Frétt

16. mar. 2007

Forsetahjónin heimsækja Ártúnsskóla

Ártúnsskóli fékk sem kunnugt er Íslensku menntaverðlaunin árið 2006 og þann 12. mars síðastliðinn sóttu forsetahjónin skólann heim þar sem nemendur tóku vel á móti þeim, fluttu fyrir þau tónlist og kynntu þeim skólastarfið.

Ártúnsskóli er þekktur fyrir að leggja sérstaka rækt við lífsleikni og jákvæð gildi. Í umsögn dómnefndar Íslensku menntaverðlaunanna um Ártúnsskóla sagði m.a.: Markvisst er leitast við að efla skilning nemenda á mikilvægi heiðarleika, kærleika, samstöðu, samvinnu, umburðarlyndis, vináttu og virðingar og hefur starfsfólk skólans samið námsefni sem notað er í þessu skyni. Tengsl við grenndarsamfélagið hafa verið einn af hornsteinum skólastarfsins. Vettvangsferðir og umhverfismennt er fastur liður í starfinu. Skólinn er staðsettur í nágrenni við Elliðaárdalinn, Árbæjarsafn og Skólagarða Reykjavíkur og hefur nábýlið verið nýtt á fjölbreyttan hátt í skólastarfinu svo til fyrirmyndar er.

Sjá greinargerð dómnefndar hér.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli