Fyrir hádegi
Eftir hádegi var ársfundur Skólamálaráðs KÍ, sjá hér.
Eiríkur Jónsson formaður KÍ setti ársfundinn með ávarpi.
Fundarstjórar voru kjörnir Þórður Á. Hjaltested og Björg Bjarnadóttir og fundarritari Helgi E. Helgason.
Eiríkur Jónsson formaður KÍ gerði grein fyrir skýrslu um starfsemi Kennarasambands til ársfundar 2009. Elna K. Jónsdóttir varaformaður KÍ gerði grein fyrir þeim þætti skýrslunnar sem fjallar um skólamál og starfsemi skólamálaráðs (bls. 8 – 13). Guðni Sigurður Óskarsson formaður Vinnudeilusjóðs gerði grein fyrir þeim þætti skýrslunnar sem fjallar um Vinnudeilusjóð (bls. 19 - 21). Þar sem endurskoðaður ársreikningur sjóðsins liggur ekki fyrir er ekki hægt að birta ávöxtun sjóðsins 2008. Eignir hans í árslok 2008 voru rúmur einn milljarður króna þar af um 245 milljónir í verðbréfum og hafa um 50 milljónir af þeirri upphæð verið afskrifaðar. Um 840 milljónir króna eru nú á sparisjóðsbókum.
Hannes Þorsteinsson skrifstofustjóri kynnti drög að reikningum KÍ en þeir verða sendir öllum sem seturétt eiga á ársfundi jafnskjótt og reikningarnir hafa verið afgreiddir og undirritaðir af stjórn KÍ.
Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ gerði grein fyrir drögum að þjónustustefnu KÍ sem 4. þing KÍ samþykkti að mótuð yrði á grundvelli tillagna ParX og stjórnar KÍ. Fram kom að vinnu við mótun þjónustustefnunnar verði væntanlega lokið á vormánuðum en innleiðing þjónustustefnunnar muni þó taka lengri tíma.
Elna K. Jónsdóttir varaformaður KÍ gerði grein fyrir starfi vinnuhóps sem vinnur að því að koma í framkvæmd samþykkt 4. þings KÍ um endurskoðun á starfsemi KÍ á sviði útgáfu- og kynningarmála. Kynnti voru eftirfarandi drög (ekki lokagerð) að tillögum um útgáfumál.
Útgáfustjóri í fullu starfi beri meginábyrgð á þessum hluta starfsemi sambandsins en vinni í nánu samstarfi við útgáfustjórn og forystu KÍ sbr. einnig greinargerð í fylgiskjali með samþykkt fjórða þings KÍ.
Fram kom að vinnu við þann hluta samþykktar síðasta þings sem lýtur að kynningarmálum er skemur á veg kominn. Ársfundurinn samþykkir tillögudrögin fyrir sitt leyti og veitir starfshópnum umboð til að halda starfi sínu áfram.
Ólafur Loftsson formaður FG kynnti tillögur starfshóps um samstarf aðildarfélaga sbr. ályktun 4. þings KÍ um það efni. Starfshópurinn leggur til að stjórn KÍ taki ákvörðun um eftirfarandi tvo þætti sem fyrst:
Ársfundurinn samþykkir samhljóða að vísa málinu til stjórnar KÍ til áframhaldandi vinnslu.
Arnar Jónsson gerði grein fyrir drögum ParX að tillögum um breytingar á rekstri Orlofssjóðs. Stefnt er að því að lokaniðurstaða liggi fyrir í lok mánaðarins og verður þá birt á heimasíðu KÍ.
Eiríkur Jónsson formaður KÍ rakti stöðu kjaramála og samningamála og sagði frá fundum sem fulltrúar KÍ hafa átt með fulltrúum annarra launþegasamtaka og vinnuveitendum. Fram kom að erfitt hefði reynst að fá ríkisstjórnina að borðinu. Beðið væri niðurstaðna kosninga og nýrrar ríkisstjórnar. Eiríkur áréttaði að lokaorð um allt sem lyti að kjarasamningum ættu aðildarfélögin sjálf.
Elna K. Jónsdóttir varaformaður KÍ gaf yfirlit um stöð kjaramála félagsmanna KÍ sem starfa hjá ríki. Ræddi m.a. um nýjar aðstæður þar sem kjör væru að hluta til ákveðin í stofnanasamningum. Aldrei hefði áður reynt á merkingu þeirra.
Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins gerði grein fyrir stöðu LSR eftir bankahrunið sl. haust. Hann kvað ýmis atriði enn óljós enda sé endanlegri uppgjörsvinnu ekki lokið. Haukur segir bankahrunið hafa fært sjóðinn eignalega til baka um sem næst tvö ár. Bráðabirgðatölur benda til að tap sjósins sé um það bil 13 – 14% af eignum. Sterkur fyrirvari er þó gerður við þessar tölur. Þrátt fyrir þetta áfall telur Haukur stöðu sjóðsins ekki alslæma. Sjóðurinn eigi miklar eignir og standi í reynd sterkt. Vegna óvissu verða glærur ekki birtar á netinu en verða sendar ársfundarfulltrúum. Endanlegt uppgjör sjóðsins mun verða birt í ársskýrslu LSR sem kemur væntanlega út í maí.
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingarsjóðs kynnti starfsemi sjóðsins. Sagði frá meginmarkmiðum hans og verkefnum frá því hann hóf formlega göngu sína í ágúst sl. Átta manns starfa hjá sjóðnum í fimm stöðugildum.