Lög og reglugerðir

Lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, eða Vinnuverndarlögin svokölluðu, eru grundvöllur vinnuverndar á vinnustöðum og þar með talið í skólum.

Samkvæmt Vinnuverndarlögunum, reglum og reglugerðum sem byggjast á þeim, hafa atvinnurekendur/forstöðumenn víðtækum skyldum að gegna varðandi vinnuvernd á vinnustöðum. Þeir eiga að vinna að þessum málum í samstarfi við félagslega trúnaðarmenn, öryggistrúnaðarmenn/verði og öryggisnefndir vinnustaða.

Í nýrri reglugerð nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum eru ákvæði um tilnefningu, hlutverk og starfshætti öryggisvarða, öryggistrúnaðarmanna og öryggisnefnda í fyrirtækjum/stofnunum. Markmið þessarar nýju reglugerðar er að tryggja að fyrir hendi sé kerfisbundið vinnuverndarstarf á vinnustöðum. Í því felst einkum að atvinnurekandi/forstöðumaður ber ábyrgð á að koma á vinnuverndarstarfi sem tekur til fyrirtækis/stofnunar í heild og allra vinnuaðstæðna sem geta haft áhrif á öryggi og heilsu starfsmanna og gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði sem á að marka stefnu varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum.

Frá og með gildistöku þessarar reglugerðar er skylda að gera slíka áætlun. Hún felur í sér:

  • Mat á áhættu í starfi með tilliti til öryggis og heilsu starfsmanna, svo kallað áhættumat
  • Áætlun um heilsuvernd sem byggir á áhættumatinu og felur í sér forvarnir
  • Samantekt á helstu niðurstöðum áhættumats og áætlunar um heilsuvernd/forvarnir

Á vef Vinnueftirlits, www.vinnueftirlit.is, er ýmis konar fræðslu- og leiðbeiningaefni um áhættumat og forvarnir á vinnustað, m.a. vinnuumhverfisvísar fyrir skóla sem gagnast við gerð áhættumats.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli