Ráðstefna NUMU (Norræn samtök tónlistaruppalenda) sem haldin er annað hvert ár í einhverju Norðurlandanna verður nú haldin öðru sinni eftir sameiningu norrænna skólastjórnenda og kennara í ný samtök árið 2004. Ráðstefnan fer fram í Vejen í Danmörku og stendur yfir dagana 30. mars – 3. april 2007. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Musik for livet“ og er hún ætluð bæði stjórnendum og kennurum tónlistar- og listaskóla. Ráðstefnan fer fram á Norðurlandamálum og ensku.
Á ráðstefnunni, sem hefst á hádegi föstudaginn 30. mars og lýkur á hádegi þriðjudaginn 3. apríl, er boðið upp á fjölbreytta dagskrá í formi fyrirlestra, málstofa og námskeiða auk tónleika eða annarra viðburða alla dagana og skemmtiferðar á sunnudeginum. Fyrirlesarar koma frá öllum aðildarlöndum NUMU þ.e. Noregi, Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð, Íslandi og Færeyjum. Hér á eftir má sjá yfirskriftir dagskrárliða ráðstefnunnar en hægt er að skoða nánar alla dagskrána á vefslóðinni:
http://www.numu2007vejen.dk.
Frede V. Nielsen – (DK)
Prófessor við „Danmarks Pædagogiske universitet“
Bengt Olsson – (SE)
Prófessor við „Göteborgs Universitet“
Bjørn Kruse – (NO)
Prófessor við „Norges Musikkhøyskole i Oslo“
Lars Ole Bonde – (DK)
Lektor við „Aalborg Universitet“
Jørgen Mortensen – (DK)
Dósent við „Vestjysk Musikkonservatorium“
Linda Vilhelmsen – (DK)
Lektor við „Haslev Seminarium“
Peter Vuust – (DK)
Dósent við „Det Jyske Musikkonservatorium“
„Stockholms Musikpedagogiska Institut“ – (SE)
Elisabeth Lang – (SE)
„Lidingø Musikskola“
Helena Råberg-Schrello – (SE)
Lektor við „Kgl. Musikhögskolan i Stockholm“
Alexander Krohg Plur / Tormod Björnstad – (NO)
Ulrika Bergroth-Plur – (NO)
Are Fevang – (NO)
Alexander Krohg Plur – (NO)
Lauri Väkevä – (FI)
„Sibelius Akademiet“
Matti Ruippo – (FI)
„Sibelius Akademiet“
Markus Fagerudd – (FI)
Árni Sigurbjarnarson – (IS)
Skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur
Sunleif Rasmussen – (FÆ)
Ebbe Høyrup – (DK)
Per Ekedal – (SE)
„Rikskonserter“
Ráðstefnan fer fram á Vejen Kongreshotel í Vejen í Danmörku en staðsetningu Vejen má sjá á kortinu hér fyrir ofan.
Gisting í eins manns herbergi kostar 3380 DKK og í tveggja manna herbergi kostar gisting fyrir einn 2780 DKK. Innifalið í verðinu er morgunverður alla ráðstefnudagana auk eftirtaldra máltíða:
Verðin miðast við að skráning fari fram ekki seinna en 15. janúar 2007. Upplýsingar um stök verð fyrir gistingu og máltíðir er að finna á fyrrnefndri vefsíðu.
Ráðstefnugjald er 2500 DKK fram til 1. febrúar 2007 en eftir þann tíma hækkar gjaldið í 3000 DKK. Auk þátttöku í öllum dagskrárliðum felur gjaldið í sér kaffi alla dagana og skipulagða kvöldviðburði í framhaldi af dagskrá, tónleika ofl. Fyrir skemmtiferð og kvöldverð á sunnudeginum greiðist sér gjald eða 350 DKK.
Þátttaka tilkynnist á þar til gert umsóknareyðublað sem nálgast má á vefslóðinni: www.numu2007vejen.dk.
Sem fyrr verður haldið norrænt tónlistarmót fyrir tónlistarnema á aldrinum 12-18 ára samhliða ráðstefnunni í Vejen. Gert er ráð fyrir 300 þátttakendum og geta allir tekið þátt hvort sem um ræðir hópa eða einstaklinga, kóra, hljómsveitir (stórar og smáar) eða aðra hljóðfæra– og söngnemendur. Þema mótsins er „Tónlist frá miðöldum til dagsins í dag.“ Boðið verður upp á eftirtaldar vinnustofur:
Á tónlistarmótinu gefst nemendum tækifæri til að hitta aðra tónlistarnema og deila með þeim reynslu sinni úr tónlistarheiminum. Þá halda þátttakendur tónleika fyrir aðra þátttakendur sem og staðarbúa og aðra gesti.
Þátttökugjald er 1495 DKK. Innifalið í gjaldinu er gisting og fæði, vinnustofur og ferð í Legoland. Nánari upplýsingar um tónlistarmótið er að finna á vefslóðinni www.numu2007vejen.dk. Tilkynning um þátttöku berist fyrir 1. febrúar 2007 til skrifstofu FT.