Forsíða

FRÉTTIR

7. jún. 2013

Ályktun frá Félagi grunnskólakennara um jákvæðan anda í ríkisstjórnarsáttmála

Fundur stjórnar Félags grunnskólakennara og formanna svæðafélaga, haldinn 6. júní 2013, fagnar þeim mikla samráðsanda sem ríkir um skólamál í nýgerðum stjórnarsáttmála. Það er mjög jákvætt að ríkisstjórnin hafi einsett sér að hafa samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu.
Lesa meira

5. jún. 2013

Vísindaleikir, húmor, vendikennsla og margt, margt fleira

Loftið á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð var þrungið eldmóði og áhuga þegar hundruð náttúrufræðikennara á öllum skólastigum komu saman til að fræðast um nýjungar, hlýða á fyrirlestra, kynningar og smiðjur á málþingi um nám og kennslu í náttúrufræðigreinum á 21. öldinni. Helst var kvartað undan því að ekki væri hægt að vera á fleiri en einum stað í einu þar svo margt áhugavert var í gangi á sama tíma.
Lesa meira

31. maí 2013

Lög á verkbannið í Danmörku og áhrif þeirra á vinnutíma kennara

Danska ríkisstjórnin greip sem kunnugt er inn í verkbann sveitarfélaga (KL) á grunnskólakennara (DLF) í apríl sl. með lagasetningu. Sá gerningur felur í meginatriðum í sér skerðingu á undirbúningstíma kennara og fjölgun kennslustunda til að ná niður kostnaði við breytingar á lögum um grunnskóla, „sólarlag“ er sett á 60 ára afslátt, vinnutímakafla kjarasamninga er kippt út og tímaskráningakerfi (stimpilklukkukerfi) tekið upp í skólum.
Lesa meira

31. maí 2013

Hæfnimiðað námsmat - lærum hvert af öðru

Mennta- og menningarmálaráðuneytið efnir til málþings um námsmat í nýrri menntastefnu í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga í Flensborgarskóla 30. ágúst nk. Námsmat í nýrri menntastefnu grundvallast á hæfni nemenda og er kynnt í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Lesa meira

31. maí 2013

„Nýr norrænn stjörnuhiminn“ - norrænt samstarfsverkefni

Nemendur úr 4. og 7. bekk Giljaskóla á Akureyri sýndu samstarfsverkefni um nýjan norrænan stjörnuhimin í húsnæði Populus tremula í Listagilinu á Akureyri núna í lok maí. Á sýningunni var vinnuferli verkefnisins rakið í máli og myndum ásamt því að nýr norrænn stjörnuhiminn var til sýnis.Verkefnið hafa nemendur unnið með kennurum, listamönnum og fræðimönnum á Íslandi, í nánu samstarfi við stofnanir í Umeå í Svíþjóð og í Viborg í Danmörku.
Lesa meira

Lesa allar fréttir





Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli