Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 var lagt fram við fyrstu umræðu á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær. Í frétt á heimasíðu borgarinnar kemur fram að gert er ráð fyrir að Menntasvið, Leikskólasvið og Íþrótta- og tómstundasvið hagræði einungis um 4% en skattar og gjöld á grunnþjónustu verði ekki hækkað, náms- og fæðisgjöld í leikskólum verða óbreytt,100% systkinaafsláttur verður áfram í gildi, verð á skólamáltíðum í grunnskólum hækkar ekki og gjaldskrár frístundaheimila verða óbreyttar. Hagræða þarf í rekstri borgarinnar um 3,3 milljarða króna á næsta ári og með aðhaldi í ráðningum og launaútgjöldum er ætlunin að ná fram 19% niðurskurðarins, eða 651 milljón.
Í fréttinni segir:
„Markmið frumvarpsins er að standa vörð um þjónustu við börn og velferð. Þessi áhersla kemur skýrt fram í því að engin krafa um hagræðingu er gerð á Velferðasvið borgarinnar og er gert ráð fyrir að Menntasvið, Leikskólasvið og Íþrótta- og tómstundasvið hagræði aðeins um 4% í sínum rekstri.
Mun meiri hagræðingarkrafa, eða 9% er gerð á miðlæga stjórnsýslu og önnur svið borgarinnar sem annast ýmis konar framkvæmdir, skipulag og umhverfismál. Áframhaldandi samdrætti í tekjum borgarinnar verður mætt með hagræðingu í rekstri, án þess að hækka skatta eða gjöld á grunnþjónustu. Þannig verða náms- og fæðisgjöld í leikskólum óbreytt auk þess sem 100% systkinaafsláttur verður áfram í gildi. Verð á skólamáltíðum í grunnskólum hækkar ekki og gjaldskrár frístundaheimila verða óbreyttar.
Samanlagt þarf að hagræða í rekstri borgarinnar um 3,3 milljarða króna á árinu 2010. Áætlað er að 17% af þessari hagræðingu, eða 552 milljónir króna muni nást fram með auknum samrekstri í borgarkerfinu, fyrirmyndarrekstri og auknu eftirliti. Með aðhaldi í ráðningum og launaútgjöldum náist fram 19%, eða 651 milljón af hagræðingunni. Hagræðing í húsnæðiskostnaði og viðhaldsverkefnum skili 26% af heildinni eða 867 milljónum og hagræðing í samningum og styrkjum til þriðja aðila 24% eða 818 milljónum. Gert er ráð fyrir að aðra leiðir til hagræðingar skili 448 milljónum króna, eða 13% af heildinni.
Góður árangur hefur náðst í rekstri Reykjavíkurborgar það sem af er þessu ári. Tekist hefur að standa við áætlaða kostnaðarhagræðingu og eru svið borgarinnar rekin innan fjárheimilda. Tekjur eru meiri en ráð var fyrir gert og stafar það fyrst og fremst af því að útsvarstekjur eru umfram áætlun.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri lagði í ræðu sinni áherslu á að ekki væri hægt að leggja frekari álögur á íbúa borgarinnar: „Við getum ekki skattlagt okkur út úr þeirri kreppu sem við erum í. Eina leiðin út úr kreppunni er að blása lífi í þær glæður sem enn loga í íslensku samfélagi. Ýta undir dugnaðinn og metnaðinn sem einkennir þjóðarsálina. Hvetja til atvinnusköpunar og standa þannig vörð um tekjugrundvöll fjölskyldna og fyrirtækja og tryggja að íbúar þessarar borgar njóti góðrar grunnþjónustu.“
Önnur umræða og afgreiðsla frumvarpsins fer fram í borgarstjórn þriðjudaginn 15. desember nk.“