Atvinnuleysisbætur

Réttur til atvinnuleysisbóta

Þeir sem eru atvinnulausir geta skráð sig á atvinnuleysisskrá og átt rétt á atvinnuleysisbótum. Þeir fá jafnframt ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit og eiga kost á störfum sem eru á skrá hjá vinnumiðlunum Vinnumálastofnunar.

Réttinn til atvinnuleysisbóta ávinna einstaklingar sér á vinnumarkaði. Umsækjandi þarf því að hafa áunnið sér þau réttindi og uppfylla ákveðin skilyrði samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að eiga rétt á greiðslum. Þegar umsóknir berast Greiðslustofu frá þjónustuskrifstofunum er réttur umsækjanda til atvinnuleysistrygginga metinn og hver umsókn afgreidd samkvæmt lögum.

Að sækja um atvinnuleysisbætur

Greiðslur atvinnuleysisbóta fyrir allt landið fara fram hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Þar er farið yfir umsóknir, meðfylgjandi gögn og bótaréttur metinn. Ef umsókn er samþykkt hefst greiðsla næstu mánaðarmót á eftir (þ.e. ef gögn hafa borist fyrir 19. dag mánaðar.) Umsækjendur um atvinnuleysistryggingar snúa sér til þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á sínu svæði til að sækja um atvinnuleysisbætur. Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar um land allt annast skráningu atvinnulausra, veita atvinnulausum upplýsingar og ráðgjöf ásamt því að hafa eftirlit með að umsækjendur um atvinnuleysisbætur fullnægi skilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar.

Hvernig á að sækja um?

  • Skrá sig rafrænt eða hjá þjónustuskrifstofu um leið og viðkomandi hættir að fá tekjur frá vinnuveitanda. Hægt er að sækja um atvinnuleysisbætur rafrænt hér.
  • Umsækjandi um atvinnuleysisbætur skráir sig jafnframt í atvinnuleit.
  • Sá sem nýtur atvinnuleysisbóta þarf meðal annars að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
    • vera virkur í atvinnuleit og reiðubúinn að ráða sig til almennra starfa,
    • tilkynna til Vinnumálastofnunar einu sinni í mánuði hvort atvinnuleit hafi borið árangur. Umsækjendur þurfa að staðfesta atvinnuleit sína frá 20. – 25. hvers mánaðar til að fá greiddar atvinnuleysisbætur mánaðarmótin þar á eftir. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar, er hægt að staðfesta atvinnuleit rafrænt eða hringja/koma á þjónustuskrifstofu.
    • tilkynna til Vinnumálastofnunar þegar vinna er fengin og gefa upp allar tekjur hvort sem um tilfallandi vinnu er að ræða eða hlutastörf.

Nánari upplýsingar um atvinnuleysistryggingar og rétt til atvinnuleysisbóta er hægt að fá hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar um land allt. Óski umsækjandi eftir að ná beinu sambandi við afgreiðslufulltrúa hjá Greiðslustofu er hægt að hringja í síma 582 4900 og fá frekari upplýsingar.

Atvinnuleysi og aðild að KÍ

Hægt er að óska eftir því að halda áfram að greiða til KÍ á atvinnuleysisbótum og mælir KÍ með að félagsmenn sínir geri það. Umsækjandinn þarf að merkja í þar tilgerðan reit á umsóknareyðublaði um atvinnuleysisbætur og þá sér Vinnumálastofnun um að koma greiðslunni til KÍ. Með því að óska eftir því heldur félagsmaður helstu réttindum sínum hjá stéttarfélaginu og aðgangi að þjónustu þess. Ef félagsmaður ákveður hins vegar að greiða ekki félagsgjöldin glatast ýmis réttindi. Þau helstu eru:

  • Áskrift að Skólavörðunni og öðru efni sem Kennarasambandið gefur út falla niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður.
  • Réttur til úthlutunar orlofshúsa fellur niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður og punktasöfnun stöðvast sem síðan rýrir rétt til úthlutunar eftir að starf er hafið að nýju.
  • Réttur til úthlutunar úr Sjúkrasjóði Kennarasambandsins fellur niður meðan viðkomandi er ekki félagsmaður. Það tekur síðan 6 mánuði að ávinna sér réttinn eftir að viðkomandi hefur störf að nýju.
  • Réttur til úthlutunar úr Verkefna- og námsstyrkjasjóði, starfsmenntunar og vísindasjóðum fellur niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður. Það tekur aðila að Vísindasjóði leikskólakennara 3 mánuði að ávinna sér réttinn eftir að viðkomandi hefur störf að nýju og aðila að Vísindasjóði framhaldsskólakennara 6 mánuði að ávinna sér réttinn aftur.
  • Aðstoð stéttarfélagsins og lögfræðinga falla niður þann tíma sem viðkomandi er ekki félagsmaður.

KÍ hvetur því félagsmenn sína til að halda tengslum við stéttarfélag sitt ef til atvinnuleysis kemur.

Fjárhæð atvinnuleysisbóta

Eftirfarandi tölur gilda frá 1. janúar 2009:

  • Grunnatvinnuleysisbætur (100% bótaréttur) eru 6.900 kr. á dag.
  • Grunnatvinnuleysisbætur (100% bótaréttur) eru 149.523 kr. á mánuði (miðað við 21,67 daga í mánuði).
  • Grunnatvinnuleysisbætur á dag fyrir minna en 100% bótarétt má sjá hér.
  • Hámarksfjárhæð tekjutengingar er 242.636 kr. á mánuði.
  • Greiðslur vegna barna eru 276 kr. á dag.



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli