Félagið

Félagið er fjölmennasta aðildarfélag Kennarasambands Íslands með um 4.500 félagsmenn. Með stofnun félagsins í nóvember 1999 sameinuðust allir grunnskólakennarar landsins í fyrsta sinn í einu félagi. Hlutverk Félags grunnskólakennara er að vera málsvari þeirra félagsmanna Kennarasambands Íslands sem sinna kennslu eða ráðgjöf í grunnskólum.

Stjórn FG er skipuð sjö mönnum og fimm til vara. Formaður FG er Ólafur Loftsson. Varaformaður er Guðbjörg Ragnarsdóttir. Auk stjórnar eru helstu nefndir og ráð á vegum FG samninganefnd félagsins og skólamálanefnd. Samkvæmt lögum FG skiptist félagið í tíu svæðafélög.

Auk kjaramála eru fagleg málefni og skólamál mikilvægur þáttur í starfsemi félagsins. Starfsemi félagsins byggir mikið á trúnaðarmönnum sem starfandi eru í öllum skólum landsins.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli