Vísindasjóður FL og FSL

Vísindasjóður Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla


Markmið Vísindasjóðs FL og FSL er að trygga fjárhagslegan grundvöll sí- og endurmenntunar fyrir leikskólakennara í tengslum við störf þeirra. Vísindasjóður leikskólakennara starfar í þremur deildum eftir samþykkt sem sjóðsstjórn setur. Nánari upplýsingar um Vísindasjóð fást hjá fulltrúum sjóðsins, Sigrúnu Harðardóttur, netfang: sh hjá ki.is, eða Maríu Norðdahl, netfang: maria hjá ki.is, í síma: 595 1111 á milli 09:00-16:00.

Sótt er um styrki á Mínum síðum.

  Deildir sjóðsins eru:

Sjóðsstjórn heldur fundi að jafnaði fyrsta miðvikudag annan hvern mánuð. Sjóðstjórn er samkvæmt reglum sjóðsins heimilt að fella niður fundi í tvo mánuði að sumarlagi. Fundir eru fyrsta miðvikudag í febrúar, apríl, júní, september, október og desember. Umsóknarfrestur rennur út viku fyrir fasta fundardaga.

Athugið:

  • að allir styrkir eru greiddir út í einu lagi (einni greiðslu),
  • að aðeins er hægt að sækja um í einum flokki fyrir hverri ferð, ráðstefnu eða námskeiði,
  • að greiðsluseðlar sem berast sem kvittanir verða að vera stimplaðir frá banka,
  • að kvittanir mega ekki vera eldri en 6 mánaða.

Umsóknir í Vísindasjóð FL og FSL sem að jafnaði þurfa ekki að fara fyrir fund:

  • Handavinnunámskeið.
  • Myndlistarnámskeið.
  • Námskeið og ráðstefnur sem tengjast kennslu í leikskólum.
  • Tónlistarnámskeið.
  • Tungumálanámskeið.
  • Tölvunámskeið.



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli