Frétt

19. jan. 2010

Leiðin til læsis

Laugardaginn 6. febrúar halda Samtök móðurmálskennara ráðstefnu um læsi í Bratta við Stakkahlíð í Reykjavík. Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og öðrum áhugasömum um málefnið og flutt verða erindi um stöðu læsis og leiðir í átt til betra læsis. Eftir hádegi geta ráðstefnugestir valið að heimsækja mismunandi smiðjur þar sem kynntar eru áhugaverðar leiðir sem farnar eru á ýmsum skólastigum. Sjá dagskrá og aðrar upplýsingar hér. Fólk er hvatt til að skrá sig fyrir 1. febrúar en dagskráin er ókeypis.
Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli