Næsta vika er vinnuverndarvika Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar árið 2008. Þema þessarar vikur er áhættumat undir slagorðunum „Bætt vinnuumhverfi – betra líf: Áhættumat og forvarnir eru leiðin“.
Lögð er áhersla á mikilvægi þess að gert sé áhættumat fyrir alla vinnustaði en matið á að styrkja vinnuverndarstarf innan vinnustaðanna, með skýrri ábyrgð og virkni atvinnurekenda og /eða stjórnenda og kerfisbundinni þátttöku starfsmannanna sjálfra.
Áhættumat er greining áhættuþátta á vinnustað og mat á líkum á því að starfsmaður verði fyrir heilsutjóni. Leiðbeiningar um gerð áhættumats er að finna á síðu Vinnueftirlitsins undir „gagnabrunnur“ og „áhættumat“.
Árleg ráðstefna Vinnuverndarvikunnar verður haldin í Gullteigi á Grand hóteli í Reykjavík, þriðjudaginn 21. október, kl. 13:00-16:00. Sjá dagskrá hér.