Lífeyrir

Lífeyrismál

Kennarar eiga aðild að mörgum lífeyrissjóðum, helstir eru LSR, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins , sem mörg sveitarfélög ásamt ríkinu eiga aðild að, og LSS Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga. Grunnskólakennarar og framhaldsskólakennarar eiga skylduaðild að LSR, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins en margir leikskóla- og tónlistarskólakennarar eru í LSS, Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga.

LSR

LSR skiptist í tvær deildir, annars vegar A-deild sem allir nýráðnir greiða í og svo hins vegar B-deild sem var lokað fyrir nýjum sjóðfélögum í árslok 1996. Þeir sem greiddu í B-deild LSR í árslok 1996 hafa áfram rétt til aðildar, þ.e.a.s. ef þeir skiptu ekki yfir í A-deild eins og heimilt var við breytinguna. Iðgjald til A-deildar er greitt af heildarlaunum. Sjóðfélagi greiðir fast 4% en mótframlag launagreiðanda er breytilegt, nú 11,5%, sem haldist hefur óbreytt frá stofnun deildarinnar. Iðgjald til B-deildar greiðist af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót, orlofsuppbót og vaktaálagi. Sjóðfélagi greiðir 4% en mótframlag launagreiðanda er 8%.

LSS

LSS skiptist í tvær sameignardeildir, almenna deild (A-deild) og valdeild (V-deild). Sjóðfélagar geta valið hvorri sameignardeildinni þeir vilja tilheyra. Í A deildina er greitt iðgjald af öllum launum, þ.e.a.s. 4% frá launþega og 11,5% mótframlag launageiðanda. Iðgjald sjóðfélaga og launagreiðanda í V-deild ræðst af kjara- eða ráðningarsamningi. Taka þarf sérstaklega fram hvort um er að ræða greiðslu í A-deild eða V-deild sjóðsins. Sjóðfélagi gerist sjálfkrafa félagi í A- deild en óska þarf sérstaklega eftir aðild að V-deild.Hægt er að færa sig hvenær sem er úr A-deild í V-deild en hinsvegar er ekki hægt að flytja úr V-deild í A-deild. Þeir sem hyggjast flytja sig úr A-deild yfir í V-deild ættu að leita sér upplýsinga áður annaðhvort til KÍ eða LSS.

Séreignarsparnaður

Kennarar sem nýta sér rétt til séreignarsparnaðar eiga rétt á allt að 2% mótframlagi frá vinnuveitanda. Þeir sem ætla sér að hefja séreignarsparnað ættu að kynna sér vel hvort um einhvern kostnað er að ræða í upphafi sparnaðar eða ekki. Rétt er að benda á að séreignardeildir LSR og LSS hafa engan eða lægri kostnað í upphafi sparnaðar líkt en gengur og gerist annars staðar.

Allar upplýsingar um lífeyrissjóðina, persónulega stöðu sjóðfélaga og lánsmöguleika fyrir sjóðfélaga er að fá á skrifstofum viðkomandi sjóða. Á vef LSR og LSS eru einnig lánareiknivélar sem nýtast sjóðfélögum vegna lífeyrissjóðslána.

LSR – Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Bankastræti 7
101 Reykjavík
Sími: 510 6100
www.lsr.is

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
Vegmúla 2
108 Reykjavík
Sími: 540 0700
www.lss.is




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli