Launagreiðendur

Efni:

  • Lækkun félagsgjalds KÍ í 1% frá 1. janúar 2010
  • Rétt notkun stéttarfélaganúmera

Ágæti launagreiðandi!

Stjórn Kennarasambands Íslands hefur samþykkt að lækka félagsgjald í KÍ úr 1,55% af föstum launum fyrir dagvinnu í 1% af föstum launum fyrir dagvinnu, frá 1. janúar 2010. Við biðjum þig vinsamlegast að breyta þessu í launakeyrslum janúarmánaðar.

Einnig viljum við nota tækifærið og minna launagreiðendur á að nota rétt númer fyrir aðildarfélögin og gæta að því að í grunn- og framhaldsskólum eru félög stjórnenda með sér númer.

Grunnskólar:

  • FG   Félag grunnskólakennara nr. 0627 og
  • SÍ   Skólastjórafélag Íslands nr. 0631

Framhaldsskólar:

  • FF   Félag framhaldsskólakennara nr. 0677 og
  • FS   Félag stjórnenda í framhaldsskólum nr. 0678

Leikskólar:

  • FL   Félag leikskólakennara nr. 0950
  • FSL   Félag stjórnenda leikskóla nr. 0963

Tónlistarskólar:

  • FT   Félag tónlistarskólakennara nr. 0621

Félagsmenn greiða:

Af grunnlaunum:

    • Félagsgjald 1%

Launagreiðendur greiða:

Af grunnlaunum:

    • Endurmenntunarsjóður: 1,72%
    • FG/SÍ: Námsleyfasjóður: 1,3%

Af heildarlaunum:

    • Fjölskyldu- og styrktarsjóður: 0,55% til 0,75%
    • Orlofssjóður: 0,25% (FL: 0,5%)
Frá og með 1. janúar 2009 hefur framlag til fjölskyldu- og styrktarsjóðs verið greitt beint til KÍ samanber bréf sem sent var í desember 2008.

Bankareikningur fyrir öll gjöld er: 1175-26-456 og kennitala 501299-3329.

Skilagreinar sendist:

  • XML skjal á vefþjónustu
  • SAL færslu í tölvupósti á netfangið skbik@ki.is
  • Excel skjal í tölvupósti á netfangið ki-skilagreinar@byr.is
  • Pappír, á heimilisfangið: BYR – sparisjóður, KÍ (BIK) Borgartún 18, 105 Reykjavík

Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu KÍ.

Reykjavík 3. desember 2009
Með kveðju,

Hannes Þorsteinsson                         Ásta St. Eiríksdóttir
Skrifstofustjóri KÍ                             Gjaldkeri sjóða KÍ

Hér fyrir neðan og til hægri eru tenglar á upplýsingar vegna framhalds-, grunn-, leik- og tónlistarskóla:




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli