Þrátt fyrir aðhaldsaðgerðir í rekstri Sjúkrasjóðs á árinu eru úthlutanir úr sjóðnum ennþá umfram tekjur og er því óhjákvæmilegt að þrengja reglur sjóðsins enn meira en gert var í upphafi árs. Frá og með 1. janúar 2009 verða styrkir vegna tannlæknakostnaðar felldir niður.
Umsóknir vegna tannlæknakostnaðar sem berast eftir 1. janúar 2009 verða ekki afgreiddir. Dagsetning á póststimpli gildir.