00-16:30. Fundurinn er ætlaður þeim sem sitja í stjórn KÍ og stjórnum og skólamálanefndum aðildarfélaga auk fulltrúa KÍ í stjórnum endurmenntunarsjóða. Athugið að ný dagskrá er komin inn.
Lesa meira

10. jan. 2012

Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir

Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita fé til endurmenntunar kennara og stjórnenda grunnskóla. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2012-2013 er til og með 20. febrúar 2012.
Lesa meira

10. jan. 2012

Upplýsingatækninámskeið fyrir leik- og grunnskólakennara

3f, félag um upplýsingatækni og menntun, heldur námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í Verzlunarskóla Íslands mánudaginn 23. janúar og þriðjudaginn 24. janúar kl. 16:00-20:00 báða dagana.
Lesa meira

10. jan. 2012

Kroppaklapp og kórstjórn meðal námskeiða Opna Listaháskólans fyrir listgreinakennara

Listkennsludeild LHÍ býður í vor upp á úrval spennandi endurmenntunarnámskeiða fyrir listgreinakennara undir merkjum Opna Listaháskólans. Námskeiðin eru öll á meistarastigi en þátttakendur geta valið hvort þeir taka námskeiðin til eininga eða ekki. Námskeiðin eru opin öllum með grunn-háskólagráðu í kennslu eða listum. Starfandi listgreinakennarar eru sérstaklega hvattir til að sækja um.
Lesa meira

6. jan. 2012

Er barnalýðræði á Íslandi?

Dagana 26.-27. janúar verður málþing Þroskaþjálfarafélags Íslands haldið á Grand hótel Reykjavík undir heitinu Er barnalýðræði á Íslandi? Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra og skemmtileg dagskrá.
Lesa meira

5. jan. 2012

Íslensk skólamál í alþjóðlegum samanburði

Á fundi kjararáðs KÍ 11. nóvember sl. flutti Oddur S. Jakobsson hagfræðingur KÍ stórfróðlegt erindi um íslensk skólamál í alþjóðlegum samanburði.
Lesa meira

4. jan. 2012

Opnunarráðstefna 11. janúar - Norrænir styrkir til menntamála 2012-2016

Miðvikudaginn 11. janúar nk. verður haldin opnunarráðstefna Nordplus. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Sögu frá kl. 15:00 til 17.00. Þar verður farið verður yfir helstu atriði Nordplus menntaáætlunarinnar, eldri Nordplus verkefni verða til sýnis og síðan verða ítarlegri kynningar í vinnustofum.
Lesa meira

4. jan. 2012

Orlofssjóður auglýsir eftir orlofshúsnæði fyrir sumarið 2012

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar eftir að taka á leigu húsnæði til endurleigu sumarið 2012 fyrir félagsmenn. Bæði íbúðarhúsnæði og sumarhús koma til greina. Húsnæðið þarf að vera vel búið húsgögnum og uppfylla kröfur um góðan húsbúnað. Leigusali þarf að hafa reglulegt eftirlit með húsnæðinu. Fastur leigutími eru 8 vikur á tímabilinu 8. júní til 17. ágúst 2012.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli