Frétt

27. maí 2009

Ákall erlendra sérfræðinga um að Ísland viðurkenni mikilvægi menntunar

Alþjóðleg nefnd skipuð sérfræðingum frá OECD og úr finnska menntamálageiranum auk fleiri kallar eftir því að athafnir fylgi orðagjálfri og öll ráðuneyti og stjórnmálaflokkar forgangsraði í þágu menntunar. Ennfremur að ráðamenn átti sig á að niðurskurður geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð Íslands. Sjaldgæft er að heyra talað jafn tæpitungulaust hjá stjórnskipaðri nefnd og hér er gert og hlýtur að verða til þess að fólk átti sig á alvöru málsins.

Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, lagði fram til kynningar á ríkisstjórnarfundi í gær áhugaverðar skýrslur nefnda sem hafa fjallað um menntamál frá því laust eftir hrun. Annars vegar er um að ræða innlenda verkefnisstjórn sem lagði fram tillögur að aðgerðum í tengslum við háskóla og vísindastarfsemi í landinu. Hins vegar er skýrsla frá erlendum ráðgjafahópi sem var skipaður til að veita stjórnvöldum ráð um viðbrögð á sviði mennta- og vísindamála Í þeirri nefnd sátu háttsettir sérfræðingar frá OECD, fyrrverandi ráðuneytisstjóri finnska menntamálaráðuneytisins og fyrrverandi dóms- og menntamálaráðherra Finnlands. Þessi síðarnefnda skýrsla er kölluð Stefna í menntun, vísindum og nýsköpun: Ný leið fyrir Ísland og þar koma fram afgerandi ítarlegar athugasemdir og tillögur með meginþunga á háskóla, vísindastarf og nýsköpun eins og lagt var upp með en einnig er fjallað um menntamál þjóðarinnar í heildrænu samhengi. Nefndin ráðleggur meðal annars eftirfarandi:  „Viðhaldið fjárfestingum í menntun. 1. Menntun og þjálfun eiga að vera ofarlega í forgangsröðun stjórnvalda og ekki bara í höndum embættismanna. Athafnir þurfa að fylgja orðagjálfri stjórnmálanna. Þetta er ákall um að mikilvægi þessa sviðs fyrir framtíð Íslands verði viðurkennt, og að viðurkennt verði að niðurskurður á þessu sviði geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð Íslands. Menntun og þjálfun þurfa að vera ofarlega í forgangsröðun allra ráðuneyta og allra stjórnmálaflokka.“ Sjá nánar umfjöllun hér og þýðingu á hluta erlendu skýrslunnar hér.
.  


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli