Frétt

18. maí 2009

Vettvangsnám fyrir verkmenntakennara og raungreinakennara í framhaldsskólum skólaárið 2009-2010

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara býður upp á vettvangsnám fyrir verkmenntakennara og raungreinakennara í framhaldsskólum næsta vetur. Fyrirkomulag námskeiðsins er þannig að kennt er í fjórum lotum yfir veturinn á helgarnámskeiðum. Gert er ráð fyrir tveimur lotum á haustönn og tveimur á vorönn. Viðfangsefni og fyrirlestrar eru valin í samráði við þátttakendur en gert er ráð fyrir því að starfendarannsóknir verða kynntar svo og hugmyndir að námsmati, einkum leiðbeinandi mati og matskvörðum því tengdu. Allir þátttakendur gera litla starfendarannsókn þar sem kennarinn skoðar eigin kennslu í þeim tilgangi að bæta nám nemenda.

Umsjónarmenn eru með námi fyrir verkmenntakennara er Anna Sjöfn Sigurðardóttir, kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Umsjónarmaður með námi fyrir raungreinakennara er Ester Ýr Jónsdóttir, kennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Umsóknarfrestur er til 10. júní nk.

Umsóknir sendist í tölvupósti til Guðrúnar Eddu Baldursdóttur verkefnisstjóra Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara: gudruneb hjá hi.is.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli