Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefur nú starfað í rúmt ár. Af því tilefni verður opið hús í húsakynnum hennar í E-204 (Enni) v/Stakkahlíð þann 12. nóvember frá kl. 14 til 17. Þeir sem að stofunni standa munu kynna á veggspjöldum nokkur þeirra rannsóknar- og þróunarverkefna sem unnið er að um þessar mundir og spjalla við gesti. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir!
Árdís Hrönn Jónsdóttir. „Bók í hönd og þér halda engin bönd.“ Þróunarverkefni í leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ. Verkefnið miðar að því að efla mál- og læsisþroska leikskólabarna með því að lesa fyrir þau.
Hrafnhildur Ragnarsdóttir. Mál í notkun: Samanburður á orðaforða í rit- og talmálstextum barna, unglinga og fullorðinna. Niðurstöður úr einum lið (þ.e. orðaforða) í umfangsmikilli rannsókn á þróun máls og málnotkunar við textagerð í fjórum aldursflokkum (11, 14, 17 ára og fullorðnir).
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Steinunn Gestsdóttir og Freyja Birgisdóttir. Þroski leik- og grunnskólabarna: Sjálfstjórn, málþroski og læsi 4ra - 8 ára barna. Lýsing og fyrstu niðurstöður úr þriggja ára rannsóknarverkefni sem hófst haustið 2008 og tengist sem stendur 13 leikskólum og fimm grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Jóhanna Einarsdóttir. Hvað er stam? Sagt frá niðurstöðum rannsókna um greiningu og mat á stami leikskólabarna.
Jóhanna Einarsdóttir. Hljóm og hvað svo? Niðurstöður og vangaveltur tengdar skimunarprófinu HLJÓM-2.
Rannveig A. Jóhannsdóttir. Lestrarnám og lestrarkennsla. Rannsókn á námi og kennslu í lestri og ritun fyrstu árin í grunnskóla. Rannsóknin er liður í doktorsverkefni Rannveigar við Stokkhólmsháskóla. Markmið hennar er að rannsaka hvaða eiginleika og færniþætti í máli, lestri og ritun reynir á og börn beita í lestrarnámi sínu á fyrstu skólaárunum.
Rannveig Oddsdóttir. Hvað vita fjögra ára börn um ritun? Kynning á niðurstöðum úr rannsókn á byrjendalæsi íslenskra leikskólabarna. Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni Rannveigar, Ritun og textagerð íslenskra barna á aldrinum 4-8 ára.
Steinunn Torfadóttir og Helga Sigurmundsdóttir. Á leið til læsis. Lestrarkennsla byggð á gagnreyndum kennsluaðferðum.
a) Leið til læsis: Lesskimun í fyrsta bekk.
b) Snemmtæk íhlutun - einstaklingsmiðuð lestrarkennsla.
c) Þróun lestrarfærni frá fæðingu til fullorðinsára.