Verður haldinn miðvikudaginn 13. maí 2009, kl. 10:30 í fundarsal BSRB á 1. hæð að Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
Dagskrá: Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins og önnur mál löglega upp borin.
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar aðildarfélaga BSRB, BHM, KÍ og launagreiðenda eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta. Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga.