18. jan. 2010
Námsúrræði fyrir unga atvinnuleitendur
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið hafa undirritað samkomulag um námstækifæri á framhaldsskólastigi fyrir unga atvinnuleitendur. Samkomulagið er gert í framhaldi af sameiginlegri skýrslu ráðuneytanna:
Ungt fólk án atvinnu – virkni þess og menntun. Hún var unnin af mjög öflugum hópi á einungis tveimur mánuðum til að leita skjótra úrræða vegna fjórföldunar atvinnuleysis á einu ári. Ráðuneytin stefna að því að fjölga námsúrræðum með því að fjölga námsplássum á núverandi námsbrautum og með því að þróa ný námsúrræði. Vinnumálastofnun er heimilað að semja við framhaldsskóla um námsvist á núverandi námsbrautum fyrir fólk á aldrinum 18-24 ára sem er án atvinnu og tryggt innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Sjá nánar
hér.
Til baka