Talfræðingurinn, ársrit Félags talkennara og talmeinafræðinga, er nýkominn út en þar skrifa margir talmeinafræðingar áhugaverðar greinar um fagleg efni sem nýtast bæði leikskóla- og grunnskólakennurum. Meðal efnis eru greinar um málþroska ættleiddra barna, um kjörþögli, um raddskaða, um lestrarmenningarverkefnið í Reykjanesbæ og hugleiðing um það hvort athyglisbrestur geti verið vangreind málþroskaröskun eftir Sólveigu Jónsdóttur sálfræðing.
Hægt er að panta Talfræðinginn með því að senda póst á netfangið talmein hjá talmein.is.