Forsíða

Sækja um Íslykil

Skólavarðan 1. tbl. 2013

SkólavarðanSkólavarðanSkólavarðan 1. tbl. 2007http://www.ki.is/utgafa/skolavardan_1.tbl.2011/Skólavarðan 1. tbl. 2011http://www.ki.is/utgafa/Skolavardan_1.tbl.2012/Skólavarðan 1. tbl. 2012http://ki.is/utgafa/skolavardan_1.tbl.2013/Skólavarðan 1. tbl. 13. árg. 2013SkólavarðanSkólavarðanhttp://www.ki.is/utgafa/Skolavardan_2.tbl.2011/Skólavarðan 2. tbl. 2011http://ki.is/utgafa/skolavardan_2.tbl.2012/Skólavarðan 2. tbl. 2012SkólavarðanSkólavarðanhttp://www.ki.is/utgafa/Skolavardan_3.tbl.2011/Skólavarðan 3. tbl. 2011SkólavarðanSkólavarðanhttp://www.ki.is/utgafa/skolavardan_4.tbl.2010Skólavarðan 5. tbl. 2005SkólavarðanSkólavarðanSkólavarðanSkólavarðanSkólavarðanSkólavarðanSkólavarðanSkólavarðancentercenterSkólavarðan 8. tbl. 2006Skólavarðan 9. tbl. 2004
ELDRI SKÓLAVÖRÐUR

 

 

24. maí 2013

Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga LSR

Þriðjudaginn 28. maí og miðvikudaginn 29. maí heldur LSR kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál, um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur. Sjóðfélagar geta valið um hvora dagsetninguna sem hentar betur. Fundirnir eru haldnir í húsnæði LSR að Engjateigi 11.
Lesa meira

24. maí 2013

Atli Harðarson skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands rýnir í tölur OECD um brottfall úr íslenskum framhaldsskólum

„Það hlýtur að vera betra að hlúa að því sem gefist hefur vel og byggja á sterkum undirstöðum sem til eru heldur en að mikla fyrir sér vandamál sem voru áhyggjuefni fyrir tuttugu árum og staglast á tölum sem virðast okkur í óhag í villandi og röngum samanburði við önnur lönd,“ segir Atli Harðarson skólameistari í Fjölbrautaskóla Vesturlands í grein á mbl.is í dag.
Lesa frétt


23. maí 2013

40 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2013-2014

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2013-2014. Alls bárust 115 umsóknir til sjóðsins og fengu 40 verkefni styrk að upphæð rúmlega 45. millj. kr. Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Lesa frétt


23. maí 2013

Íþróttakennaramenntun á Íslandi í 80 ár

Íþróttakennarafélag Íslands í samvinnu við stjórnendur íþrótta- og heilsubrautar Háskóla Íslands á Laugarvatni bjóða til afmælis- og skemmtidagskrár sunnudaginn 26. maí nk. í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Dagskráin stendur yfir frá kl. 14:00 til 16:00.
Lesa frétt


23. maí 2013

Stefnuyfirlýsing nýrrar ríkisstjórnar um mennta-og menningarmál

Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Fjölbreytileiki í skólastarfi er lykill að kraftmiklu og skapandi samfélagi. Áhersla verður lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu.
Lesa frétt


23. maí 2013

Menntamálin í raun stærsta efnahagsmál þessarar þjóðar

„Menntamálin í raun stærsta efnahagsmál þessarar þjóðar,“ sagði Illugi Gunnarsson, verðandi menntamálaráðherra í vefsjónvarpi mbl.is eftir að tilkynnt var að hann yrði ráðherra í næstu ríkisstjórn. Illugi sagði mikið verkefni framundan og sagðist hlakka mjög til. Verkefnið fælist í hvernig ná mætti meiri og betri árangri í menntamálum. „Framtíð okkar byggist á að nýta sem best mannauðinn.“
Lesa frétt


Lesa allar fréttir




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli