Frétt

4. nóv. 2008

Er þörf nýrra samfélagslegra gilda? Hvaða breytingar eru líklegar á hlutverki hins opinbera í kjölfar slíks endurmats?

Þetta er yfirskrift morgunverðarfundar Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ sem haldinn verður þann 11. nóvember kl. 8.30-10.00 á Grand hótel í Reykjavík.

Fyrirlesarar verða þau Páll Skúlason prófessor, Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur, Guðmundur Magnússon sagnfræðingur og rithöfundur, Arnar Þór Másson stjórnmálafræðingur.

Skráning: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/samfelagsleggildi.

Þátttökugjald er kr. 4.200.- og er morgunverður innifalinn.

Ekki þarf að fjölyrða um þau umskipti sem orðið hafa í íslensku samfélagi sl. vikur. Þjóð sem hélt hún byggi í einu þróaðasta og hagfelldasta samfélagi heims stendur frammi fyrir hruni myntar og fjármálkerfis, þúsundum atvinnulausra og gífurlegum fjárhagserfiðleikum fjölda einstaklinga og fyrirtækja. Ekki verður á þessum fundi fjallað um þessi atriði, um þau sjá daglegir fréttatímar fjölmiðla. Leitast verður að svara öðrum og ekki síður áleitnum spurningum:

  • Byggði samfélag síðustu ára á hugmyndalegum "sandi" eða hvar bar okkur af leið?
  • Hvaða gildi eigum við að hafa að leiðarljósi meðan við vinnum okkur út úr kreppunni? Hvað kennir sagan okkur þar?
  • Hvernig getum við stuðlað að því að mistök sl. ára endurtaki sig ekki?
  • Hvernig mun hlutverk ríkisins og stofnana þess breytast?

Fundarstjóri Margrét S. Björnsdóttir forstöðumaður við HÍ.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli