Frétt

10. nóv. 2008

Fyrirlestur um vinnuvernd á óvissutímum

Vegna þeirra þrenginga sem nú steðja að þjóðinni býður Vinnueftirlitið fyrirtækjum upp á fyrirlestra um vinnuvernd með sérstakri áherslu á sálfélagslegt vinnuumhverfi. Þessi fyrirlestur er að vissu marki sniðinn að þörfum hvers vinnustaðar fyrir sig og getur verði allt frá hálfri klukkustund til tveggja tíma langur, allt eftir óskum og þörfum vinnustaðarins.

Þeir sem hafa áhuga á að panta slíkan fyrirlestur sendi fyrirspurn á netfangið fyrirlestur@ver.is. Ekki er tekið gjald fyrir þessa fyrirlestra.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli