Fréttabréf desember 2010
Hér koma svo nokkrir punktar sem taka á því helsta sem á döfinni er:
1. Fagfélagastyrkur frá Menntamálaráðuneytinu er að þessu sinni 112 þúsund
fyrir starfsárið 2011 í stað 570 þúsunda fyrir árið 2010. Þetta setur
okkur mun þrengri skorður en áður í allri starfsemi félagsins.
2. Námskeið í Berlín.
Náðst hefur samkomulag við Goethe-Institut í Berlín um sumarnámskeið og
búið er að sækja um styrk til EHÍ. Skv. síðustu upplýsingum frá þeim, þá
fær FÞ styrk til námskeiðahalds en endanleg upphæð liggur ekki fyrir.
Lokasvar kemur frá EHÍ í janúar.
Áætlað er að námskeiðið fari fram 12.-18. júní. Endanleg dagskrá liggur
fyrir fyrri hluta janúar og þá verður opnað fyrir skráningu. Skráningin
fer í gegnum vef EHÍ.
Stjórnin sendir ykkur póst með öllum upplýsingum, þegar nær dregur.
3. Stuttmyndir og Þýskuþraut.
Enn liggur ekki fyrir, hvort ráðuneytið styrkir stuttmyndasamkeppni og
Þýskuþraut en verið er að sækja um styrki.
Þýskuþraut fer fram í febrúar að venju. Umsjónarmenn eru Ragna Kemp og
Sigurborg Jónsdóttir.
Stuttmyndakeppni verður haldin í samstarfi við Kvikmyndaskóla Íslands og
munu nemendur þar skipa dómnefndina. Hver mynd má ekki vera lengri en 3
mínútur. Miðað er við að ekki séu fleiri en fimm í hverju hópi. Myndunum
skal skilað eigi síðar en 1. mars. Nánari upplýsingar verða sendar út í
janúar.
4. Filmseminar í byrjun febrúar.
4.-5. febrúar verður haldið námskeið um notkun kvikmynda í kennslu fyrir
þýskukennara í samstarfi við GI og PASCH.
Endilega takið dagana frá. Námskeiðið verður auglýst sérstaklega þegar nær
dregur.
5. Bæklingur.
Loksins, loksins...! Bæklingurinn um þýsku og þýskunám kemur út í janúar.
GI í Kaupmannahöfn fjármagnar vinnslu og prentun. Þorgerður
Aðalgeirsdóttir og Helena Magnúsdóttir unnu íslenska textann.
6. Fundur um stöðu tungumála, 12.11.2010.
Fagfélög erlendra tungumála unnu úttekt á stöðu erlendra tungumála í
skólum fyrir ráðuneytið og lýstu áhyggjum sínum.
Allnokkrir skólar sendu formanni FÞ svör við spurningum sem sendar voru
til allra fagstjóra. Endanleg svör voru svo unnin af Oddnýju
Sverrisdóttur, Valgerði Bragadóttur, Kristínu L. Kötterheinrich og
Sigurborgu Jónsdóttur. Fundargerð með niðurstöðum allra fagfélaga fylgir
í viðhengi.
Við óskum ykkur gleðilegrar jólahátíðar og þökkum gott samstarf á árinu
sem er að líða.
Hittumst hress á nýju ári
Jólakveður
Giljagaur og Stúfur (Sigurborg og Kristín)