Fimmtudaginn 2. apríl frá kl. 16.00-18.00 munu kennarar og nemendur kynna meistara- og doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands (fyrrum Kennaraháskóla Íslands) skólaárið 2009-2010. Kynningin fer fram í Skála í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Í boði er fjölbreytt framhaldsnám í Kennaradeild, Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild og Uppeldis- og menntunarfræðideild. Vakin er athygli á nýju meistaranámi í uppeldis- og menntasálfræði við Uppeldis- og menntunarfræðideild.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Upplýsingar um hvernig sótt er um er að finna á vef Menntavísindasviðs www.mennta.hi.is.
Allir velkomnir.