Frétt

24. sep. 2009

Heimsganga og mannlegt friðarmerki 2. október – kennarar hvattir til þátttöku

Heimsgangan Í þágu friðar og tilveru án ofbeldis leggur af stað frá Wellington á Nýja-Sjálandi þann 2. október á fæðingardegi Ghandis. Þetta er um þrjátíu manna hópur sem ferðast um nærri hundrað lönd og er komu þeirra fagnað með friðargöngum, ráðstefnum og öðrum uppákomum, auk þess sem fulltrúar hópsins hitta friðarsinna og ráðamenn á hverjum stað. Hérlendis er starfandi skipulagshópur vegna heimsgöngunnar og ásamt fjölmörgum samtökum og einstaklingum stendur hann fyrir því að mynda stórt mannlegt friðarmerki á Klambratúni (Miklatúni) kl. 20:00 föstudaginn 2. október.

Þennan sama dag, sem er jafnframt dagur Sameinuðu þjóðanna án ofbeldis (Day of Nonviolence), verða viðburðir um allan heim til að fagna upphafi Heimsgöngunnar og gera þennan merka dag hátiðlegan. Þórhildur Jónsdóttir kennari í Hulduheimum er ein skipuleggjenda og hún vill koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri við félagsmenn KÍ: „Endilega látið okkur vita ef þið heyrið af stórum hópi félaga innan Kennarasambandsins sem ætlar að mæta, því næsta föstudag (25. september) verður fundur kl. 17.30 í Alþjóðahúsinu. Fulltrúi frá KÍ er velkomin/n á fundinn til að fá nánari upplýsingar, eða til að koma hugmyndum sínum á framfæri og til að gefa okkur upp fréttir um það hversu margir komi, sé um hópa að ræða. Stefnt verður að því í framtíðinni að safna saman hópum og einstaklingum á sama hátt þennan dag.“ Áhugasamir félagsmenn geta haft samband við Þórhildi í s. 857 9980 og aðrir tengiliðir vegna göngunnar eru Helga R. Óskarsdóttir s. 861 9175, Júlíus Valdimarsson s. 897 7403, Methúsalem Þórisson s. 661 5621 og Ragnar Sverrisson s. 696 3810.

Meðal aðstandenda göngunnar á Íslandi má nefna Hitt húsið, Rauða krossinn, Alþjóðahúsið ásamt fjölda samtaka innflytjenda, MFÍK, Samtök hernaðarandstæðinga, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Kvennaráðgjöfina, Öryrkjabandalagið, Samband Íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) o.fl.

Hópurinn hvetur alla friðarsinna sem tök hafa á að mæta á Klambratúni, halda sínum kyndli á loft og mynda tilkomumikið friðarmerki til þessa að tjá djúpa þrá okkar allra eftir friðsömum og ofbeldislausum heimi.

Seldir verða miðar eða ávísanir á blys fyrirfram og verða blysin afhent á Klambratúni. Hægt er að taka þátt sem einstaklingur en fólk er að sjálfsögðu einnig hvatt til að virkja fleiri með sér og mæta sem hópur.

Sjá veggspjald og upplýsingabækling.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli