29. maí 2009
Samningafréttir: Lítið að gerast í Karphúsinu en KÍ fólk fundar næsta þriðjudag
Núna er fundað í Karphúsinu en fátt fréttnæmt. Hins vegar hefur verið boðaður fundur næsta þriðjudag þar sem hittast stjórn Kennarasambandsins, stjórnir aðildarfélaga KÍ og samninganefndir. Þrennt verður tekið fyrir á fundinum: 1. Farið yfir helstu atriði sem rætt er um í Karphúsinu og með ráðherrum ríkisstjórnar. 2. Nokkrar tölfræðilegar upplýsingar. 3. Umræður og, eftir atvikum, ákvarðanir um næstu skref. Hvaða leið er líklegust að skila okkur fram á veginn varðandi launalið kjarasamnings? Hvaða tryggingar geta opinberir aðilar gefið fyrir því að það standi sem um semst? Annað sem fundarmenn telja mikilvægt að koma inn í umræður um sk. „stöðugleikasáttmála“.
Til baka