Vinnuumhverfismál

Heimasíða fagnefndar Kennarasambands Íslands um vinnuumhverfismál

Vinnuumhverfisnefnd KÍ leggur sérstaka áherslu á sálfélagslegt vinnuumhverfi, s.s. samskipti á vinnustað, meðferð starfsmannamála ásamt því sem hefur áhrif á starfsánægju og líðan í starfi. Að auki leggur hún áherslu á aðbúnað á vinnustöðum.

Frekari upplýsingar um nefndina er að finna undir liðnum „Um nefndina“. Undir „Greinar, skýrslur og kannanir“ er að finna ýmislegt gagnlegt efni frá KÍ, Vinnueftirlitinu og öðrum aðilum og undir „Tenglar“ er að finna tengla á vefsíður stofnana/félaga sem sinna vinnuverndarmálum á Íslandi.

Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá starfsmanni Vinnuumhverfisnefndar, Hafdísi Dögg Guðmundsdóttir, netfang hafdis hjá ki.is, og einnig er hægt að senda fyrirspurn beint á Vinnuumhverfisnefnd.

______________________________________________________________________________________________

FRÉTTIR

9.mar. 2010

Hádegisfyrirlestur Rannsóknarstofu í vinnuvernd 12. mars

Í hádegisfyrirlestri Rannsóknastofu í vinnuvernd þann 12. mars nk. mun Ásta Snorradóttir, fagstjóri hjá Vinnueftirliti ríkisins fjalla um líðan starfsfólks á vinnustöðum í kjölfar skipulagsbreytinga og niðurskurðar. Í fyrirlestrinum verða kynntar niðurstöður rannsóknar sem Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja stóð að í samvinnu við Vinnueftirlit ríkisins og Háskóla Íslands meðal starfsmanna fjármálafyrirtækja í kjölfar bankahrunsins.
Lesa frétt


15.feb. 2010

Að lyfta upp starfsandanum - niðurstöður könnunar

Vinnuumhverfisnefnd (VUN) kannaði í lok síðustu annar (haust 2009) meðal félagsmanna KÍ hvað þeir gera saman til að lyfta upp starfsandanum á vinnustaðnum. Könnunin var á rafrænu formi og alls 2.245 svör bárust. Það jafngildir því að rúm 19% félagsmanna KÍ hafa svarað könnuninni. Spurt var um aðildarfélag innan KÍ og hvað fólk geri til að lyfta upp starfsandanum á vinnustaðnum.
Lesa frétt





Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli